17.02.1981
Sameinað þing: 49. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2320 í B-deild Alþingistíðinda. (2520)
374. mál, kannanir á tekjuskiptingu og launakjörum
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Eins og fram kom í máli hv. fyrirspyrjanda var sú þáltill., sem hér er spurt um framkvæmd á, samþykkt á Alþingi 28. apríl s.l. og síðan framsend félmrn. Till. er sama marki brennd og oft vill verða með margar ágætar þál. sem eru samþykktar á Alþingi, að þar er gert ráð fyrir mjög viðamiklum verkefnum. Ég tel raunar að þessi þál. sé þannig að hún snúi í sjálfu sér að stjórnkerfinu öllu og ekki félmrn. einu. Auk þess er í henni gert ráð fyrir ýmsum almennum pólitískum matsatriðum sem er ekki á færi stofnana, annarra en Alþingis og alþm., að taka afstöðu til.
Strax og ég fékk þessa þál. í hendur í félmrn. sneri ég mér til þeirrar stofnunar hér í stjórnkerfinu sem líklegust var til að geta svarað flestum þáttum hennar, en það er Kjararannsóknarnefnd. Það er sú stofnun sem hefur með slík mál að gera að yfirgnæfandi meiri hluta, en auk þess fjallar þessi þál. um ýmsa aðra þætti sem koma Kjararannsóknarnefnd að sjálfsögðu ekki við, — þætti, sem snúa t.d. að Jafnréttisráði, og þætti, sem snúa síðan að heilbrigðiskerfinu vegna athugana á heilsufari starfsfólks. Það liggur hvergi fyrir og hefur hvergi farið fram nein athugun á áhrifum launakerfa á heilsufar starfsfólks hér á landi, en ég minni á að á síðasta Alþingi voru samþykkt hér lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum sem skapa möguleika til að fylgjast með þessum þáttum betur en verið hefur.
Kjararannsóknarnefnd hafði þetta bréf mitt til meðferðar í marga mánuði og svaraði mér með bréfi, dags. 16. febr. 1981. Ég held að það sé einlægast að lesa svar Kjararannsóknarnefndar hér í heild þannig að líka komi fram hversu viðamikið mál er um að ræða og ekki hægt að ætlast til þess, að framkvæmd þess sé lokið að neinu leyti á þessu stigi málsins. Ég les bréf Kjararannsóknarnefndar:
„Kjararannsóknarnefnd hefur fjallað um beiðni ráðuneytis yðar varðandi framkvæmd kannana á tekjuskiptingu og launakjörum, sbr. þál. frá 28. apríl 1980. Með bréfi til atvinnumálanefndar Sþ. 21. mars 1980 tóku þau samtök, sem að Kjararannsóknarnefnd standa, undir þá stefnu sem mörkuð var í þáltill. Samtökin ítrekuðu nauðsyn þess, að upplýsingaöflun um tekjur og kjaramál verði efld, og lögðu áherslu á hve brýnt það er að starfsemin njóti fyllsta trausts aðila vinnumarkaðarins. Þá minntu samtökin á að rannsóknaraðilinn getur aldrei úrskurðað hvað sé gott og vont í launamálum, þar sem slíkt mat sé undirorpið pólitískum mælikvarða, og áréttuðu jafnframt að verkefnin eru umfangsmikil og verða ekki unnin á skömmum tíma né í eitt skipti fyrir öll.
Kjararannsóknarnefnd áréttar þessi sjónarmið samtakanna. Aukin upplýsingaöflun og úrvinnsla gagna er forgangsverkefni. Nefndinni er hins vegar ljóst að mörg af þeim verkefnum, sem rakin eru í þál., eru það umfangsmikil, fjárfrek og seinunnin, að árangurs er ekki að vænta á stuttum tíma. Sum atriðanna fjalla beint um siðferðilegt og pólitískt mat sem ólíklegt er að nokkurn tíma verði lagður á einhlítur mælikvarði.
