17.02.1981
Sameinað þing: 49. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2327 í B-deild Alþingistíðinda. (2525)
210. mál, vaxtabreytingar
Fyrirspyrjandi (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 413 að leggja fyrir hæstv. viðskrh. þrjár spurningar um vaxtabreytingar, en umræður um vexti, ávöxtunarkjör inn- og útlána hafa að vonum verið miklar að undanförnu. Fsp. eru svohljóðandi:
1. Hvernig hafa raunvextir í bönkum breyst á innlánalitið og útlánahlið frá áramótum?
2. Eru ráðgerðar hækkanir á þjónustugjöldum banka? Hve miklar?
3. Með hvaða hætti ætlar ríkisstj. að lækka vexti 1. mars?
Varðandi fyrstu spurninguna skal það tekið fram, að með því að segja „raunvextir“ er átt við vaxtastig miðað við verðbólgu, þannig að raunvextir yrðu núll ef um hreina verðtryggingu er að ræða, án svokallaðra nafnvaxta.
Í annarri spurningunni er spurt um tekjur bankanna vegna þjónustugjalda, en um það hefur verið rætt, að þessar tekjur skuli hækkaðar. Bæði kemur það fram í efnahagsáætlun ríkisstj. og enn fremur í viðtali dagblaðsins Tímans við formann bankaráðs Seðlabankans, sem er hv. þm. Halldór Ásgrímsson, að stefnt er að hækkun þjónustugjalda. Fyrirspurnin fjallar um það, hvort sú hækkun eigi að eiga sér stað nú á verðstöðvunartímabilinu. Þetta er að vísu eðlileg ráðstöfun þegar tekið er tillit til þess, að bankakerfið í dag nærist fyrst og fremst á vaxtamun.
Í þriðja lagi er spurt um lækkun vaxta 1. mars sem ríkisstj. stefnir að samkvæmt efnahagsáætluninni.
Í svokölluðum stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens, sem lítið hefur verið rætt um að undanförnu og fáir vilja vitna til eða kannast við, segir undir liðnum peningamál í 3. tölulið:
„Opnaðir verði í bönkum og sparisjóðum sparireikningar, þar sem sparifé njóti fullrar verðtryggingar, samkvæmt nánari reglum og í samræmi við möguleika til útlána.“ Ég leyfi mér að endurtaka það síðasta: „og í samræmi við möguleika til útlána.“
Þegar þessi samningur er lesinn til hliðar við frægustu lög sem hér hafa verið sett um efnahagsmál, svokölluð Ólafslög, nr. 13 frá 10. apríl 1979, 29. gr.) sem ég tel ástæðu til að lesa, með leyfi forseta, þá fær maður nokkra mynd af því, hvernig ríkisstj. ætlar að standa að kynningu og framkvæmd þessara mála.
Í 29. gr. segir: „Samin skal í tengslum við gerð fjárfestingar- og lánsfjáráætlana, sbr. 14. gr., áætlun til tveggja ára í senn um útlán bankakerfisins og um þróun lánamarkaðarins í heild, þar með taldar erlendar lántökur.“
Þetta kýs ég að lesa hér með tilliti til þess, að nú í dag var verið að dreifa ákveðnum hluta lánsfjáráætlunar, og það er eðlilegt að hæstv. ráðh. segi þingheimi frá því í svari sínu, hvort áætlun um útlán bankakerfisins verði lögð fram næstu daga.
Í 33. gr. þessara laga eru ákvæði til bráðabirgða, en það eru einmitt þau ákvæði sem voru nánast afnumin með brbl. um síðustu áramót. Þá kom fram sú yfirlýsing frá hæstv. ríkisstj., að þessi brbl. hefðu verið sett til þess að lækka vaxtastigið um u.þ.b. 10% . Nú gerist það hins vegar, að í sömu lögum er ákvörðun um opnun sex mánaða reikninga sem koma í staðinn fyrir þriggja mánaða reikningana sem getið er um í svokölluðum Ólafslögum. Þessi ákvörðun hefur að sjálfsögðu gjörbreytt öllum útlánum bankanna og þar með aðstöðu þeirra, sem þurfa að leita á náðir bankakerfisins um þessar mundir og taka lán, t.d. húsbyggjenda og húskaupenda. Margt af unga fólkinu í landinu rekur sig á það, að þar fást engin lán til lengri tíma en sex mánaða, hvað þá eins árs, nema á lánskjaravísitölugrundvelli. En lánskjaravísitalan er reiknuð mánaðarlega á grundvelli verðbólgustigs, nákvæmlega á þeim tíma þar sem tekið er tillit til verðbólgu síðustu þriggja mánaða og verðbólguvæntingar á næstu þremur mánuðum. Þessi vísitala er nú í 215 stigum miðað við 1. júní 1979. Þegar um er að ræða slík lán og vexti upp á 2.5%, þá þýðir þetta í raun ekkert annað en það í 50% verðbólgu, að vextir af lánskjaravísitölulánum eru 53.75%. Ég endurtek: 53.75% vextir á ári í verðbólgu sem hæstv, ríkisstj. hyggst láta vera hér á landi í ár, ef reikna má með því, að Þjóðhagsstofnun hafi rétt fyrir sér þegar hún hafði endurskoðað áætlanir sínar vegna efnahagsaðgerða ríkisstj. um s.l. áramót.
Í efnahagsáætlun ríkisstj. segir síðan að stefnt skuli að lækkun vaxta 1. mars, og þess vegna er þriðja spurningin sett á blað. Nú eru eftir 10 dagar af febrúarmánuði, og það er nýbúið að hækka vexti verulega. Því er spurt hvernig eigi að lækka þá aftur fyrir lok þessa mánaðar. Mér skilst að nefnd sé að störfum um þetta atriði. Ég vil að hæstv. viðskrh. skýri það fyrir þingheimi og þjóðinni, hvernig á þessu stendur. Fólkið í landinu er orðið ærið ráðvillt. Um áramót var sagt að það ætti að lækka vexti, þeir eru hækkaðir í raun í febrúar, og nú segir hæstv. ríkisstj. að það eigi að lækka þá aftur í mars. Hvers má vænta, hverja er verið að blekkja — eða eru til einföld og skýr svör við þessum spurningum?
Að allra síðustu, herra forseti, vil ég benda á til frekari skýringar, að vaxtaaukalánin, algengasta lánaformið hingað til, eru lán með 45% útlánsvöxtum miðað við þau 53.75 sem ég minntist á áðan í sambandi við lánskjaravísitölu.