19.02.1981
Efri deild: 54. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2402 í B-deild Alþingistíðinda. (2580)

Umræður utan dagskrár

Guðmundur Bjarnason:

Herra forseti. Ég skal reyna að bregðast ekki trausti því sem mér er sýnt og tala stutt, ég hef tvisvar talað áður í umr. Það er aðeins út af því sem beint hefur verið til mín hér af hv. þm. sem hér hafa talað síðast.

Ég skal fúslega játa mistök mín í því að ýfa hér upp viðkvæm sorgarmál, og ég tek undir það, að hér er um hörmulegan og hryggilegan atburð að ræða sem ekki hefði átt að leiða hér inn í umr. Það var reyndar ekki það sem ég ætlaði — ekki þessi hryggilegi atburður sem slíkur, sem ég ætlaði að taka hér inn í umr., heldur það mál, og það er reyndar ekki nýtt að skip í nauðum vilji ekki leita aðstoðar varðskips. Og ég tók það aðeins sem dæmi um mái sem eru í umræðu hverju sinni og oft eru gripin inn í umræður á Alþingi utan dagskrár, þeir atburðir sem eru að gerast í þjóðfélaginu hverju sinni. Sama má segja um veðurofsann og þær afleiðingar og eignatjón sem af honum leiddi. Ég nefndi þetta aðeins sem eitt dæmi í því sambandi, en ekki það að ég vildi fara að leiða hér inn í umr. þennan sérstaka sorglega atburð sem varð við strandið á m/b Heimaey.

Ég get tekið undir það með hv. 9. landsk. þm., Guðmundi Karlssyni, að það er sjálfsagt að bíða eftir því hvað kemur út úr rannsókn þessa máls, og sé ástæða til, þá að taka það hér til umræðu. En það var aðeins hitt atriðið, sem ég tel ástæðu til, að hér sé athugað og rætt um hvernig stendur á því að skip, sem eru í nauðum, leita ekki aðstoðar varðskips og jafnvel síður en til annarra skipa.

Ég vil líka taka undir flest af því sem fram kom í ummælum hv. 4. landsk. þm., Salome Þorkelsdóttur, um það, að við þurfum að sjálfsögðu að hafa áhyggjur af framhaldi þessa máls og allra annarra hliðstæðra mála, — mála er varða rekstrarafkomu togaraútgerðar í landinu. En ég gat um að mér fyndist það sérstakt og dálítið einkennandi við þessar umræður, hvað menn höfðu miklar áhyggjur af þessu einstaka máli, en ekki af vandanum í heild sinni. Ég held að ég hafi ekki beinlínis réttlætt þetta mál með því að það væri ekki betra hjá öðrum og því gætum við eða réttara sagt þeir á Þórshöfn verið í sömu súpunni. En það, sem ég meina með því, hafi ég sagt eitthvað í þessa átt, er að ég tel að þeir eigi rétt á útgerð á þennan hátt, að fá að eiga og reka togara til að treysta sitt atvinnulíf, ekkert síður en önnur byggðarlög, önnur sjávarpláss um land allt.