18.02.1981
Neðri deild: 54. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2384 í B-deild Alþingistíðinda. (2562)

Umræður utan dagskrár

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Það er mikið talað um þetta mál, sem eðlilegt er, en líklega hefði verið réttast og eðlilegast að hér í sölum Alþingis hefðu alþm. staðið upp og haft dauðaþögn í svo sem 1– 2 mínútur í tilefni dagsins. Það kemur í ljós í þessu máli, eins og reyndar var vitað og hefur verið einkenni umræðna um þetta mál að undanförnu, ekki síst í sölum Alþingis, að talsvert ber á milli stjórnvalda í þessum efnum og má sjá þess glögg merki í dagblöðum bæjarins í dag. Þar á meðal hlýtur eitt að láta kynlega í eyrum. Einn af stjórnarmönnum Framkvæmdastofnunar leggur megináherslu á að hinn 4. júlí 1980, þegar ályktun er samþykkt í stjórn Framkvæmdastofnunar, sé lögð áhersla — í niðurlagi þeirrar ályktunar — á að ekki sé verið að samþykkja lánveitingar til viðkomandi togara. Þessi setning finnst hins vegar ekki í fórum hæstv. ráðh. og annaðhvort hefur hún verið strikuð út á leiðinni til hæstv. ráðh. eða hún hefur aldrei komist í það bréf sem til hæstv. ráðh. gekk. Á þessu hlýtur að finnast einhver skýring og ég er ekki ánægður fyrr en ég veit hvernig á því stendur. (Sjútvrh.: Vill þm. ekki fá þetta lánað?) Ég rengi ekki hæstv. ráðh., en það getur ekki komið heim og saman að hér komi stjórnarmaður úr Framkvæmdastofnuninni og lesi upp ályktun sem er lengri en sú, sem kemur fram í bréfi sem hæstv. ráðh. hefur undir höndum, og gerbreytir merkingu og niðurstöðu ályktunarinnar. Þetta þarf að fást skýrt fram, og það er þess vegna að vonum sem nokkrir þm. hafa farið fram á ítarlegri skýrslu um þetta mál.

Þá vekur það jafnframt athygli, að enginn virðist bera ábyrgð á eftirliti með breytingum um borð í togaranum né heldur hefur komið fram neitt um hver það er sem tekur endanlega ákvörðun um að þessi tiltekni togari skuli keyptur og þessar breytingar skuli gerðar á honum. Það hefur jafnframt komið í ljós, að Fiskveiðasjóður, sem venjulega annast slíkt eftirlit, hefur ekki með það að gera.

Þá hefur það ekki upplýsts hér í umr. heldur, og væri gott að það fengist upplýst síðar ef hægt er að ná höndum á því máli, hve mikið útgerðin eigi að greiða af brúttóaflaverðmæti skipsins vegna hinna óheyrilega háu lána sem hún hlýtur að taka. Jafnframt kemur í ljós að engin rekstraráætlun liggur fyrir, en tölur, sem á sveimi eru, segja að um 400 millj. gkr. megi gera ráð fyrir að rekstrartapið verði á ársgrundvelli. Þetta bætist við þær upphæðir sem hér er verið að fjalla um — og hver skyldi eiga að greiða þær upphæðir? Auðvitað lendir það á skattborgurum þessa lands eða a.m.k. um stundarsakir á Byggðasjóði. Rifja ég upp í því sambandi það sem flestir vita um hvernig útgerð hefur gengið á þessu landshorni, sem annars er alls góðs maklegt, að auðvitað hefur útgerð, t.d. á Raufarhöfn, útgerð Rauðanúps svo að ég taki dæmi, notið meiri fyrirgreiðslu úr Byggðasjóði og frá Framkvæmdastofnun en útgerð í landinu yfirleitt.

Það er ástæða til að fjalla ítarlega um kaupverð togarans. Auðvitað hlýtur það að vera markmið að nota sem ódýrust framleiðslutæki til að ná sem mestu aflamagni. Það gefur auga leið. En það er ekki aðeins kaupverð togarans sem vekur athygli í þessu máli, heldur kannske það kaupverð sem sett er á ákveðna þm. í þessu máli. Það kemur nefnilega í ljós, að hæstv. ríkisstj., sem nú starfar í landinu, verður að kaupa atkv. þm. í þessu máli eins og sumum öðrum málum. Gervasonimálið var leyst með einum kaffibolla heima hjá forsrh. 1500 millj. runnu til ákveðins þm. vegna sælgætisgjalds, sem hann var á móti, en varð að greiða atkv. með og greitt var fyrir. Þessar 1500 millj. hafa nú verið rýrðar með því að færa úr dálki viðkomandi þm. yfir í dálk annars þm. sem er líka óþægur þessari ríkisstj. Þarna fór á milli dálka í bókhaldi ríkisstj. Og hverju var síðan fórnað í þessu máli öllu saman öðru en íslenskum iðnaði! Þetta er saga málsins, sem snýr að almenningi þessarar þjóðar, og sú saga sem við skráum hér frá degi til dags og rýrir því miður virðingu þessarar hæstv. stofnunar.

Ég hef áður í umr. um þetta mál lagt á það ríka áherslu að birt verði öll skjöl málsins. Ég hef þess vegna skrifað undir þá beiðni sem hér hefur komið frá öðrum þm. um þetta mál. Það er kominn tími til að sjá hvernig Heródesar og Pílatusar þessa lands hafa hent þessu máli á milli sín.

Byggðastefna er hugtak sem engum hefur tekist að skýra enn þá til hlítar í þessu landi, en það liggur fyrir, sem því miður hefur allt of lítið verið rætt í þessum umr., að það er ákveðin deild hjá Framkvæmdastofnun ríkisins sem auðvitað á upphaf þessa máls. Það er byggðadeild Framkvæmdastofnunar. Það á auðvitað að heimta skýr svör af þessari deild um á hvaða forsendum hún starfar, á hvaða pólitískum forsendum hún tekur sínar ákvarðanir og um þau viðhorf sem hún sendir til stjórnar Framkvæmdastofnunar og öll þessi mál eru byggð á. Þetta eiga alþm. auðvitað kröfu á að vita. Þetta kemur væntanlega fram í þeirri skýrslu sem Matthías Á. Mathiesen og fleiri þm. hafa beðið um. Mér segir svo hugur um, að þegar á þá skýrslu verður litið verði hún ýmsum til skammar, en styðji það, sem ég held að margir þm. séu betur og betur að átta sig á, að það er e.t.v. kominn tími til að leggja ákveðna stofnun niður í þessu landi og þar á ég við Framkvæmdastofnun ríkisins. Það þarf að skera upp ýmsar deildir sem þar lifa sjálfstæðu lifi og einbeita sér að því í þessu landi að gefa fólki kost á að vinna við arðbærari atvinnurekstur en þann sem gerður er út á sjóði landsmanna.