19.02.1981
Efri deild: 54. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2399 í B-deild Alþingistíðinda. (2574)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Út af ummælum hv. síðasta ræðumanns um það, að forseti taki þetta mál á dagskrá, þá vil ég taka það fram, að forseti gerir það ef það ber formlega að til þess að taka það á dagskrá. Forseti getur ekki tekið það öðruvísi á dagskrá. En ég minni á það, að þetta mál hlýtur að verða til frekari umræðu í þinginu, því að hv. 5. þm. Vesturl. ásamt níu öðrum þm. hefur borið fram beiðni til forsrh. um að gefa skýrslu um málið. (KJ: Herra forseti. Ég óska hér með formlega eftir því að fá að taka til máls utan dagskrár við fyrstu hentugleika um afleiðingar ofsaveðursins, sem hér hefur gengið yfir og hefur gefið tilefni til að umræður fari fram.) Já, það hefur ekki verið venja að hafna því að taka mál fyrir utan dagskrár. Ég hef ekki heyrt þessa ósk fyrr en nú. (KJ: Hún var borin fram í gær.) Mér hefur láðst að taka eftir því, en auðvitað verður það tekið til athugunar. En við erum núna með umr. utan dagskrár um annað efni. Ég hygg að þetta verði ekkert vandamál.