19.02.1981
Neðri deild: 55. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2419 í B-deild Alþingistíðinda. (2599)

103. mál, orlof

Flm. (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því, sem fram kom fyrr við þessa umr., og þá sérstaklega út af ummælum hæstv. félmrh. og hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar.

Það virðist vera álit þessara hv. þm. — og raunar sagði hæstv. félmrh. það beint — að ég tali hér fyrir minnihlutasjónarmiði innan verkalýðshreyfingarinnar. En samhliða þessari fullyrðingu segja þessir hv, þm. báðir tveir, að um leið og þessi breyting yrði gerð á lögunum mundi þetta verða komið svo að segja á hjá hverju einasta félagi, þessi framkvæmd eins og hér er lagt til. Og það segir okkur einmitt að það eru félögin, það eru verkalýðsfélögin í landinu, það eru vinnuveitendur í landinu sem vilja fá þessa breytingu gerða.

Það upplýsist hér hjá hv. þm. Alexander Stefánssyni að tilvik, sem koma upp, eins og hann réttilega benti á og fleiri, þau koma upp vegna þess að löggjöfin er ekki í þeim anda sem almenningur innan verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitendur vilja að lögin séu. Það er hægt að benda á ótal dæmi þess, að það er farið fram hjá lögunum með ávöxtun á þessu fé, og það er auðvitað vegna þess að kerfið er andstætt vilja þeirra aðila sem eiga við það að búa. Og löggjafarvaldinu ber auðvitað skylda til þess að hafa hliðsjón af áliti þess fólks sem á að búa við löggjöfina.

Ég held að það kerfi, sem við búum við, eins og því er framfylgt, bjóði beinlínis upp á slíka misnotkun, vegna þess að kerfið er í andstöðu við meginvilja þess fólks sem á að búa við það. Og þess vegna á að breyta því. Það er því út í hött hjá hæstv. félmrh. og öðrum þeim sem halda því fram, að hér sé talað fyrir minnihlutasjónarmiði. Það má vel vera að einhverjir einstaklingar, forkólfar, eins og menn segja, innan verkalýðshreyfingarinnar, sjálfskipaðir, segja margir, hafi þá skoðun að það eigi að halda óbreyttu kerfi. En hinn almenni félagsmaður í verkalýðshreyfingunni krefst þess að fá að ákvarða það í sínu félagi við sinn viðsemjanda hvernig með þetta fé er farið. Um það snýst í raun og veru málið. Þetta er ekki spurning um það, hvað ég eða hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson sem verkalýðsforingi vill, það er hinn almenni maður í hreyfingunni sem vill þessa breytingu og þess vegna á að gera hana.

Ég ítreka svo aðeins eitt í viðbót. Hæstv. félmrh. var að tala um ríkisábyrgð. Ég sé ekki að það sé nein fjarstæða að gera ráð fyrir því, að yrði þessi breyting gerð á lögunum gæti jafnframt verið ríkisábyrgð — hvort sem það eru bankar eða sparisjóðir sem taka að sér þessa innheimtu — með nákvæmlega sömu ábyrgð og Póstgíróstofan gerir nú. Það hlyti að gilda jafnt ríkisábyrgð gagnvart því eins og núna gagnvart Póstgíróstofunni. Það er því ekki að mínu viti röksemd sem hægt er að taka alvarlega gegn þessari breytingu.

Það er einvörðungu eitt atriði sem ég tel að þurfi að skoða gaumgæfilega og þarf að finna lausn á, og það er vegna þess fólks sem vinnur víða, á mörgum stöðum. Mér er ljóst að það þarf að athuga. En ég er jafnframt viss um það, að á því er hægt að finna lausn innan þeirrar breytingar sem við leggjum hér til að gerð verði á lögunum.

Ég ítreka það, að ekkert hefur komið fram í þessum umr. sem bendir til þess eða rennir stoðum undir það, að það sé óeðlilegt eða óæskilegt að gera þessa breytingu. Þvert á móti er það staðreynd að það er vilji þess fólks sem við þetta hefur búið og á að búa, að þessi breyting verði gerð, hvað sem svo líður einstaka, að ég vil segja, hjáróma rödd ýmissa sjálfskipaðra verkalýðsforingja í hreyfingunni. Og þess vegna á að breyta lögunum.