17.02.1981
Sameinað þing: 50. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2335 í B-deild Alþingistíðinda. (2535)

108. mál, samkeppnisstaða íslendinga

Flm. (Guðmundur Karlsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja svohljóðandi þáltill.:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að gera ítarlega athugum á samkeppnisaðstöðu Íslendinga á hinum ýmsu markaðssvæðum fyrir fisk og aðrar sjávarafurðir og á fyrirkomulagi styrkja og aðstoðar við sjávarútveg helstu samkeppnisþjóða okkar.“

Í grg. segir:

„Á síðustu árum hefur útflutningur okkar á sjávarafurðum mætt harðnandi samkeppni á mikilvægustu mörkuðum. Framboð á fiski og öðrum sjávarafurðum hefur vaxið í skjóli aukinnar verndarstefnu flestra þjóða í formi beinna og óbeinna opinberra styrkja við sjávarútveg viðkomandi þjóða. Þessi styrkjastefna öflugra iðnaðarríkja við sjávarútveg, sem er í flestum tilvikum minni háttar atvinnugrein hjá viðkomandi þjóðum, er farin að valda okkur Íslendingum verulegum vandræðum og mun í framtíðinni væntanlega valda alvarlegum búsifjum og versnandi lífskjörum, ef ekki verður rétt við brugðist.“

Útfærsla flestra fiskveiðiþjóða á fiskveiðilögsögu sinni í 200 sjómílur, miklar og örar tækniframfarir í veiðum og vinnslu og viðbrögð flestra þjóða og þjóðabandalaga við þeirri þróun er mjög farin að segja til sín á fiskmörkuðum okkar í auknu framboði á fiski á lágu verði, svo lágu að tæpast getur talist til heilbrigðra viðskiptahátta, enda önnur sjónarmið sem ráða ferðinni. Í Evrópu mætum við nú harðnandi samkeppni frá Kanada og jafnvel Bandaríkjamönnum á markaði fyrir frystan fisk, síld, saltfisk og ísfisk. Á Bandaríkjamarkaði undirbjóða Kanadamenn okkur í verði og aukin gæði framleiðslu þeirra reynast okkur stöðugt skeinuhættari, auk þess sem við eigum þar í stöðugri og harðri samkeppni við aðrar fiskveiðiþjóðir Evrópu.

Þá megum við ekki gleyma mikilli uppbyggingu sjávarútvegs og fiskiðnaðar í þriðja heiminum, en þaðan berst stöðugt meira af ódýrum og oft mjög góðum fiski inn á vestræna markaði. Þaðan má vafalaust búast við mjög auknu framboði á næstu árum, því að mikil sala á tækni og þekkingu til þriðja heimsins hlýtur að skila sér aftur heim til föðurhúsanna áður en langt tíður.

Ef við lítum á þá þróun, sem orðið hefur með keppinautum okkar á síðari árum, blasir heldur óskemmtileg mynd við augum. Í Kanada hefur ríkisstjórn og fylkisstjórnir veitt sjávarútveginum margs konar styrki og fjárhagsaðstoð og hrundið í framkvæmd hvers konar uppbyggingaráætlunum í fiskveiðum og vinnslu. Einkum hefur verið unnið að endurnýjun og hagræðingu á vinnslufyrirtækjum og fiskveiðiflota.

Ríkisstjórn Kanada vaknaði upp við þann vonda draum árið 1975, að í óefni stefndi og að hrun sjávarútvegsins blasti við ef ekki yrði við brugðist. Gerð var áætlun um uppbyggingu fiskstofna, og var fyrsta skrefið útfærsla fiskveiðilögsögunnar í 200 sjómílur. En til að hindra félagslegan, efnahagslegan og menningarlegan glundroða og koma í veg fyrir hrun sjávarútvegsins og upplausn heilla fiskveiðisamfélaga á austurströndinni var gripið til efnahagsaðstoðar og styrkja til að vernda fiskveiðarnar og iðnaðinn þangað til fiskstofnarnir hefðu náð sér á ný og frekari ráðstafanir hefðu verið gerðar til uppbyggingar.

