19.02.1981
Efri deild: 54. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2395 í B-deild Alþingistíðinda. (2572)
Umræður utan dagskrár
Guðmundur Bjarnason:
Herra forseti. Það er ekki ofsögum sagt, að margt furðulegt hefur fram komið í þessum umræðum hér um það mál sem nú er á dagskrá. Ég kallaði í gær þessar umræður storm, og ég tel að það hafi nánast verið þyrlað upp moldviðri í þessum stormi og það moldviðri eingöngu ætlað til þess að koma í veg fyrir lausn á erfiðu atvinnuástandi byggða á Norðausturlandinu. Menn kveðja sér hljóðs utan dagskrár til að velta sér upp úr þessu máli. Það er kallað hið versta mál, það er talað um óþef af málinu, það er kallað ógott mál, það er sagt að það sé smánarblettur á Alþingi. Er það smánarblettur þegar alþm. og ráðherrar reyna að ráða bót á atvinnuástandi hinna ýmsu byggða um allt land? Og svo er talað um virðingu Alþingis. Mér finnst nær að kalla þessar umræður smánarblett og fyrir neðan virðingu Alþingis.
Ég hefði skilið hv. 2. þm. Reykn., Kjartan Jóhannsson, hefði hann kvatt sér hljóðs utan dagskrár og rætt um afleiðingar þess óveðurs, sem blés yfir landið nú í vikunni, og hvernig bæta mætti það eignatjón sem fólk hefur orðið fyrir og ekki síst í hans kjördæmi.
Ég hefði einnig skilið hv. 5. þm. Vesturl., Eið Guðnason, hefði hann kvatt sé hljóðs utan dagskrár t.d. út af fyrirsögn sem birtist í Dagblaðinu í gær og fjallar um strand Heimaeyjar og hljóðar svo: „Ekki talin ástæða til að þiggja aðstoð varðskips“ — ekki vegna þess að ég telji að það mál sé honum neitt sérstaklega skylt, heldur nefni ég það aðeins sem dæmi af því að ég veit að maðurinn er glöggur og fylgist vel með. Þess vegna hefði mig ekki undrað það, þó að hann hefði rætt um slíkt mál utan dagskrár. Ég tel það vera mál sem þyrfti athugunar við, og mér finnst furðu sæta að ekki skuli vera talin ástæða til þess að þiggja aðstoð varðskips til að bjarga verðmætum og mannslífum.
Ég hefði einnig skilið hv. 3 landsk. þm., Karl Steinar Guðnason, hefði hann kvatt sér hljóðs utan dagskrár og rætt um atvinnuástandið í Keflavík. Ég skal líka lýsa því yfir, að ég er reiðubúinn að styðja þá hv. þm. Reykn. við að bæta atvinnuástand í þeirra kjördæmi. Ég er að vísu ekki fáanlegur til þess að leggjast á bæn og biðja til guðs um að aukin verði hernaðarumsvifin á því svæði. En ég skal gjarnan styðja allar raunhæfar aðgerðir til úrbóta í atvinnumálum þar.
Ég hef nokkrar og reyndar miklar áhyggjur af atvinnuástandi í mínu kjördæmi, Norðurlandskjördæmi eystra, og tel það hlutverk mitt sem þm. þess kjördæmis að reyna að bæta úr því eigi ég þess kost. Tölur um atvinnuleysisskráningu nú í janúar sýndu að ástandið var kannske einna verst einmitt þar. Það var mjög slæmt bæði á Akureyri og Húsavík, og nú eru uppi hugmyndir um það á Akureyri að leggja niður starfsemi skóverksmiðjunnar Iðunnar, svo að ég nefni dæmi. Þar vinna um 50 manns sem þá verða atvinnulausir. Ég hef áhyggjur af þessu og ég vona að hv. þm. annarra kjördæma styðji drengilega við bakið á okkur í þeirri baráttu sem við þurfum að heyja til þess að efla og treysta atvinnulíf þar. (EgJ: Það verður að vera gagnkvæmt.) Ég tók það líka fram, að ég væri reiðubúinn að styðja það í öðrum kjördæmum. Ég vona að sú aðstoð verði samt ekki fólgin í því að endurtaka söguna um gamalt skip sem stöðugt var að bila og kostaði óhemjufjármagn að gera út. Hv. þm. Stefán Jónsson gerði reyndar grein fyrir þeirri sögu áðan og það er svo sem ekki ástæða til þess að fara nánar út í það. Þó vil ég minna á að hv. þm. Karl Steinar Guðnason gat um það í umræðum í gær, að það hefði þurft að skipta um vélstjóra á Fontinum nokkuð oft. Hann hlýtur að vita það eins og allir aðrir, sem eitthvað fylgjast með útgerð, að það er erfiðara að halda góðum mönnum á gömlum og lélegum skipum, sem sífellt eru að bila, heldur en á nýjum og fullkomnum skipum. Og það gefur þá líka þessum nýju og fullkomnu skipum betri möguleika, þegar þau fá betri áhöfn.
