18.02.1981
Efri deild: 53. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2348 í B-deild Alþingistíðinda. (2542)
Umræður utan dagskrár
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Það undrar mig ekki stórlega þótt togaramát þetta beri hér á góma utan dagskrár, þótt hv. þm. Kjartan Jóhannsson veki máls á ýmsum þeim atriðum í sambandi við kaup togarans sem óljós hafa verið.
Ég hygg að ekki verði gerð öllu betri grein fyrir þeim aðdraganda að þessum togarakaupum, sem að þm. kjördæmisins lúta, en sú sem hv. þm. Lárus Jónsson gerði hér áðan. Þar var í hvívetna rétt frá skýrt. En ég vil leyfa mér að fara örlítið lengra til baka en til dagsetningar þess bréfs, til skýringar á þeirri sérstöku ábyrgð sem þm. kjördæmisins töldu sig bera á hráefnisöflun til hraðfrystihússins á Þórshöfn.
Sú saga hefur verið sögð nokkrum sinnum hér í þinginu með hvaða hætti svo bar til, að þeir Þórshafnarbúar luku við smíði á vönduðu, dýru og myndarlegu hraðfrystihúsi rétt í þann mund sem tekin var sú ákvörðun af hálfu ríkisstj. á sínum tíma að hætta innflutningi á togurum til landsins og að drepa við fæti í togarasmíð. Einnig bar þetta upp á þann tíma þegar fiskiþurrð varð á bátamiðum fyrir Norðausturlandi, að því er menn þá töldu og sennilega með réttu, fyrst og fremst sökum sérstaks ágangs af hálfu breskra togara á þeirri fiskislóð einmitt í þann mund. Friðun þessara miða kom aftur til seinna, að loknum þeim átökum, en bættist þá ofan á.
Það kom til kasta þm. kjördæmisins að stuðla að því, að leitað yrði einhverra ráða til þess að útvega þeim Þórshafnarbúum skuttogara, skip sem gæti sótt fisk á fjarlægari mið til vinnslu í þessu frystihúsi. Svo sem ég áður gat hafði þá fyrir skemmstu verið skotið loku rétt við nef þeirra Þórshafnarbúa fyrir útvegun á nýju skipi, góðu skipi til þess að annast slík aðföng. Það varð svo ofan á, að þeim var boðið skip fornt — svo að ég noti nú ekki alla ljóðlínu Stephans G. Stephanssonar um búnað Hergilseyjarbónda — af Suðurnesjum sem þá var til sölu vegna vanskila við banka. Þetta skip átti að vera nýkomið úr átta ára klössun, en þó var ljóst ýmsum, sem til þekktu, að það væri ekki vel búið til sjósóknar eða fisköflunar. Það skal tekið fram, að þeim Þórshafnarmönnum var gerð grein fyrir því að ekki væri þessi skeið hin ákjósanlegasta í því standi sem hún var seld þeim. En þeir áttu ekki annarra kosta völ en að kaupa þetta skip og gerðu það, og það reyndist þeim vægast sagt mjög illa. Og til þeirra kaupa og útgerðar á þessu óhæfilega skipi, sem þeim var sent úr þrotabúi á Suðurnesjum, getum við rakið að verulegu leyti hina gildustu og hina verstu þætti í efnahagsmálavanda þessa byggðarlags við Þistilfjörð.
Þegar við þm. kjördæmisins, svo sem hv. þm. Lárus Jónsson gerði grein fyrir í glöggu yfirliti sínu áðan, skrifuðum undir bréf til hæstv. forsrh. með þeirri ósk, að þeim á Þórshöfn yrði séð fyrir hæfilegu togskipi, þá var það — svo sem ráða má af skipinu sem við nafngreindum í þessu bréfi — ætlun okkar að útvega þeim duglegt skip til þessarar útgerðar, annaðhvort þetta nafngreinda skip af Vestfjörðum, sem okkur var kunnugt um að væri í mjög góðu standi, ellegar samsvarandi skip erlendis frá, ekki verra. Ég tel nauðsynlegt að taka að tarna fram við þessar umræður vegna þess að mér er kunnugt um það, að við umræður um skipakaup til handa þeim Þistilfirðingum bar enn á góma þann möguleika að skaffa þeim togara hér af Faxaflóasvæðinu, nánar tiltekið frá Hafnarfirði. Fyrsta hugmyndin var sú, að þetta yrði togarinn Rán sem kominn var, eins og það er orðað á alþýðumáli, í hönk til útgerðar, eigandi var í vandræðum með. En að fengnum þeim svörum að sennilega væri Rán ekki glæsilegri kostur en togarinn Suðurnes á sínum tíma, sem kallaður var Fonturinn, var boðið annað skip, einnig í eigu þessa sama manns, togarinn Ýmir.