Um 20% af íbúum austurstrandar Kanada eiga allt sitt undir sjávarútvegi, eða rúmlega 250 þús. manns, sem byggja á fiskveiðum, fiskiðnaði og þjónustu við þær atvinnugreinar. Þá byggist lífsafkoma nokkurra Indíánasamfélaga eingöngu á veiðum á vatnafiski. Að því er næst verður komist er veittur 35% styrkur til byggingar, breytinga eða skipta á fiskibátum undir ákveðinni stærð. Þá ábyrgist ríkisstjórnin lán til byggingar, kaupa, umbyggingar og breytinga á fiskibátum og til meiri háttar viðgerða. Séð er um tryggingar fiskibátanna, fiskimönnum tryggt ákveðið lágmarksverð á veiðinni og aðstoð er veitt ef verð á markaði fellur niður fyrir ákveðið lágmarksverð. Fiskimönnum hefur verið greidd ákveðin upphæð í verðlaun fyrir hvert kíló af fyrsta flokks fiski, sem þeir hafa landað, og framleiðendur fengið styrk fyrir hverja framleidda einingu af fiskflökum og blokkum. Styrkur er veittur hverjum þeim sem byrjar veiðar á áður óþekktum eða lítið notuðum fiskimiðum og fyrir nýtingu vannýttra fiskstofna. Nýfundnaland, Nova Scotia, New Brunswick, Prince Edward Island og Quebec hafa hvert með sínum hætti byggt upp eigið styrkja- og lánakerfi sem mig skortir allar upplýsingar um.

Norðmenn hafa styrkt sjávarútveg sinn allt frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar, og verður að líta á þann opinbera stuðning við sjávarútveginn sem óhjákvæmilegan þátt í byggða-, félags- og efnahagsstefnu Norðmanna. Ríkisstjórnin og fiskimannafélagið, Fiskarlaget, gerðu samkomulag árið 1964 um að semja árlega um styrki og fjárhagsaðstoð við sjávarútveginn og þá til eins árs í senn. En stefnt skyldi að aukinni hagræðingu og hagnaði í fiskveiðum, vinnslu og sölu. Miðað hefur verið við það að tryggja fiskimönnum sambærileg laun við iðnverkamenn í strandhéruðum. Aðstoðin hefur aukist ár frá ári, svo að rekstur fiskveiða og vinnslu yrði tryggður og til að hindra flótta fólks frá Norður- og Vestur-Noregi til annarra héraða og starfa.

Árið 1977 gerði norska stjórnin fyrstu langtímaáætlun sína um stefnu í sjávarútvegsmálum og um þróun veiðiflotans og vinnslunnar. Var þar áformað að minnka nótaveiðiflotann og þann hluta togaraflotans, sem veiddi til mjölvinnslu, og minnka frystitogaraflotann, endurhæfa og endurnýja línu- og netaveiðiflotann og fækka síldveiðiskipum. Þá skyldi stefnt að stærri skipum. Til byggingar fiskiskipa fást 60% af fjárfestingunni lánuð til 15 ára með 7.5% vöxtum á fyrsta veðrétti. Á öðrum veðrétti fæst viðbótarlán allt upp í 90% af fjárfestingu og afborgunarlaust fyrstu tvö árin. Árið 1979 greiddi fjármálaráðuneytið niður vexti þannig að lántaki greiddi aðeins 6%. Í sumum tilvikum eru 30% lánanna vaxtalaus og án afborgana fyrstu fimm árin.

Til fiskvinnslunnar veitir ríkisstjórnin aðstoð og lán. Vextir af þeim lánum eru 7.5%, en í sumum tilvikum eru þau afborgunar- og vaxtalaus fyrstu tíu árin. Byggðasjóðurinn norski veitir 20 ára lán með 7.5% vöxtum og styrki sem eru frá 15–35% af fjárfestingunni í fiskvinnslu. En þá er oftast um sérstakan byggðavanda að ræða. Fiskimenn fá greiddan hráefnisstyrk á vissar fisktegundir, venjulega ákveðna upphæð á hvert landað kíló eða hektólítra af fiski.

