17.02.1981
Sameinað þing: 50. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2333 í B-deild Alþingistíðinda. (2531)
18. mál, réttarstaða fólks í óvígðri sambúð
Frsm. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um till. til þál. um réttarstöðu fólks í óvígðri sambúð og orðið sammála um að mæla með samþykkt hennar. Þessi till. felur í sér að láta nú þegar fara fram könnun á réttarstöðu fólks í óvígðri sambúð. Í því skyni skipi viðkomandi ráðh. nefnd er geri till. um hvernig réttindum þess verði best fyrir komið, sérstaklega með tilliti til eignarréttar og erfðaréttar. Nefndin skal hraða störfum svo sem kostur er og skila álitsgerð og tillögum áður en næsta reglulegt Alþingi kemur saman.
Allshn. fékk umsagnir sifjalaganefndar, lagadeildar Háskóla Íslands og Lögmannafélags Íslands um málið, og kemur fram hjá þessum aðilum að þeir taka undir efni þáltill. og telja að nauðsynlegt sé að kanna réttarstöðu fólks í óvígðri sambúð með tilliti til þess, hvernig réttindum þess og skyldum verði best fyrir komið. Í umsögn sifjalaganefndar kemur fram, að sifjalaganefnd hefur fjallað um nokkra þætti er tengjast óvígðri sambúð. Má þar nefna barnalögin þar sem tekið er á einum þætti þessa máls, sem varðar forsjá barna fólks sem er í óvígðri sambúð, og rétt barna til þess að umgangast báða foreldra sína.
Einnig hefur sifjalaganefndin tekið þátt í norrænu samstarfi er varðar fjármál hjóna og einnig fjármál sambúðarfólks. Kemur fram í umsögn sifjalaganefndar að það sé tvímælalaust þörf á að hyggja rækilega að lagasetningu um fjármál sambúðarfólks, eins og fram kemur við slit á sambúð. Í bréfi sifjalaganefndar kemur fram að sifjalaganefndin gæti staðið fyrir þeirri könnun, sem þáltill. felur í sér, í samvinnu við háskólastofnun. Er ekki óeðlilegt að ætla að rétt væri að fela þeirri nefnd þetta verkefni, þar sem nefndin hefur augljóslega þekkingu og yfirsýn á nokkrum þeirra þátta er snerta óvígða sambúð.
Allir umsagnaraðilar telja tímabært og nauðsynlegt að fram fari sú könnun sem þáltill. felur í sér. Telur sifjalaganefndin að þessi könnun sé nauðsynleg undirstaða ákvörðunar um hvernig réttindum og skyldum fólks í óvígðri sambúð sé best fyrir komið.
Allshn. Sþ. mælir því með, að till um réttarstöðu fólks í óvígðri sambúð verði samþykkt eins og hún liggur fyrir á þskj. 19. Fjarverandi afgreiðslu málsins voru Halldór Blöndal og Guðmundur G. Þórarinsson.