19.02.1981
Efri deild: 54. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2400 í B-deild Alþingistíðinda. (2577)
Umræður utan dagskrár
Salome Þorkelsdóttir:
Herra forseti. Hér er furðulegt mál á döfinni, og það er dapurlegt að þurfa að sitja hér á hv. Alþingi og hlusta á slíkar umræður sem þetta mál hefur þróast í. Mér finnst vera á döfinni mál sem varðar byggðastefnu og atvinnuuppbyggingu í landinu. Og ég geri ráð fyrir að allir séu sammála um að atvinnuuppbygging í hinum ýmsu landshlutum sé forsenda byggðastefnunnar. En forsenda atvinnuuppbyggingar hlýtur að vera það stórátak sem gera þarf í samgöngumálum hringinn í kringum landið.
Mér skilst að þetta mál sé ekki eina málið sinnar tegundar, þ.e. að farið er út í vafasama fjárfestingu sem fyrir fram er vitað að getur á engan hátt borið sig. Manni kemur óneitanlega í hug að vandamálið sé hreint ekki leyst þó að þessi togari komi til landsins. En hv. þm. Guðmundur Bjarnason hefur engar áhyggjur af því. Hann þekkir þetta að sjálfsögðu betur en ég, en ég hef hins vegar áhyggjur af því, hvert framhaldið verður. Ég hef ekki orðið vör við að það sé neitt framlag frá heimamönnum í þessari fjárfestingu. Kannske er ekki ástæða til að spyrja neitt um það, en ég hef áhyggjur af því, hvernig verður staðið að rekstrinum, hvernig menn ætla að greiða af lánum. Hér er spurning um að standa þannig að málum, hvar sem er á landinu, að hagkvæmni sé gætt. Það er enginn vandi að leysa mál ef nægilegt fjármagn er fyrir hendi, en mér hefur virst að hv. Alþingi hafi orðið að horfa í smærri fjárhæðir og velta fyrir sér smærri fjárhæðum en 3 milljörðum þegar verið er að skipta kökunni hverju sinni. Og ég sé ekki að það sé nokkur afsökun að tala um að þetta sé ekkert betra hjá öðrum. Þegar mistök eiga sér stað annars staðar eru þau til að læra af þeim, en ekki til að taka þau til fyrirmyndar.