Kjararannsóknarnefnd ítrekar enn fremur það sem að ofan er rakið úr afstöðu samtakanna, að öll upplýsingaöflun og meðferð upplýsinga á þessum vettvangi verði að njóta fyllsta trausts aðila vinnumarkaðarins. Nefndin er reiðubúin til viðræðna um mögulegt starf hennar í þessu sambandi, eftir því sem fjármagn og aðgangur að upplýsingum gerir henni kleift og samkomulag gæti orðið um samsetningar hennar vegna, en nefndin hefur hingað til hafnað aðild fleiri samtaka að nefndinni. Í þessu sambandi er óhjákvæmilegt að minna á að starfsemi Kjararannsóknarnefndar er í dag alfarið fjármögnuð af Atvinnuleysistryggingasjóði. Ef á hinn bóginn starfssvið Kjararannsóknarnefndar yrði víkkað þannig að hún tæki á sig þau verkefni sem samkomulag yrði um og fjallað er um í þál., er aftur á móti óhjákvæmilegt að sá þáttur starfseminnar yrði að mestu fjármagnaður af ríkissjóði. Það, hvort og þá hvaða viðfangsefni Kjararannsóknarnefnd tæki að sér af þeim sem nefnd eru í þál., hlýtur að fara eftir því, hvern aðgang Kjararannsóknarnefnd fengi að viðkomandi gögnum og hvaða fjárhagslega aðstöðu hún fengi til þess að auka starfskrafta nefndarinnar og leggja í annan kostnað, svo sem við tölvuvinnslu.
Um einstaka liði ályktunarinnar og hugsanlegt framlag Kjararannsóknarnefndar vegna framkvæmda á henni vill nefndin segja eftirfarandi:
1. Að fyrir liggi á einum stað, þar sem tölfræðileg tölvuúrvinnsla er möguleg, allar upplýsingar um lífskjör og kjaramál er máli skipta og nauðsynlegar eru til tölfræðilegrar greiningar hverju sinni og seinni liðir ályktunarinnar fjalla um.“
Þetta er fyrsti þáttur ályktunarinnar. Um hann segir Kjararannsóknarnefnd þetta:
„Kjararannsóknarnefnd hefur með höndum söfnun á kjarasamningum, framkvæmdir úrtaks, kannanir á launum og vinnutíma verkafólks um land allt og ræður yfir tölvuforritum til úrvinnslu úrtaksupplýsinga. Þær upplýsingar, sem nefndin dregur saman úr úrtakskönnunum sínum, eru engan veginn jafnvíðtækar og mælt er fyrir um í þessum lið ályktunarinnar. Upplýsingar nefndarinnar verða því aldrei algildur mælikvarði á lífskjör launafólks.
Úrvinnsla upplýsinga nefndarinnar er í aðalatriðum á tímakaupsgrunni. Eðlilegt er og nauðsynlegt að til fyllingar komi upplýsingar sem unnar eru úr skattaframtölum, þ.e. á árslaunagrunni. Nefndinni er kunnugt um að nýlega hafa opnast nýir möguleikar til úrvinnslu á þessum vettvangi. Kjararannsóknarnefnd hefur hins vegar ekki beinan aðgang að þeim upplýsingum sem hér um ræðir.
Varðandi lýsingu á tölvukerfi nefndarinnar og þeim upplýsingum, sem þar eru dregnar saman, leyfir nefndin sér að vísa til grg. þar að lútandi úr 48. bréfi, Fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar.“
Annar þátturinn í þál. var á þessa leið: „Að framkvæma tölfræðilegan samanburð á hvers konar kjaraatriðum — í hvaða formi sem þau eru látin í té — innan og milli starfsgreina, fyrirtækja, stofnana, verkalýðsfélaga, atvinnuvega eða byggðarlaga.“
Um þetta segir Kjararannsóknarnefnd: „Samanburður af því tagi, sem hér um ræðir í 2. tölul. ályktunarinnar, er mögulegur á grundvelli úrvinnslu Kjararannsóknarnefndar að því er beinar launagreiðslur varðar. Slíkur samanburður takmarkast að sjálfsögðu af þeim upplýsingum sem unnið er úr. Samanburður á ýmsum karaatriðum hefur einnig verið gerður af samningsaðilum í tengslum við samningaviðræður og Kjararannsóknarnefnd gæti, ef fjármagn fengist, unnið umfangsmikið starf á þessu sviði.“
Þriðji þáttur ályktunarinnar er á þessa leið: „Að rannsaka forsendur flokkaskipunar og annarra kjaraatriða hinna margvíslegu kjarasamninga, þ.e. meta vægi hinna ýmsu eðlisþátta vinnunnar eða annarra áhrifaþátta með vinnurannsóknum, t.d. a) ábyrgðar, b) áhættu, c) hæfni, d) lífaldurs, e) prófa, f) starfsaldurs, g) starfsreynslu, h) streitu, i) óþrifnaðar, j) viðhorfa, k) þekkingar, I) erfiðis, og fleiri þátta sem að gagni mættu koma.“
