17.02.1981
Sameinað þing: 49. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2326 í B-deild Alþingistíðinda. (2522)

374. mál, kannanir á tekjuskiptingu og launakjörum

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi mótmæla því, að ekkert hafi verið aðhafst varðandi þá þál. sem hér er um að ræða. Það er auðvitað endileysa. Ég greindi frá því áðan, hvað hefur verið aðhafst í þessum efnum. Það er Kjararannsóknarnefnd, sem fyrst og fremst hefur með þau mál að gera sem nefnd eru í þessari þál., og auðvitað var eðlilegt að ríkisstj. sneri sér fyrst til hennar til þess að afla upplýsinga um það, hvaða þættir það eru í þessari þál. sem Kjararannsóknarnefnd treystir sér til að framkvæma. Það er því endileysa, það er röfl, að ríkisstj. hafi ekkert aðhafst í þessu efni.

Í annan stað vil ég segja það varðandi ummæli hv. þm. um að Alþingi hafi gert sér grein fyrir þeim kostnaði sem af þessum rannsóknum leiddi, að það er misskilningur. Hvorki hv. Alþingi né heldur hv. þm. lögðu fram neinar till. við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1981 í sambandi við rannsóknir samkv. þessari þál. (Gripið fram í.) Alþingi gerði engar till., það komu engar till. fram frá hv. þm. um það, hvernig ætti að kosta þetta verkefni, og það er meginkjarni málsins. Áhuginn virtist ekki vera meiri á þessu þá, þó hann virðist vera það núna skyndilega.

Varðandi þessa till. að öðru leyti vil ég segja það, að ég tel að hún sé í raun og veru til marks um það að auðvitað er alveg nauðsynlegt, þegar menn eru að taka ákvarðanir um till. af þessu tagi, að menn rannsaki vandlega hvaða þættir það eru sem þeir í raun og veru vilja fá upplýsingar um. Hv. þm. hefur gert nokkra grein fyrir því hér. Hins vegar er það mjög almennt og óljóst, hvaða „konkret“ atriði það eru sem hér er óskað upplýsinga um. Er verið að biðja um það, að allar þessar upplýsingar verði afgreiddar og settar í bók í eitt skipti fyrir öll? Eða hvað? Það er ekki hægt, vegna þess að hér er um að ræða hluti sem breytast í þjóðfélaginu frá degi til dags, þannig að hér verður auðvitað að vera um sífellda vinnu að ræða. Hér verður ekki um það að ræða, að þessu verði lokið fljótt, „á næstunni“, eins og hv. þm. orðaði það áðan.