19.02.1981
Neðri deild: 55. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2430 í B-deild Alþingistíðinda. (2604)

Umræður utan dagskrár

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Maður skyldi halda af þeim umræðum sem hér hafa farið fram, að þetta væri eina skipið sem hefði verið smíðað eða komið á miðin á undanförnum árum. Ég man ekki til þess, að neinn hv. þm. bæði um að taka til máls utan dagskrár þegar öðrum skipum hefur verið hleypt af stokkum eða þau komið til landsins. Ég hef ekki heldur heyrt það, að t.d. hv. þm. Magnús H. Magnússon hafi bent á að aðrir togarar en þessi Þórshafnartogari mundu taka eitthvað af þorski eða öðrum sjávarafla. Öll umræðan um þetta mál snýst um að þessi eini togari, ekkert annað skip, geri þetta.

Ég vil vekja athygli á þessari umræðu. Það er merkilegt t.d., að eins hógvær þingmaður og 1. þm. Reykn. er, hv, þm. Matthías Á. Mathiesen, kemur upp í ræðustól og segir: Þetta er einstakt mál.

1973 komu þrír togarar til landsins. Hvert fóru þeir? Einn fór til Reykjavíkur, einn til Hafnarfjarðar og einn til Akureyrar. Þeir fengu ekki 100% fyrirgreiðslu í sambandi við þessi kaup, heldur var talið á þeim tíma að þeir hefðu fengið 105%, þ.e. að allur pakkinn var tekinn, ekki einungis skipið sjálft, heldur líka veiðarfæri. En þá eru skipakaupin núna allt í einu orðin einstakt mál, — eitthvað sem aldrei hefur áður gerst í þessu landi.

Menn athuga það ekki t.d. líka, að það eru tveir togarar skrásettir á Tálknafirði. Annar kom árið 1980. Ég er kannske orðinn minnislítill, en tók einhver hv. þm. til máls þá? Það eru 273 íbúar á Tálknafirði, miðað við það sem stendur í Hagtíðindum. Það mun víst rétt vera að annar togarinn landi, a.m.k. öðru hvoru og kannske alfarið, á Bíldudal. En þó að maður leggi þær íbúatölur saman stendur miklu færra fólk á þessum tveimur stöðum á bak við þá togara, sem ég er að tala um, en Þórshafnarskipið. Ég ætla ekki að finna að því þótt þetta hafi verið gert á Tálknafirði. Ég er eingöngu að benda á að ég gæti komið með óteljandi dæmi um að skip hafi verið flutt inn án þess þó að það hafi verið gert að öðru eins máli og þessi Þórshafnartogari er orðinn. Það mætti náttúrlega minna á margt fleira í því sambandi, bæði á loðnuskipin og ýmislegt fleira, en ég ætla ekki að fara út í þá sálma að þessu sinni.

Menn tala um að það sé verið að sækja í vasa skattborgaranna, og það er verið að tala um hvaða rekstrargrundvöllur sé fyrir þessu skipi. Er málið svona einfalt? Hver er rekstrargrundvöllur fyrir þau skip sem kosta næstum því tvöfalt meira? Er hann fyrir hendi'?

Eins og hv. þm. Sighvatur Björgvinsson talaði áðan mætti ætla af orðum hans að vegna þess að skipin eru orðin svo dýr ættum við að hætta kaupa skip. Hann hafði ekki áhyggjur af neinum togara öðrum í þessu landi en Þórshafnartogaranum. Það er eins og þetta skip sé komið á heilann á sumum þingmönnum. Ég verð að spyrja: Er það eðlilegt og er það ekki umhugsunarvert að þetta mál skuli vera rætt hér dag eftir dag í sölum Alþingis, en önnur hliðstæð mál ekki?

Menn tala um að þetta skip sé dýrt. Það fer náttúrlega eftir því hvaða mælikvarða menn hafa á því, hvað er dýrt og hvað er ódýrt. Ég hef enga þekkingu á því að meta skip. En er það alveg víst, t.d. ef ég færi að kaupa bíla, að þó að ég keypti bíl sem væri nýrri og kostaði fleiri krónur væru það í raun og veru verri kaup — gæti það ekki verið það gagnstæða — en að kaupa 7–8 ára bíl, þó hann kostaði eitthvað færri krónur? Er ekkert spurt um það í sambandi við þessi mál, hvað er verið að kaupa? Horfa menn einungis á tölur, og athuga menn það ekki í sambandi við þessi skipakaup, ef rétt er frá skýrt, að svipað skip og þarna er um að ræða mundi kosta fast að því helmingi meira ef ætti að byggja það innanlands?

