17.02.1981
Sameinað þing: 50. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2339 í B-deild Alþingistíðinda. (2537)
164. mál, ívilnanir til loðnusjómanna
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Er Ágúst Einarsson var varaþm. hér flutti hann ásamt mér till. til þál. um ívilnanir til loðnusjómanna. Tillagan er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta fara fram könnun á því, hvernig megi m.a. með skattaívilnunum jafna það tekjutap sem loðnusjómenn verða að þola við ákvörðun um hina miklu skerðingu loðnuafla.“
Loðnuveiðar hafa verið stundaðar af íslenskum skipum um áraraðir. Afli fór ört vaxandi fyrstu árin og loðnuafurðir hafa ætíð skipað stóran sess í gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Loðnuveiðarnar gerðu kleift að nýta hinn mikla síldveiðiflota Íslendinga eftir að síldin hvarf. Jafnframt var nokkrum hinna eldri síðutogara breytt í loðnuskip. Loðnan veitti einnig hinum gömlu síldarverksmiðjum okkar veruleg og vaxandi verkefni. Af þessu má ljóst vera að loðnuveiðar Íslendinga voru stundaðar og að loðnan var unnin á þjóðhagslega mjög hagkvæman hátt. Til þessara veiða hafa ávallt vallst úrvalssjómenn sem höfðu vaxandi tekjur af þessum veiðum. Margt — og flest rangt — hefur verið ritað og sagt um tekjur loðnusjómanna. Vissulega hafa þær um árabil verið dágóðar, en þess er hollt að minnast, að loðnuveiðar eru erfið sjómennska og tekjur mjög óreglulegar.
Það var ekkert sem benti til þess fyrir nokkrum árum, að slíkur afturkippur kæmi í loðnuveiðarnar eins og nú er staðreynd. Það er ekki langt síðan fiskifræðingar okkar töldu að veiða mætti næstum ótakmarkað magn af loðnu og veiðigeta Íslendinga væri ekkert áhyggjuefni. Orðum fiskifræðinga var trúað, enda er oft auðveldara að frúa góðum fréttum en slæmum. Loðnusjómenn, útvegsmenn og eigendur fiskimjölsverksmiðja gerðu sínar áætlanir í samræmi við það, að loðnuveiðar mundu halda áfram að aukast, eins og fiskifræðingar og stjórnvöld lögðu til. Víða blasa við sorglegar afleiðingar af þessum viðbrigðum í loðnuveiðum. Flotinn er þegar orðinn of stór, og til að mynda sú skynsamlega ákvörðun Slippstöðvarinnar á Akureyri fyrir nokkrum árum að smíða loðnuveiðiskip „á lager“ reynist nú, þegar skipið er fullbúið, hafa verið hin ömurlegasta fjárfesting, bæði fyrir Slippstöðina og þjóðarbúið í heild. Sömuleiðis má benda á fiskimjölsverksmiðjurnar, sem á undanförnum árum hafa fjárfest miklar fjárhæðir til afkastaaukningar og til tæknilegra endurbóta. Nú standa margar verksmiðjur, sem illa liggja við miðunum, aðgerðarlausar mikinn hluta ársins.
Að lokum skal nefna þann þátt sem er grundvöllur þessarar þáltill., en það eru hin miklu áhrif sem skerðing loðnuveiða hefur á kjör sjómanna. Ljóst er að loðnusjómenn höfðu sem aðrir í þessari atvinnugrein reiknað með vaxandi tekjum næstu árin og gert áætlanir í sínu einkalífi byggðar á hækkandi launum. Sjómenn vita vel á hverju lífskjör þeirra byggjast, en það er að fiskurinn í sjónum sé verndaður og fái að vaxa. Þess vegna taka sjómenn eins og aðrir í sjávarútvegi slíkum skerðingum með stillingu og eru reyndar í flestum tilvikum frumkvöðlar fiskverndar. Það eru þó þeir aðilar sem fiskverndunin kemur hvað harðast niður á í fyrstu.
Aðilar í sjávarútvegi hafa oftsinnis haft vit fyrir þjóðinni allri og verið ótrauðir að leggja inn á bankabók til hagsbóta öðrum landsmönnum og komandi kynslóðum. Sú kjaraskerðing, sem verður frá sumar- og vetrarvertíð 1978 og 1979 til samsvarandi vertíðar 1979 og 1980, nemur um 18%. Skerðingin frá vertíðinni 1979 og 1980 til núverandi sumar- og væntanlegrar vetrarvertíðar, sem nú mun standa yfir, nemur um 45%. Margir bátar munu fylla loðnukvóta sinn á skömmum tíma, en þá bíða þessara báta engin verkefni þar til loðnuveiðar hefjast aftur í september í haust, nema ef vera skyldu hefðbundnar netaveiðar fyrir hluta af þessum flota, en slíkar veiðar hafa þó ekki enn verið leyfðar. Mörg loðnuskip geta ekki stundað aðrar veiðar en loðnuveiðar. Alger vandræði eru fram undan hjá bæði sjómönnum og útgerðarmönnum þessara skipa. Mikilsvert atriði við tekjuskerðingu loðnusjómanna er að við búum ekki við staðgreiðslu skatta, þannig að loðnusjómenn eru að greiða skatta af háum tekjum frá fyrra ári um leið og tekjur þeirra minnka mjög verulega. Slík sveifla niður á við í tekjum raskar öllum fjármálum einstaklinga.
Í þessari þáltill. er gert ráð fyrir könnun á því, hvernig þetta tekjutap loðnusjómanna verði jafnað. Ljóst ætti að vera með hliðsjón af aflaskerðingunni, að slíka kjaraskerðingu verður að milda með aðgerðum ríkisvaldsins. Ákvörðunin um skerðingu loðnuaflans er tekin af hálfu ríkisvaldsins og studd veigamiklum þjóðhagslegum rökum. Beinast liggur við að beita að einhverju leyti skattaívilnun og er bent á það í till. Aðrar leiðir eru til, eins og að tryggja með aðstoð Aflatryggingasjóðs og þá með fjármagni frá ríkisvaldinu að tekjur loðnusjómanna skerðist ekki eins og allt bendir til. Það er ekki einkamál loðnusjómanna að þola svona stórfellt tekjutap vegna friðunar. Þetta er mál allra landsmanna, enda munu hin góðu lífskjör undanfarinna ára ekki síst grundvallast á störfum þessara manna. Loðnusjómenn eiga skilið vegna vinnu sinnar undanfarin ár að þeim verði liðsinnt þegar brýna nauðsyn ber til.
Að loknum umr. legg ég til að þáltill. verði vísað til atvmn.