19.02.1981
Efri deild: 54. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2414 í B-deild Alþingistíðinda. (2589)

Umræður utan dagskrár

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Hér hefur verið hreyft miklum vanda sem stafar af óveðrinu sem geisaði s.l. mánudagskvöld og aðfaranótt þriðjudags. Það er ekki að ófyrirsynju að því máli er hreyft hér, vegna þess að það er augljóst að orðið hefur gífurlega mikið tjón sem kemur mjög illa við fjölda fólks víðs vegar um landið. Það er enn fremur svo, að ekki eru fyrir hendi möguleikar á því að þetta tjón verði bætt af tryggingarfé eða með því að veita fé frá Viðlagatryggingu eða Bjargráðasjóði. Það er ekki hægt að veita fé frá Viðlagatryggingu vegna þess að samkv. lögum um Viðlagatryggingu Íslands tekur sú trygging, sem þar er um að ræða, ekki til þess að skaða sem varð í þessu ofviðri. Það er ekki heldur möguleiki eins og stendur að Bjargráðasjóður geti bætt mönnum það tjón sem þeir hafa orðið fyrir, vegna þess að þar er ekkert fjármagn fyrir hendi til að ráðstafa í þessar þarfir. Hins vegar er löggjöfin um Bjargráðasjóð þannig, að samkv. þeim lögum væri hægt að koma til aðstoðar því fólki sem tjón hefur þolað nú í þessu ofviðri, ef þar væri fjármagn fyrir hendi.

Með tilliti til þessa er augljóst að það þarf að gera ráðstafanir til að bæta hér úr. Hæstv. forsrh. hefur greint frá því sem hæstv. ríkisstj. hefur á prjónunum eða hefur ákveðið í þessu efni. Samkv. því, sem hæstv. ráðh. sagði, mun ríkisstj. gera ráðstafanir til þess að fram fari könnun á því tjóni sem orðið hefur. Það er að sjálfsögðu augljóst að slík könnun verður að fara fram.

Hæstv. ráðh. sagði að ríkisstj. hefði í hyggju að undirbúa breytingu á Viðlagatryggingu og þá væntanlega á þann veg að tjón það sem hlýst af ofviðri, svo sem hér var s.l. mánudag og þriðjudag, verði bætt samkv. lögum um Viðlagatryggingu Íslands.

Það er náttúrlega höfuðatriðið, að breytt verði lögum eins og lögum um Viðlagatryggingu, ef ætlunin er að bæta slíkt tjón sem hér er um að ræða samkv. þeim lögum. En hæstv. ráðh. sagði að það væri einnig ætlunin að endurskoða lög um Bjargráðasjóð. Mér er ekki alveg ljóst og það kom ekki fram í ummælum hæstv. ráðh., í hverju sú endurskoðun yrði fólgin og hvort það er ætlunin að löggjöfin verði þannig að áfram verði hægt að bæta slíkt tjón sem hér um ræðir með framlögum úr Bjargráðasjóði, þó að Viðlagatryggingin væri þess eðlis að það væri líka mögulegt eftir þeirri leið. Þetta kom ekki fram.

Hæstv. ráðh. sagði að þeir í hæstv. ríkisstj. hefðu talað um, að við afgreiðslu frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1981 yrði athugað hvort grípa þyrfti til ráða til fjárútvegunar af þessu tilefni.

Ég hef ekkert nema gott um allt þetta að segja. En ég tel að það sé hætta á að það taki of langan tíma að breyta löggjöf til þess að gera mögulegar aðgerðir til að bæta mönnum það tjón sem þeir hafa orðið fyrir, það sé eðlilegra núna að styðjast við þá löggjöf sem við höfum, þ.e. Bjargráðasjóðinn, og það verði gert með þeim hætti að gera þegar í stað ráðstafanir til þess að útvega Bjargráðasjóði sérstakt fé í þessu skyni. Þannig yrði bættur skaðinn eins fljótt og mögulegt er, um leið og við endurskoðuðum löggjöfina og athuguðum hvað skuli gert til frambúðar í þessu efni.

Með tilliti til þessa sjónarmiðs hef ég ásamt fimm öðrum þm. borið fram á þskj. 442 brtt. við frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1981. M.ö.o.: við flm. þessarar till. teljum að það sé ekkert áhorfsmál og þurfi ekki sérstakrar athugunar við að ákveða það, að nú verði gerðar beinar ráðstafanir til fjárútvegunar til þess að gera Bjargráðasjóði að óbreyttri löggjöf mögulegt að mæta þessum þörfum. Með tilliti til þessa leggjum við flm. þessarar brtt. til að fjmrh. verði heimilað fyrir hönd ríkissjóðs að taka lán á árinu 1981 að fjárhæð allt að 30 millj. kr. eða 3 milljörðum gkr. og veita Bjargráðasjóði það fjármagn til ráðstöfunar samkv. 8. gr. laga nr. 51 frá 1972, um Bjargráðasjóð.

Ég skal taka það fram, að í þessari till. er talað um 30 millj. kr. framlag til Bjargráðasjóðs, þó að enn liggi ekki fyrir könnun á því, hvað tjónið hefur verið mikið. Þessi upphæð er því áætlunarupphæð og við flm. væntum að þetta atriði liggi ljósar fyrir áður en till. verður afgreidd.

Ég vil enn fremur láta þess getið, að í þessari till. er talað um að veita Bjargráðasjóði það fjármagn, sem hér er um að ræða, til ráðstöfunar. Það er ekki tekið svo til orða, að það skuli endurlánað Bjargráðasjóði, og það er af ásettu ráði. Það liggur ekki fyrir hver kjör verða á því láni sem ríkissjóður tæki samkv. þessari till. Það kann að vera að slíkt lán yrði bæði verðtryggt og þyrfti að bera háa vexti eða hærri en eðlilegt er fyrir Bjargráðasjóð þegar ákveðin eru kjör á því sem Bjargráðasjóður lánar. Auk þess er það svo, að aðstoð Bjargráðasjóðs hefur ekki einungis verið fólgin í lánum til þeirra, sem hafa orðið fyrir tjóni, heldur einnig í beinum framlögum. Þess vegna skiptir það máli, að ekki séu lagðar neinar byrðar á Bjargráðasjóð í þessu sambandi sem torvelda að Bjargráðasjóður geti varið þessu fjármagni á hliðstæðan hátt og áður hefur tíðkast þegar Bjargráðasjóður hefur komið til aðstoðar.

Mér þótti rétt, herra forseti, að láta þetta koma hér fram í þeirri umr. sem hv. 5. þm. Vesturl. hefur hér stofnað til.