16.02.1981
Neðri deild: 53. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2291 í B-deild Alþingistíðinda. (2501)
209. mál, tollskrá
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Þrátt fyrir að frv. það til laga sem hér er nú á dagskrá, sé tvímælalaust mikið til bóta hef ég talsvert við það að athuga. Mér finnst sem hæstv. Alþingi sé að afgreiða hér stórt mál í áföngum. Ég sé ekki af hverju á að takmarka fjölda bifreiða sem árlega er úthlutað til fólks sem er sjúklingar á einn eða annan hátt. Auðvitað á að afgreiða slík mál og taka tillit til allra þeirra sem eiga rétt á því, hver sem fjöldi þeirra er.
Hér er talað um 500 bifreiðar sem á að úthluta bækluðu fólki eða lömuðu svo og fólki með lungnasjúkdóma, hjartasjúkdóma og aðra hliðstæða sjúkdóma, allt á svo háu stigi að það á erfitt með að fara ferða sinna án farartækis. Það er gríðarlega stór hópur manna sem hefur einhver þessi sjúkdómseinkenni eða er hreyfihamlaður. 500 bifreiðar eru því engin ofrausn. Mér finnst þetta vera svo smátt að við séum að bjóða að þetta mál verði tekið aftur upp innan skamms tíma og afgreitt með kannske 550 eða 600 bílum. Þegar hv. Alþingi er svo búið að ræða þetta mál í nokkur ár hvað eftir annað verður það opnað þannig að allir, sem eiga rétt á að fá þessa fyrirgreiðslu, fá hana. Þá finnst mér það enn þá einkennilegra þegar seinna í 1. gr. segir, með leyfi forseta, að „fjmrh. skipar fimm manna nefnd er úrskurðar umsóknir og gerir tillögur um eftirgjöf gjalda af ofangreindum bifreiðum. Skuli fjórir nefndarmenn vera læknar og skipaðir samkv. tilnefningu Öryrkjabandalags Íslands.“ — Það eru sem sagt fjórir fagmenn, læknar, trúnaðarmenn fjmrn., skipaðir af Öryrkjabandalagi Íslands, en jafnvel það nægir ekki til þess að allir fái fyrirgreiðslu. Þessum mönnum er gert að segja við tvo menn sem báðir eiga sama rétt: Þú færð bíl, en hinn ekki. — En báðir hafa sömu þörfina. Báðir sætu kannske heima hreyfihamlaðir ef þeir fengju engan bíl. Annar verður alla vega að vera áfram heima hreyfihamlaður, nema hann sé auðmaður sem getur keypt sér bíl og útbúið hann á þann hátt sem hann þarf.
Mér finnst afgreiðslan á þessu máli, þó að þetta sé kannske mikil bót frá því sem fyrir er, alls ekki Alþingi sæmandi og ég vil gera það að tillögu minni, að þetta mál verði kannað í þeirri nefnd, sem tekur við því, með því hugarfari að jafnt gangi yfir alla sem rétt eiga á.
Þá vil ég gera þriðju athugasemdina við 1. gr., það er við síðustu mgr., en hún er svohljóðandi:
Enn fremur er ráðuneytinu heimilt að lækka eða fella niður fyrir framangreint fólk gjöld af gervilimum sem ekki verða gerðir hér á landi, svo og af áhöldum og hjálpartækjum sem sérstaklega eru gerð með tilliti til þarfa þess og henta ekki öðru fólki.“
Það henta náttúrlega ekki gervilimir öðru fólki en því sem þarf á gervilimum að halda. Og hvernig í ósköpunum stendur á því, að við höfum þetta í tollskrá? Með svona afgreiðslu er Alþingi ekki að gæta sóma síns.
Ég legg til að gervilimir verði í núll-tollflokki. Það eiga að vera í tollskránni hrein ákvæði um að gervilimir, af hvaða tegund sem er, eða áhöld og hjálpartæki þeirra, sem eru hreyfihamlaðir, séu tollfrjáls. Þessar athugasemdir vil ég leyfa mér að gera, herra forseti, og beina þessum orðum mínum til þeirrar nefndar sem tekur við frv. til athugunar.