03.11.1980
Neðri deild: 9. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í B-deild Alþingistíðinda. (260)
Umræður utan dagskrár
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. viðskrh. fyrir málefnaleg svör við málefnalegri fsp. Eflaust er það rétt sem hann sagði, þó að það komi málinu að litlu við, að rekstur verslana þeirra Sigurliða og Valdimars hefur verið mjög til fyrirmyndar og mættu sjálfsagt margir af þeim læra, ekki síst þá kannske hið íslenska ríki með sín fyrirtæki, og ég er langt frá því að halda því fram, að allur verslunarrekstur í landinu skili slíkum ofurgróða sem þessar verslanir virðast hafa gert.
En menn hafa staðið hér og talað um lágkúru. Þessi fsp. mín er auðvitað fram sett að gefnu tilefni. Það er ekkert einkamál eins og hv. þm. Sjálfstfl. tveir, sem hér hafa talað, halda. Það er ekkert einkamál, að ein fjölskylda í landinu skuli láta eftir sig hátt á fjórða milljarð króna arð af verslunarrekstri, sem verið er að tala um að eigi í örðugleikum, og þær kröfur eru hafðar í frammi, að neytendur greiði hærri álagningu til þess að verslunin berjist ekki í bökkum. Það þarf ótrúlega lágkúru til að snúa máli mínu á þann veg, sem hér hefur verið gert. Ég mun sjá til þess, að ræða mín birtist orðrétt í dagblöðum bæjarins, þannig að enginn geti trúað því, að ég hafi farið hér niðrandi orðum um þessi látnu hjón sem voru að gefa samfélaginu erfðafé sitt. Það eru ósannindi. Og tilfinningasemi á borð við það, sem hv. þm. Albert Guðmundsson hafði hér í frammi áðan, á hreinlega ekki heima í sölum þingsins. Ég sé ekki hvað hv. alþm. í hv. Nd. kemur það við, hvort hann var sendill hjá einhverjum manni úti í bæ. Slíkan málflutning er ekki hægt að bjóða mönnum.
Ég gæti notað sömu rök og hv. þm. Matthías Bjarnason, sem sagði hér eitthvað á þá leið, að Sigurliði og Valdimar hafi orðið svo efnaðir vegna þess að þeir voru ekki amlóðar og letingjar. Ég gæti hér sýnt sams konar lágkúru og mér var sýnd áðan og sagt: Er hv. þm. Matthías Bjarnason þá að segja að við hin og allir launþegar í þessu landi, sem aldrei verða ríkir, séum amlóðar og letingjar. Er það þess vegna? En ég get sagt hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni, að ég ætla ekki að nota svona mótrök vegna þess að þau eru ekki sæmandi.
Hér var ekki verið að tala niðrandi um Sigurliða Kristjánsson og konu hans. Þau skulu hafa heiður fyrir þá gjöf sem þau hafa gefið. En það er ekkert einkamál, heldur mál íslensku þjóðarinnar, að slíkur auður skuli koma upp úr vösum einnar fjölskyldu. Það getur ekki verið einkamál og um það ber að fjalla hér. Ég mun ekki svara þessu að öðru leyti. Allir þeir hv. þm., sem mál mitt heyrðu, eru vitni að því, að ég hef ekki staðið hér og nítt niður látna einstaklinga. En ég legg á það áherslu, sem hæstv. viðskrh. sagði í svari sínu, að hagur verslunarinnar verði kannaður þegar verið er að tala um hvað hann eigi í miklum erfiðleikum.