Hér er sem sagt víða komið við, og um þetta segir Kjararannsóknarnefnd:
„Kjararannsóknarnefnd vill minna á að á árinu 1978 gerðu ASÍ, VSÍ og VMS, þ.e. Vinnumálasamband samvinnufélaganna, með sér rammasamkomulag um undirbúning og framkvæmd kerfisbundins starfsmats. Samkomulag þetta gerir m.a. ráð fyrir því, að félagasamtök aðila geti aðstoðað við starfsmat þegar þess er óskað. Meginstefna þessa samkomutags felur í sér að vinnustaðirnir eigi frumkvæðið að starfsmati, en því sé ekki miðstýrt ofan frá með þeim hætt sem hér sýnist lagt til. Rétt er að ítreka að vægi hinna ýmsu þátta starfsmats verður seint endanlega metið. Matið á því, hvaða þættir skuli metnir, hvernig þeir skuli vegnir saman og hvernig stigagjöf þeirra hvers um sig skuli hagað, er líklega breytilegt frá einum tíma til annars.“
Fjórði þátturinn í ályktun hv. Alþingis frá 28. apríl s.l. var á þessa leið: „Að upplýsa hlutfall hinna ýmsu launakerfa í launakjörum almennt, þannig að hægt sé að sjá hvaða þáttur launakjara sé mest ákvarðandi um launakjör hverrar starfsstéttar, svo sem dagvinnutaxtar, yfirvinnutaxtar, afkastahvetjandi launataxtar, yfirborganir og aðrar duldar greiðslur eða kjaraþættir.“
Um þetta segir nefndin:
„Í úrvinnslu launaupplýsinga leitast Kjararannsóknarnefnd við að greina uppruna launa, þ.e. hvort til þeirra sé unnið í dag-, eftir- eða næturvinnu, vaktavinnu eða bónusvinnu. Kjararannsóknarnefnd safnar upplýsingum um raunverulegar greiðslur í þessu samhengi, sem hægt er síðan að bera saman við kauptaxta, og sérstakar kannanir hafa verið gerðar á yfirborgunum einstakra hópa. Upplýsingar um afkastahvetjandi launakjör iðnaðarmanna eru enn sem komið litlar sem engar, og er þar við mjög ramman reip að draga þar sem tímaskráningar eru í sumu tilvikum alls ekki fyrir hendi og misjafn vilji til að taka þær upp þar sem þær skortir. En Kjararannsóknarnefnd hefur haft úrbætur í þessu efni á sinni verkefnaskrá undanfarin ár.“
Fimmti þáttur þál. var á þessa leið: „Að upplýsa hvernig aldurs- og kynskipting sé eftir launatöxtum, yfirborgunum og starfsgreinum.“
Svar nefndarinnar er á þessa leið um þennan þátt: „Í tölvukerfi nefndarinnar er gert ráð fyrir nokkurri greiningu úrtaksupplýsinga eftir kyni og aldri launþega, og eru hinar almennu upplýsingar, sem nefndin birtir, að verulegu leyti greindar eftir kyni. Hins vegar hefur enn ekki verið unnið úr gögnum um aldursskiptingu nema að litlu leyti.“
Sjötti þáttur þál. var á þessa leið: „Að rannsaka hvort og hvers vegna sumir hópar eru verr í stakk búnir til að ná fram bættum lífskjörum í gegnum almenna kjarasamninga, og á sama hátt að rannsaka hvers vegna öðrum hópum hefur tekist að ná mun betri kjörum en almennt þekkist í landinu.“
Um þetta segir nefndin: „Hér er fjallað um upplýsingar sem ekki eru með ótvíræðum hætti staðreynanlegar og háðar eru pólitísku mati. Kannanir á kjörum einstakra hópa ættu hins vegar að geta orðið gagnleg forsenda umræðna um þessi efni.“
Sjöundi þátturinn í ályktun Alþingis frá 18. apríl var á þessa leið: „Að meta heilsufræðileg, félagsleg og hagfræðileg áhrif hinna mismunandi launakerfa og vinnuaðstæðna.“
Nefndin segir um þennan þátt:
„Mat á heilsufræðilegum, félagslegum og hagfræðilegum áhrifum vinnuaðstæðna og launakerfa hefur ekki verið á verkefnaskrá Kjararannsóknarnefndar.“
Ég vil í sambandi við þennan lið taka það fram, að á fjárlögum ársins 1981 er fjárframlag, að mig minnir upp á 7 millj. gkr., í því skyni að kanna heilsufarsleg áhrif afkastahvetjandi launakerfa. Sú könnun hefur verið sett af stað, að henni er unnið á vegum heilbrmrn., félmrn. og Vinnueftirlits ríkisins. Einnig vil ég geta þess í þessu sambandi, að á vettvangi Norðurlandaráðs er í undirbúningi sérstök könnun á áhrifum afkastahvetjandi launakerfa, þ.e. bónusvinnu, sérstaklega á heilsufar kvenna. Sú rannsókn verður framkvæmd hér á árinu 1982 með stuðningi Norðurlandaráðs.