Styrkur er veittur til veiðarfærakaupa, bæði á innlend og erlend veiðarfæri, samkvæmt ákveðnum reglum þar um. Ríkisstjórnin stofnaði verðjöfnunarsjóð með ákveðnu fjárframlagi árið 1979, en hann mun nú byggjast á útflutningsgjaldi. Veittur er árlegur styrkur til tilrauna- og rannsóknarstarfsemi til að auka framleiðni í sjávarútveginum. Ríkisstjórnin ábyrgist fiskimönnum ákveðin lágmarksvikulaun. Noregsbanki fær ríkisábyrgð á framleiðslu- og afurðalánum og vegna sölu á fiskafurðum. Afurðalánin nema allt að 100% af framleiðslukostnaði, en aðeins veitt þeim framleiðendum sem sanna að þeir framleiði með hagnaði, og fá þeir þá ekki önnur lán til framleiðslunnar.

Árið 1979 voru vextir af afurðalánum 7.5%, en vegna mikilla erfiðleika útgerðarinnar veitti ríkisstjórnin henni sérstök lán, sem eru afborgana- og vaxtalaus fyrstu fimm árin. Vegna mikilla erfiðleika á skreiðarmarkaði árið 1977 veitti Noregsbanki 150 millj. norskra króna í lán til skreiðarvinnslunnar. 20 millj. voru vaxtalaust lán, en annars bar lánið 7% vexti. Einnig var skreiðarvinnslunni þá veitt 50 millj. kr. ábyrgð vegna framleiðslu og sölu á 2900 tonnum af skreið. Árið 1979 keypti norska stjórnin þurrkaðan fisk, skreið, niðursoðinn fisk, hert lýsi og fiskimjöl fyrir 90 millj. norskra króna til matvælahjálpar, World’s Food Program, en flestar þjóðir sýnast nota sjálfshjálp öðrum til hjálpar. Hvort það verður báðum aðilum jafnmikið til góðs skal ósagt látið.

Svipuð mynd blasir við hvar sem litið er um sviðið, aðeins með lítils háttar breyttum tilbrigðum: England, Þýskaland, Belgía, Holland, Skotland, Írland, Danmörk, Færeyjar og Grænland. Löng lán á lágum vöxtum. Hlutaeftirgjöf á lánum og vöxtum. Styrkir og fjárhagsaðstoð til byggingar skipa og fiskvinnslufyrirtækja. Fiskleitarstyrkir. Styrkir við nýjar og endurbættar veiðiaðferðir og búnað og til kynningar á nýjum aðferðum og vinnubrögðum. Styrkir til umbóta á framleiðslufyrirtækjum og dreifikerfum. Umbun fyrir nákvæma skýrslugerð og reikningshald. Styrkir til áróðursherferða. Fjárhagsaðstoð til að höggva upp og leggja skipum og hætta rekstri vinnslufyrirtækja. Sérstök aðstoð við svokallaðar jaðarbyggðir frá The Scottish Highland and Island Board, The Herring Industry Board og fleiri. Svona mætti lengi telja, en án tilgangs.

Þegar aðstoð viðkomandi ríkisstjórnir lýkur taka styrkir þjóðabandalaga við. Efnahagsbandalag Evrópu, The European Economic Community, hefur stofnað sérstakan sjóð, The European Agriculturat Guidance and Guaranty Fund. Hlutverk sjóðsins er að aðstoða við fjárfestingu í fiskveiðum og vinnslu, að auka og bæta framleiðslu- og markaðskerfi bandalagslandanna. Sjóðurinn veitir styrk upp í 25% af fjárfestingu, en á jaðarsvæðum bandalagsins getur styrkurinn orðið 45%, sem er þá viðbót við aðstoð viðkomandi ríkisstj. Sjóðurinn styrkir hvers konar verkefni í sjávarútvegi sem auka hagkvæmni eða framlegð og skila auknum hagnaði þegar til lengdar lætur eða hafa efnahagsleg og félagsleg áhrif á þróun fiskveiðanna. Samræmd verkefni á þeim sviðum, sem eru háð sjávarútvegi og fiskveiðum, njóta forgangs.

