17.02.1981
Sameinað þing: 49. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2315 í B-deild Alþingistíðinda. (2516)
363. mál, Framleiðslueftirlit sjávarafurða
Fyrirspyrjandi (Guðmundur Karlsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram svohljóðandi fsp. til hæstv. sjútvrh.:
„Hvað líður endurskoðun á Framleiðslueftirliti sjávarafurða og væntanlegum tillögum um endurskipulagningu þess?“
Þótt talsverður tími sé liðinn síðan fsp. þessi var lögð fram sýnist hún engu síður raunhæf nú en þá og því meiri ástæða til að búast við forvitnilegum upplýsingum og að nokkuð hafi miðað með endurskoðunina því lengri tími sem hefur liðið.
Sjútvrh. skipaði 6. sept. 1979 nefnd til að endurskoða lög um Framleiðslueftirlit sjávarafurða, til einföldunar og sparnaðar í rekstri stofnunarinnar. Bæði höfðu tilmæli í þá átt borist frá fulltrúum hagsmunaaðila og fjvn. Alþingis sérstaklega farið fram á það við fjárlaga- og hagsýslustofnun, að gerð yrði úttekt á fjárhagslegum rekstri stofnunarinnar. Óskað var eftir tilnefningu í nefndina frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og Sjómannasambandi Íslands sameiginlega, frá Landssambandi ísl. útvegsmanna, frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og sjávarafurðadeild Sambandsins í sameiningu og frá Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda og síldarútvegsnefnd í sameiningu. Sjútvrh. skipaði formann nefndarinnar og var sérstökum fulltrúa fjárlaga- og hagsýslustofnunar falið að starfa með nefndinni.
Nefndin vann mikið starf, átti viðræður við fulltrúa fjölda hagsmunaaðila hér á landi og safnaði gögnum um fyrirkomulag matsmála erlendis. Ástæða til skipunar nefndarinnar og starfs mun hafa verið allhörð gagnrýni á starfsemi stofnunarinnar frá hagsmunaaðilum, frá hinu opinbera og frá starfsmönnum stofnunarinnar sjálfrar. Um réttmæti þeirrar gagnrýni verður ekki dæmt hér. Nefndin skilaði áfangaskýrslu og — að því er best verður vitað — lokaskýrslu til ráðh. með hugmyndum og jafnvel tillögum um verulegar breytingar á starfsemi stofnunarinnar, til einföldunar, sparnaðar og meiri sveigjanleika í starfi og skipulagi.
Samkeppni harðnar stöðugt á mörkuðum okkar og gæðakröfur aukast. Hlýtur því stöðugt að vera spurt hvort við stöndum okkur sem skyldi með óbreyttu fyrirkomulagi.
Hugmyndir hafa verið uppi um að færa meira af eftirlits- og matsstarfinu til söluaðila og framleiðenda sjálfra, þar sem hin endanlega og fjárhagslega ábyrgð hlýtur alltaf að verða.
Þá hlýtur sú spurning að vera vakandi, hvort ekki sé ástæða til að endurskoða gildandi lög um fiskmat og reglugerðir sem margar eru meira eða minna úreltar og gallaðar. Í fjárlögum þessa árs eru gjöld stofnunarinnar áætluð 10 248 650 nýkr. Með verulegum niðurskurði, sem hugmyndir hafa heyrst um, væri því til nokkurs að vinna fyrir skattborgarana. Þá má líta á þetta sem prófmál um hvort unnt sé að draga saman í opinberri stofnun eða fyrirtæki, ef tillögur eru gerðar um það og gild rök virðast hníga að því að svo sé gert.