19.02.1981
Efri deild: 54. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2416 í B-deild Alþingistíðinda. (2592)

Umræður utan dagskrár

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Hv. 3. þm. Vesturl. sagði áðan að fyrstu viðbrögð hæstv. ríkisstj. hefðu verið rétt. Ég er ekki alveg sammála því. En ég er sammála því, að þessi viðbrögð ríkisstj. voru hárrétt og ber að fagna því.

Það, sem hljómaði hér í útvarpi morguninn eftir að þessar hörmungar dundu yfir, var yfirleitt: Við borgum ekki, við borgum ekki. — Það var byrjað á því að upplýsa fólk um það, að sú viðlagatrygging, sem menn töldu að næði fyrir slíkt tjón sem hér væri um að ræða, þ.e. af völdum náttúruhamfara, gerði það ekki. Þetta urðu mörgum mikil vonbrigði. Síðan fóru að heyrast fréttir af því, að Bjargráðasjóður væri tómur og ekki væri fé í hann að sækja.

Mér þykir það því fagnaðarefni, að ríkisstj. hefur á fundi sínum í morgun tekið aðra og góða stefnu. Hún er a.m.k. betri en kom fram í gærkvöld í útvarpsfréttum í viðtali við hæstv. félmrh. Það var helst á honum að skilja að menn ættu sjálfir að sýna fyrirhyggju og að það yrði lítil von á fyrirgreiðslu af hendi stjórnvalda í þessum efnum. Þess vegna þykir mér ánægjulegt og sjálfsagt að þakka þau viðbrögð sem hér hafa orðið.

Ég held að menn hljóti að gera sér grein fyrir því, að miðað við slíkar náttúruhamfarir sem nú áttu sér stað sé erfitt að fyrirbyggja tjón eða skakkaföll og þetta hljóti því að flokkast undir svipaðar aðstæður og náttúruhamfarir af völdum jarðskjálfta eða snjóflóða.

Varðandi þá könnun, sem hæstv. forsrh. skýrði hér frá að nauðsynlegt væri að gera, tek ég undir að það er auðvitað nauðsynlegt að sú könnun fari fram. Mér er kunnugt um að sveitarfélög — ég geri ráð fyrir flest — hafi nú þegar farið af stað með slíkar kannanir hjá sér. Þar sem ég þekki til er starfsmaður sveitarfélagsins nú þegar á ferðinni og tekur skýrslur af mönnum, hvaða tjón hafi orðið á hverjum stað, svo að það ættu að vera hæg heimatökin að fá slíkar skýrslur hjá sveitarfélögunum.