Sjóðurinn veitir styrki til stofnunar og rekstrar framleiðendasamtaka. Þá veitir hann framleiðendum styrki til að geyma framleiðsluvörur á eigin lager á meðan markaðsverð er lágt vegna of mikils framboðs og annarra truflana á markaði. Þá er veittur útflutningsstyrkur, ef nauðsyn krefur, á ákveðnar framleiðslutegundir og til að færa þær milli markaðssvæða, ef þarf, og miðast styrkirnir við heimsmarkaðsverð.

Til að gefa nokkra hugmynd um hverju fram fer og hverjir njóta styrkjanna er ekki að ófyrirsynju að telja upp þjóðir sem notið hafa styrkjanna og í hvaða mæli. Styrkirnir hafa verið taldir í European Units, sem mun vera svipuð eining og enska pundið og veitt til fiskiðnaðar viðkomandi þjóða á árunum 1971–1977. Þar ber England hæst með 34.80 millj., Írland annað með 11.20, Þýskaland þriðja með 11.10, Frakkland fjórða með 9.50, Ítalía fimmta með 8.30 og Holland og Belgía sjötta með 7.58, en Danmörk er neðst með 1.80; Þetta eru því hreint ekki fátækar þjóðir sem njóta þessara styrkja bandalagsins.

Ég sé ekki ástæðu til að tíunda hér kjör íslenskrar útgerðar og fiskvinnslu til samanburðar.

Vonandi gefur þessi lestur nokkra, en þokukennda mynd af því sem er að gerast með keppinautum okkar á fiskmörkuðunum og hvert útlit er um framtíðarþróun. Fæstar þessara þjóða munu ná stjórn á fiskveiðum sínum á næstu árum. Til þess sækja þær of margar í sömu fiskstofna og á sömu fiskimið. Bandalögin eru sjálfum sér sundurþykk og hagsmunir of skiptir til að þau nái þeim árangri sem að er stefnt. Því er útlit fyrir að þjóðirnar verði enn að auka á styrkveitingar sínar til sjávarútvegs í framtíðinni og versnar samkeppnisstaða okkar að því leyti. Þó skal það játað, að betri árangur og mjög aukið framboð þessara þjóða á fiski mundi einnig leiða til lækkaðs markaðsverð.

Þessi þáltill. er ekki flutt til þess að krefjast aðstoðar eða styrkja fyrir íslenskan sjávarútveg eða fiskvinnslu, — heldur til að vekja athygli á þeim vanda sem við er að glíma, til þess að íslensk stjórnvöld og aðrir þeir, sem hlut eiga að máli, skyggnist um gættir áður gangi fram. Alþjóðleg samskipti, samvinna og samningagerð um málefni sjávarútvegs aukast stöðugt, og er gagnlegt og nauðsynlegt fyrir samningamenn okkar að kunna sem best skil á stöðu, vinnubrögðum og framtíðaráætlunum gagnaðilans. Þeir, sem starfa úti á mörkuðunum, þurfa að hafa sem gleggsta mynd af því sem við er að glíma. Þá er nauðsynlegt að veita almenningi sem mestar upplýsingar um það sem gerist með öðrum þjóðum, og vekja almennan skilning á því, hvar við stöndum í samkeppni við aðrar fiskveiðiþjóðir. Þegar við mörkum eigin framtíðarstefnu í sjávarútvegi verðum við að taka mið af því sem aðrir aðhafast.

Því telur flm. nauðsynlegt að gera þá athugun, sem hér er gerð till. um, og hún sé stöðugt í gangi og sem ítarlegust. Væri æskilegt að niðurstaða lægi fyrir þegar þing kæmi saman aftur í haust.

Að lokinni þessari umr. legg ég til að till. verði vísað til atvmn.