Ég vil ekki leiða neinum getum að því, hverjir það hafi verið sem hafi staðið á bak við þessi kauptilboð sunnan úr Hafnarfirði, til þess hef ég enga heimild. Og grunsemdir mínar er best að láta bíða þess tíma að við fáum gleggri upplýsingar um mál þetta allt. En gjarnan vildi ég að hæstv. forsrh. — ef hann lætur athuga lítils háttar þetta mál fyrir okkur — upplýsti hvaða aðili það var sem kom inn til Framkvæmdastofnunar með tilboð um að nú yrði Þórshafnarbúum skaffaður enn einn togari sunnan af Nesjum, togarinn Ýmir.
Ég vil til viðbótar því, sem hv. þm. Lárus Jónsson sagði um tilorðningu þessa bréfs okkar þm. og þann brest sem á því var að okkur væri séð fyrir upplýsingum varðandi þróun málsins, geta þess, að ég gerði tilraun til að afla mér upplýsinga um það á miðju sumri er leið, hvernig þetta mál stæði, og fékk þá heldur óljós svör um ástæðuna fyrir því að nú væri hætt athugun á að kaupa skip sem okkur var kunnugt um að boðin höfðu verið, þ. á m. franskur togari, systurskip Hólmatinds sem hingað var keyptur. Og ég vil leyfa mér, þar sem hv. þm. Árni Gunnarsson er nú sennilega tepptur við umræður um sams konar mál í Nd., að geta þess, að mér er persónulega kunnugt um og ég get vottað það, að einnig hann reyndi að afla sér upplýsinga, gerði tilraun til að fá að fylgjast með þessu máli á miðju sumri og koma þar að tómum kofunum eða a.m.k. ekki að auðfengnum upplýsingum varðandi þetta mál.
Af sömu ástæðum og hv. þm. Lárus Jónsson er ég mjög eindregið þeirrar skoðunar, að nú um áramótin, þegar þessi mál bar upp á að nýju, eða öllu heldur í janúarbyrjun, þá hafi verið orðið og seint að snúa frá kaupunum á skipi því sem hér um ræðir, að við höfum ekki átt annarra kosta völ núna á þessum dögum en að sjá til þess að skipið yrði keypt. Ég vil m.a. geta þess, að mjög sterkar líkur benda til að opinberir aðilar á Íslandi — hvaða nöfnum sem við viljum nú nefna þá — hafi verið bundnir í 300 millj. gkr. ábyrgð í sambandi við samninga sem þegar höfðu verið gerðir. Og ef þessum kaupum hefði verið rift, þá hefði líklega ríkisstj. — það er nú sennilegasta tilgáta mín — setið uppi með 300 millj. kr. fjárútlát vegna skaðabóta, verið sökuð um riftun á kaupsamningi, og þetta byggðartag okkar við Þistilfjörð setið eftir með sitt sára enni og ekkert skip fremur enn fyrri daginn.
Það var í umræðum hér á þingi fyrir jólin í vetur, og hefur verið gert síðan, frjálslega farið með undirskrift okkar þm. Norðurl. e., flestra okkar a.m.k., sem höfum ekki staðfest neinar breytingar á því sem á bréfinu stóð, — það var frjálslega með þetta bréf farið þegar verið var að túlka það sem afstöðu okkar til kaupa á hvaða skipi sem væri. Ég sá mig tilneyddan að andmæla því sem þá kom fram opinberlega hér í þingsölum og í dagblöðum. Merking bréfsins er augljós. Hún verður ekki túlkuð á annan veg en þar stendur svart á hvítu.