9. þm. Reykv., Vilmundur Gylfason, talaði um að þetta skip væri þrisvar sinnum dýrara en hefði verið rætt um. Ég er kannske ekki nógu góður í stærðfræði, en ég man ekki betur en væri verið að tala um að skipið mundi kosta 1400-1500 millj. og átti þá eftir að breyta því. Það var 7-8 ára gamalt skip, eftir því sem mér var tjáð, en þetta er svo þrisvar sinnum dýrara. Þetta er málflutningurinn.

Hvenær var ákveðið að kaupa þetta skip? Hæstv. sjútvrh. er búinn að svara því. Samningurinn mun vera undirskrifaður 19. sept., efir því sem sést í ábyrgðaryfirlýsingunni. Svo kemur formaður stjórnar Framkvæmdastofnunar ríkisins hér og segir að það sé ekki búið að gera neinn samning. Ætli hann hafi ekki verið mættur á þessum fundum? Hvernig er hægt að vitna í samning ef hann hefur aldrei verið fyrir hendi hjá Framkvæmdastofnuninni? Málflutningurinn er skrýtinn.

Hv. þm. Vilmundur Gylfason talaði um að hér væri um einhver skuggaviðskipti að ræða. Hvað á þm. við? Hvað meinar þessi þm. með skuggaviðskiptum? Hann spyr enn fremur að því, hver hafi ákveðið að kaupa þetta skip og hvenær. Það er búið að svara því hvenær. Þeir menn, sem fóru út fyrir hönd Norður-Þingeyinga, ákváðu það eftir að vera búnir að skoða mörg skip, að mér er tjáð. Ég hef líka spurt að því nú, hvernig hafi staðið á því, að það var horfið frá því að kaupa þetta franska skip. Það vill svo til að í Útgerðarfélagi Norður-Þingeyinga eru ekki einungis Raufarhöfn og Þórshöfn, heldur enn fremur hrepparnir Svalbarðsstrandarhreppur og Sauðaneshreppur. Ég hef spurt oddvitana þar, hvort þeir hafi fylgst með því, hvernig þetta hafi verið, og fleiri menn. Það var almennur vilji fyrir því fyrir austan að reyna að fá ársgamalt eða tveggja ára skip ef það væri hægt. Því olli reynslan af hinum togaranum, óttinn við að sagan mundi endurtaka sig.

Hv. þm. Vilmundur Gylfason spyr forseta deildarinnar að því, 4. þm. Austurl., hv. þm. Sverri Hermannsson, niður um hverja hann hafi viljað leysa. Ég hef fengið þetta orðrétt eins og þm. mun hafa sagt þetta í sjónvarpinu. Hv. þm. forseti deildarinnar mun hafa sagt þetta, eftir því plaggi sem ég hef fengið frá sjónvarpinu.

„Já, því miður er þetta mál þannig vaxið að mínum dómi. Héðan af þarf að stöðva það til þess að leysa ofan um þá menn sem með þessum hætti haga sér: kaupendur, umboðsmenn og aðra sem með þessum hætti ganga fram.“

Af þessu tilefni vil ég enn fremur spyrja forseta deildarinnar: Við hverja átti hann? Ástæðan fyrir því, að ég spyr um þetta, er sú, að ég tel að þm. séu umboðsmenn kjósenda sinna. Ég hygg að flestir hugsi þannig. Þess vegna vil ég fá það alveg hreint út við hverja er átt. Ég hygg að ummælin t.d. um hina ungu menn í Norður-Þingeyjarsýslu séu algjörlega ómakleg, sem hafa bæði verið í fjölmiðlum og hér á þinginu, að þeir hafi verið að gera eitthvað sem sé athugavert. Það eina, sem er rétt í þessu sambandi, er að niðurstaða þeirra var að kaupa ársgamalt skip sem reyndist að vísu dýrara en 7–8 ára skip. Það er málið.

Að marggefnu tilefni vil ég enn fremur spyrja hv. 4. þm. Austurl. að því, hvort þm. Norðurl. e. hafi legið á upplýsingum er varða þessi togarakaup eða villtu um fyrir starfsmönnum Framkvæmdastofnunar ríkisins á nokkurn hátt í sambandi við þetta mál. Ég vil líka fá þetta upp vegna þeirrar umræðu sem hér fer fram. Ég fullyrði að enginn af þm. Norðurl. e. hafi villt um fyrir neinum í þessu máli eða legið á upplýsingum. Þetta hef ég ekki eftir hæstv. forseta, en það er spurt að gefnu tilefni: umræðunni sem hér fer fram og hefur farið fram í þjóðfélaginu.