Nýjum eigendum hefur að sjálfsögðu gengið betur að reka það skip, vegna þess að þegar þeir tóku við því var búið að vinna á því margar endurbætur og framkvæma með ærnum kostnaði. Leiddi sá kostnaður auðvitað af sér mikla erfiðleika fyrir útgerðarfélagið á Þórshöfn á þeim tíma. En nýir aðilar taka við því skipi í allt öðru ástandi og á öðrum fjárhagslegum grundvelli. Nú er um það að ræða að útvega Útgerðarfélagi Norður-Þingeyinga, sem stofnað er til af einstaklingum og fyrirtækjum í fjórum sveitarfélögum, Þórshöfn, Raufarhöfn, Sauðaneshreppi og Svalbarðshreppi, nýtt og gott skip. Jafnvel hafa verið hugmyndir um að fimmta sveitarfélagið kæmi þarna inn í, að Presthólahreppur og Kópasker gætu gerst eigendur eða aðilar að þessu félagi, þó að ekki sé nú fullrætt um það mál. Þetta útgerðarfélag ætlar síðan að reka þetta skip í samstarfi við annað skip, þ.e. Rauðanúp á Raufarhöfn. Þarna á að miðla hráefni af tveimur skipum milli tveggja frystihúsa og hugsanlega síðar jafnvel til Kópaskers. (Gripið fram í.) Það er alveg ljóst, að það á að miðla milli tveggja frystihúsa af þessum tveimur skipum, það er hv. 3. landsk. þm. fullkunnugt um. Hv. þm. Sverrir Hermannsson hefur líka sagt það á fundum í Framkvæmdastofnuninni — og hann er vel kunnugur útgerðarmálum — að það sé eins erfitt og óhagkvæmt að reka eitt skip eins og það sé hagkvæmt og skynsamlegt að reka eða gera út tvö skip sameiginlega. Hér er ekki verið að tala um að kaupa skip fyrir þess 500 íbúa eða tæplega 500 íbúa sem á Þórshöfn búa, ekki fyrir þá eina, heldur fyrir miklu stærra svæði og miklu fleira fólk. En þess eru dæmi, að til sé ekki einn, heldur tveir togarar í sveitarfélögum sem eru minni og fámennari en byggðarlagið á Þórshöfn eitt sér. Hér er því að mínu mati verið að reyna að standa skynsamlega að málum, en ekki óskynsamlega.
Hér hefur verið gerður samanburður á atvinnuleysi staða. Ég ætla svo sem ekki að rifja það upp frekar, en ég vil aðeins benda á að atvinnuleysisskráning segir ekki ævinlega til um atvinnuleysi og á það við jafnt þarna austur frá og annars staðar. Og ég vil benda á það í viðbót, að á þessu svæði er dulið atvinnuleysi í sveitum sem ekki á kannske hliðstæðu í Hafnarfirði eða í Keflavík. Það er verið að reyna að draga úr landbúnaðarframleiðslu, sem hefur í för með sér að það minnkar um atvinnuna í sveitunum og sveitafólkið í nágrannabyggðum við Þórshöfn á auðvelt með að sækja þangað vinnu, og það atvinnuleysi, sem þar er dulið, er hvergi á skrá.
Þetta skip er kallað dýrt og talað um að ekki sé hægt að reka það vegna þess hversu dýrt það sé, reyndar allt of dýrt, að sagt er. Hér er um að ræða fullkomið og vandað skip sem er talið kosta 3–3.5 milljarða gkr. En hvaða orð ná þá yfir skip sem kosta 5–6 milljarða gkr.? Hvaða kostnaðarhugtök eiga menn yfir það og hver er rekstrargrundvöllur þeirra skipa? Auðvitað er erfitt að gera út öll þessi skip og á það var bent í umræðunum í gær, þar er kannske stærsta vandamálið. Það á ekki við um þetta eina skip, því miður.
Hv. 5. þm. Vesturlands., Eiður Guðnason, gerði úr því mikið mál í umræðunum í gær, að hæstv. forsrh. taldi að hér hefðu verið gerð mistök og e.t.v. hafi vantað opinbert eftirlit. Þetta hafa reyndar fleiri ráðherrar sagt og e.t.v. hefði átt að setja hámark á kaupverð þessa skips. Ég get ekki séð að það sé neinum til minnkunar að viðurkenna mistök telji hann sig hafa gert mistök. Ég er hins vegar ekki alveg sannfærður um eða sammála því, að þarna hafi mistök átt sér stað. En hafi svo verið, þá verða mistök aldrei tekin til baka. Menn geta lært af mistökum og eiga að gera það, en menn geta ekki dregið þau til baka. Víxillinn, sem lagt var af stað með í fyrrasumar til þessara skipakaupa, var gefinn út af stjórnvöldum í haust, bæði af ríkisstj. og stjórn Framkvæmdastofnunar, og ég tel að því sé ekki hægt að breyta. Þá var auðvitað hægt að neita útgáfu víxilsins og segja: Víxillinn er of hár, það verður að lækka upphæðina. En þegar búið er að gefa víxilinn út verður því ekki breytt, það hljóta allir menn að vita.
Ég vil að lokum taka undir það sem hv. þm. Lárus Jónsson sagði í upphafi ræðu sinnar áðan, að það er rétt, að ekkert formlegt samráð var haft við þm. kjördæmisins frá því að þeir skrifuðu bréf sitt 12. maí 1980 þar til nú 28. jan. 1981. Og það, sem ég sagði hér í umræðunum í gær, var aðeins að ég hefði reynt að fylgjast með málinu og átta mig á því, hvað var að gerast á hverjum tíma, á þeim upphæðum, sem verið var að ræða um á hverjum tíma og ég ræddi um í gær og ætla ekki að endurtaka. En ég vil aðeins staðfesta að það er rétt hjá honum og þeim þm. öðrum úr kjördæminu, sem um það hafa rætt, að ekkert formlegt samráð var haft og við héldum engan formlegan fund um málið á þessum tíma.
Ég vil svo aðeins að lokum, herra forseti, endurtaka orð mín frá því í gær, að ég vona að þetta mál sé afgreitt, ég vona að það fái farsælan endi, þennan storm fari að lægja og Alþingi geti snúið sér að öðrum verkefnum sem fremur séu virðingu þess samboðin.