Af því að hv. þm. Kjartan Jóhannsson vék að ummælum, sem eftir mér voru höfð í Þjóðviljanum í dag varðandi meðferð þessa máls, vil ég geta þess, að einnig þar, í þessari Þjóðviljafrásögn, er dálítið frjálslega farið með orð mín og ég skal segja hv. þm. með hvaða hætti. Þetta viðtal var tekið við mig daginn sem stjórn Framkvæmdastofnunar gerði hina fyrri samþykkt sína, sem upp á það hljóðaði að axla þetta mál — eða gera tilraun til þess að axla þetta mál fram af sér og sjá ekki fyrir þeirri fjármögnun sem nauðsynleg var til að ná skipinu. Það var fyrst og fremst það sem ég átti við þegar ég svaraði þeirri spurningu blaðamanns, hvort ég væri einn af þeim sem Sverrir Hermannsson vildi leysa ofan um. Við þá afgreiðslu átti ég þar. Þegar stjórn Framkvæmdastofnunar undir forstjórn Sverris Hermannssonar hefur breytt þessari afgreiðslu, þá vil ég láta það koma ljóst fram, að nú er ég einn af þeim sem vilja hneppa upp um Sverri Hermannsson aftur.
Ef hv. þm. Kjartan Jóhannsson ímyndar sér það, að hag þessarar þjóðar sé stefnt í voða með því að sjá þessum tveimur sjávarplássum á Norðausturlandi fyrir góðu togskipi upp á 3,5 milljarða kr. í hæsta lagi, fullbúnu til veiða, þá bið ég hann að huga vendilega að því í anda fræðilegrar sjálfsgagnrýni, hvaða stoð efnahag landsins hafi verið að kaupunum á togurunum þremur, sem ég hef nafngreint af Suðurnesjum í þessu sambandi, Suðurnesjum, sem skírður var Fonturinn á sínum tíma, síðan Rán og Ými. Og af því að hann minntist lítillega á 700 millj., sem merktar hefðu verið íslenskri skipasmíði í þessu sambandi — ég læt bíða síðari tíma og heppilegri salarkynna að ræða þetta mál við hæstv. iðnrh., Hjörleif Guttormsson, — en af því að hann drap á þessar 700 millj., sem teknar væru frá íslenskri skipasmíði til þess arna, þá vil ég vekja athygli hans á því, að það er sennilegt að u.þ.b. 500 af þessum 700 millj. renni til íslenska skipasmíðaiðnaðarins, þar sem upp á þá summu hljóðar tilboðið frá Slippstöðinni á Akureyri um nauðsynlegar breytingar á vinnudekki þessa togara.
Það eru mörg atriði í sambandi við síðara skeið þessara togarakaupamála, verðmyndun togarans, sem við getum deilt ákaflega lengi og sennilega verða í munni manna á komandi mánuðum meira og minna. Ég vitna enn til bréfs okkar þm. varðandi það sem sagt hefur verið um meðferð málsins utan okkar vitundar. Ég vitna til þess, þegar ég set hér fram efasemdir mínar um það, hvort haldið hafi verið á öllu á hinn allra heppilegasta hátt.
Ég vænti þess að hæstv. forsrh. muni nú sjá til þess, að við þurfum ekki að fara í grafgötur um það, hvaða opinber aðili það var sem lét hjá líða að fylgjast með framgangi málsins, með skipakaupunum, — hvaða aðili það var, hvort það var ríkisstj. eða Framkvæmdastofnun sem falið var að sjá um þetta mál — hvaða aðili það var, sem kom sér hjá því að setja sérfræðing sinn og umboðsmann í það að fylgjast með framgangi málsins. Þetta þyrftum við endilega að fá að vita. Og svo væri náttúrlega síðast, en ekki síst forvitnilegt, ákaflega forvitnilegt, en skiptir þó ekki sköpum, að fá úr því skorið, hvaða maður það var sem kom inn á fund Framkvæmdastofnunar með þau skilaboð sem hæstv. sjútvrh. Steingrímur Hermannsson segir að hafi ekki verið frá sér, — skilaboð um að ríkisstj. mæltist til þess að Framkvæmdastofnun gengi frá málinu. Allt þetta vekur fremur forvitni á þessu stigi en að það skipti meginmáli. Þessi ákvörðun hefur verið tekin, að togarinn skuli verða keyptur með þessum hætti, og feginn er ég.