Áttundi þáttur þál. er um „að athuga hvort víðar sé hægt að koma við skaðlausu afkastahvetjandi launakerfum, t.d. hjá hinu opinbera.“
Kjararannsóknarnefnd tekur að sjálfsögðu enga afstöðu til þessa þáttar, enda yrði hér að vera — eins og víðar í sambandi við þessa ályktun — um að ræða mál sem samið yrði um á milli BSRB og BHM annars vegar og hins vegar ríkisins.
Níundi þátturinn í ályktun Alþingis var á þessa leið: „Að leita skýringa ef um marktækan mismun er að ræða milli launakjara einstakra byggðarlaga, atvinnuvega, verkalýðsfélaga, starfsgreina eða ólíkra rekstrarforma í atvinnurekstri.“
Kjararannsóknarnefnd segir um þetta atriði:
„Um þessi atriði má draga ýmsar ályktanir af gögnum eins og þeim sem Kjararannsóknarnefnd vinnur. Mat á ástæðum mismunandi launakjara er ekki á verkefnaskrá nefndarinnar.“
Tíundi þátturinn var á þessa leið: „Að kanna hvort brögð séu að því, að launamisrétti sé falið í stöðuheitum.“ Þetta verkefni er að sjálfsögðu ekki hjá Kjararannsóknarnefnd, heldur hjá Jafnréttisráði.
Ellefta: „Að athuga hvort uppbygging launataxta og annarra launakjara kalli fram mismun í kjörum karla og kvenna, t.d. vegna aðildar að mismunandi verkalýðsfélögum.“
Um þetta segir Kjararannsóknarnefnd:
„Mat af þessu tagi sýnist falla með beinum hætti undir Jafnréttisráð sem væntanlega gæti m.a. byggt það á gögnum Kjararannsóknarnefndar.“
Tólfta: „Að kanna hvaða áhrif skert starfsgeta eða starfsþrek hefur í reynd á eðlilega tekjuskiptingu í þjóðfélaginu — og í hve ríkum mæli hún er ákvarðandi um lífskjör — þegar önnur atriði eru sambærileg.“
Nefndin svarar þessu á þessa leið:
„Til greina kemur að kanna sérstaklega kjör þeirra sem búa við skerta starfsgetu.“
Ég vil í þessu sambandi láta það koma fram, að á vegum heilbr.- og trmrn. og Tryggingastofnunar ríkisins hefur verið í gangi um nokkurra mánaða skeið sérstök könnun á högum aldraðra og öryrkja. Að því er varðar öryrkja er þeirri könnun lokið. Að því er varðar aldraða stendur sú könnun yfir.
Þrettándi þáttur: „Að rannsaka og upplýsa með hvaða hætti atvinnureksturinn í landinu notar hina ýmsu launaliði til að réttlæta verðhækkunarbeiðnir sínar fyrir verðlagsnefnd.“
Þetta er mál sem Verðlagsráð fjallar um.
