18.02.1981
Neðri deild: 54. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2387 í B-deild Alþingistíðinda. (2564)
Umræður utan dagskrár
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Það má nú segja að öll umr. um þetta mál hér, og ekki síður í fjölmiðlum að undanförnu, hafi verið með hinum furðulegasta hætti. Tilgangurinn með allri þessari umræðu er líka allt annar en að ræða um togarakaup á Þórshöfn og Raufarhöfn. Það eru uppi átök um byggðamál, — átök um hvernig eigi í sjálfu sér í framtíðinni að stjórna Framkvæmdastofnun ríkisins og því fjármagni sem þar er. Ég minni á að fyrsta frv. um Framkvæmdastofnun, sem hét þá um Byggðajafnvægisstofnun ríkisins, var flutt fyrir 1969 og 1. flm. þess var Gísli heitinn Guðmundsson. Til hvers átti þessi stofnun að vera og til hvers er Framkvæmdastofnun í hugum fólksins í landinu? Hún er til þess að viðhalda byggð í landinu.
Hv. þm. Friðrik Sophusson spurði að því, hvers vegna byggðadeildin væri þarna og undir hvaða lögum eða reglum hún starfaði. (FrS: Ég spurði ekki að því.) Hann spurði að því. En hvernig er 8. gr.? (FrS: Ég spurði ekki að því.) „Deildin gerir áætlanir um þróun byggða og atvinnulíf víðs vegar um land með það fyrir augum að skapa landsmönnum öllum fulla atvinnu og eðlileg lífsskilyrði og stuðla að heilbrigðri byggðaþróun.“ Þetta á hún að gera. Það er að heyra á ýmsum þm. og fjölmiðlum að þeir geri sér alls ekki grein fyrir því, til hvers þessi stofnun er.
Ég sé ástæðu til þess að þakka úr þessum ræðustól byggðadeildinni fyrir sín störf, bæði að þessu máli og ýmsum öðrum, því að forstöðumaður þeirra deildar stendur undir nafni þó að sumir geri það ekki.
Það hefur verið rætt mikið um þetta mál. Menn eru að tala um upphaf þessa máls. Upphaf þessa máls er það, að einhvern tíma rétt eftir 1970 er þáltill. flutt í framhaldi af þeirri lagasetningu, sem ég vitnaði í. Hún var samþ. á hv. Alþingi. Þál. var um áætlun um byggðaþróun í Norður-Þingeyjarsýslu. Frá áætlun þeirri var gengið 1976. Undir eftirliti Framkvæmdastofnunar ríkisins var byrjað að byggja hraðfrystihús á Þórshöfn 1973. Það var vel að því staðið, bæði af Framkvæmdastofnuninni og af heimamönnum. Þegar frystihúsbyggingin hófst var bátaaflinn á Þórshöfn á fjórða þúsund tonn, en þegar verkinu var lokið 1976 var bátaaflinn kominn niður fyrir 1000 tonn. Þá var bátaaflinn á þessum stað kominn niður fyrir 1000 tonn á ári úr 3000.
Hv. þm. Halldór Blöndal sagði, að hann hefði viljað leysa þetta með bátum, og það hefði sjálfsagt verið skynsamleg leið ef það hefði verið áhugi á því. Það var reynt af Framkvæmdastofnuninni á s.l. ári, en þá reyndist sú leið ekki fær. Það veit hv. þm. Ég skal fá það staðfest. (Forseti hringir.)
Ræðutími minn er nú búinn. Ég hefði viljað segja margt um þetta mál. (Forseti: Það verður framhaldsumræða um málið.) Því miður verð ég að láta hér staðar numið. En ég verð að segja að það er alltaf spurning um hvað er dýrt og hvað er ekki dýrt. Þegar menn eru að tala um dýrt skip og ódýrt skip verður að gera greinarmun á því, hvort það er gamalt skip eða nýtt, hvernig það er búið o.s.frv.