Fjórtándi þáttur: „Að kanna hvaða möguleikar felast í tekjutilfærslukerfum ríkisins, t.d. skatta- og almannatryggingakerfinu, til að jafna tekjuskiptingu og stuðla að aukinni hlutdeild láglaunafólks, lífeyrisþega og annarra minnihlutahópa í vaxandi þjóðartekjum.“
Kjararannsóknarnefnd segir um þetta atriði: „Möguleikarnir í þessu efni fara eftir póli,tískum aðstæðum og vilja Alþingis á hverjum tíma. Lýsingu á áhrifum einstakra aðgerða má hins vegar gefa og hefur Þjóðhagsstofnun verið Alþingi og ríkisstj. ráðgefandi í þessu efni, einnig við minnkandi þjóðartekjur, en í samþykkt Alþingis var eingöngu gert ráð fyrir vaxandi þjóðartekjum, sem er því miður ekki uppi á teningnum nú.“
Í fimmtánda lagi var í þál. gert ráð fyrir þessu: „Að athuga á grundvelli þessara upplýsinga“, — sem þá voru væntanlega á undan komnar, — „hvort ekki sé hægt í samráði við aðila vinnumarkaðarins að samræma og einfalda hinn mikla frumskóg kjaraákvæða og launataxta er nú gilda í landinu. Niðurstöður ofangreindra kannana skal jafnan leggja fyrir Alþingi þegar þær liggja fyrir.“
Um þetta segir nefndin:
„Í kjarasamningum í júní 1977 gáfu samningsaðilar út yfirlýsingu sem að þessu lýtur og fól í sér að aðilar vinnumarkaðarins tækju þessi mál til sérstakrar skoðunar.“ (Forseti hringir.) Hæstv. forseti. Ég verð senn búinn með mál mitt, ég á eftir eins og eina og hálfa mínútu eða svo. En þetta er viðamikið mál sem við erum hér með á dagskrá, þannig að ég vona að mér fyrirgefist þó að ég fari aðeins fram yfir fastan tíma.
Varðandi þetta atriði, sem síðast var nefnt, vil ég endurtaka það sem segir í bréfi Kjararannsóknarnefndar, að „í kjarasamningum í júní 1977 gáfu samningsaðilar út yfirlýsingu sem að þessu lýtur og fól í sér að aðilar vinnumarkaðarins tækju þessi mál til sérstakrar skoðunar.
Undirnefnd fastanefndar ASÍ, VSÍ og VMS og starfslið Kjararannsóknarnefndar vann á árunum 1977– 1978 að gerð taxtayfirlits og yfirlits um mismunandi kjaraatriði. Í nýgerðum kjarasamningum voru stigin skref til samræmingar launastiga. Telja verður að samningsaðilum sé sæmilega ljóst hvaða kostir og hvaða erfiðleikar fylgja því, að áfram verði haldið á sömu braut. Kjararannsóknarnefnd vill sérstaklega taka fram að hún telur að þessi atriði hljóti að ráðast við samningaborðið.
Kjararannsóknarnefnd hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að efla tiltekinn þátt kjararannsókna. Nefndinni er fullljóst að á þessu sviði er víða margt ógert. Þau verkefni, sem tekin eru fyrir, hljóta að ráðast af einhverri forgangsröð sem tekur tillit til þess fjárhags sem starfsemi á þessu sviði er ætlað að búa við. Fyrirheit um það, að ráðist verði í tiltekin verkefni, verða vart gefin nema fyrir liggi hvernig verkefnin verði fjármögnuð.
Nefndin vill undirstrika vilja sinn til frekari viðræðna á mögulegri þátttöku hennar í því starfi sem hér er lagt til að unnið verði. Að öðru leyti og til frekari upplýsinga vill Kjararannsóknarnefnd vísa til álitsgerðar nefndarinnar í bréfi til atvinnumálanefndar Alþingis, dags. 21. mars 1980, sem fjallar um umrædda ályktun á tillögustigi, og bréfs ASÍ, VSÍ og VMS til sama aðila, dags. sama dag.
Virðingarfyllst,
f.h. Kjararannsóknarnefndar,
Ásmundur Stefánsson, Þorsteinn Pálsson,
Júlíus Kr. Valdimarsson“.
Hér er sem sagt um að ræða allviðamikið svar við viðamikilli fsp. Um þetta mætti fjalla miklu nánar hér, en til þess hef ég engan tíma og verð að láta máli mínu lokið að sinni.
Í framhaldi af þessu svari Kjararannsóknarnefndar mun ég nú fara fram á það við hana, að hún útfæri svör sín í einstökum atriðum betur en þarna er gert. Jafnframt mun ég fara fram á það við Jafnréttisráð og Þjóðhagsstofnun, að þessir aðilar taki ýmsa þætti þessarar þál. til athugunar. Einnig vil ég benda hv. alþm. á það, að um þau atriði, sem þeir eru að spyrja um og biðja um í þessari þál. og þeirri fsp. sem henni fylgir, geta alþm. fengið upplýsingar með því að hafa samband við Þjóðhagsstofnun sem lögum samkv. er ráðgjafi Alþingis í þessum efnum.