Ég hef náttúrlega verið sérstaklega nefndur til sögunnar í sambandi við þessi mál og ýmsum, sem hafa haft sambandi við mig, hefur fundist að sumt af því, sem vissir aðilar hafa sagt, hafi ekki verið af neinum sérstaklegum velvilja mælt í minn garð. Hitt vil ég þó taka fram, þannig að það liggi á hreinu, að þegar sumir af þessum aðilum brigsla mér hljómar það eins og lofsöngur í mínum eyrum.

Þá er komið að máli Framkvæmdastofnunar ríkisins. Það liggur nefnilega fyrir, að samningur lá fyrir upp á 21 millj. norskar kr. þegar ákvörðunin var tekin. Það liggur líka fyrir, að það var skýrt frá því á sama fundi að þetta væri rækjutogari sem þyrfti að breyta. Það var giskað á að það mundi kosta a.m.k. 3–4 millj. norskar. Ég vil spyrja: Er það reynslan hér að áætlanir hafi reynst lægri þegar á reynir en menn hafa haldið? Þarna var ekki inni í fiskikassar, lántökukostnaður og ýmislegt annað.

Ég tel að Framkvæmdastofnun hafi að vissu leyti hlaupið frá málinu þegar var samþykkt að standa við 20% af 21 millj. Hún var búin að samþykkja í sjálfu sér hærri upphæð því það lá í augum uppi að það yrði að breyta þessu skipi. Það lá fyrir að það mundi kosta a.m.k. allt að þeirri upphæð sem ég gat um áðan. Það er ekki stórmannlegt að hlaupa frá málum.

Það er spaugilegt að togarinn, sem hefur valdið svona mikilli umræðu, skuli vera frá þessum stað. Þaðan kom sá maður sem á frumkvæðið að því að Framkvæmdastofnun ríkisins og Byggðasjóður eru til. Þar var hann og starfaði sem fulltrúi þess staðar. Eins og ég gat um í gær var gerð byggðaáætlun um Norður-Þingeyjarsýslu. Í kjölfar samþykktar um Byggðajafnvægisstofnun ríkisins var flutt till. af Gísla heitnum Guðmundssyni, 1970, um þessa byggðaáætlun. Hún var tilbúin 1976. Ég vil biðja hv. þm. að lesa lögin um Framkvæmdastofnun ríkisins gera sér grein fyrir því, til hvers þessi stofnun er. Það virðist vera að ýmsir geri sér ekki grein fyrir því.

Það kom fram ýmislegt umhugsunarvert í ræðu hv. þm. Sighvats Björgvinssonar. Það vantar nú ekki að hann sé að því leyti til sjálfsagt öðruvísi en hann meinar að hæstv. sjútvrh. sé, að hann er ekki fljótfær, hugsar vel sitt mál áður en hann ræðir það sem til umræðu er. En hv. þm. Sighvatur Björgvinsson segir að það eigi að gefa skipið. Á að gefa skip yfirleitt út á land og er það gert? Var Reykvíkingum fyrir átta árum gefið skipið, sem þeir fengu — eða Hafnfirðingum? Voru togararnir úti um allt land gefins? Er ekki líklegra að þetta skip a.m.k. standi fyrir sínu, miðað við það verð sem er á sams konar skipum sem er verið að smíða nú?

Og hann spyr hverjir eigi að selja afurðirnar. Sambandið selur nú fyrir Þórshöfn, Raufarhöfn er á annarra vegum. Þeir skipta þessu á milli sín.

Og svo kemur það: Fulltrúi Alþfl., segir hv. þm. Sighvatur Björgvinsson, fulltrúi Alþfl. í Framkvæmdastofnun var alltaf andvígur togarakaupunum. Þetta er umhugsunarvert. Fulltrúi Alþfl. í þessari stofnun er andvígur í sjálfu sér því máli sem stofnunin á að framkvæma, þ.e. byggðajafnvægismáli. (Gripið fram í.) Ég er að segja hvað hv, þm. Sighvatur Björgvinsson sagði, að hann hefði verið andvígur málinu frá fyrstu hendi. — En hv. þm. Árni Gunnarsson stendur öðruvísi að þessu máli. Hann er ekkert ofsæll af sínum félögum í þessu máli.

Og þá er komið að breytingunum. Það á að gera breytingarnar hér, það sem meira er: það á líka að kaupa fiskkassana af fiskkassaverksmiðjunni sem er verið að setja í gang. Líklega er þetta fyrsta skipið sem gerir það. Það er sjálfsagt ekki stuðningur við íslenskan iðnað að áliti sumra manna hér. Þannig er umfjöllunin.

Eins og ég sagði í gær á þessi umræða sér langtum dýpri rætur en hefur hér komið fram og miklu dýpri rætur en ég kæri mig um að ræða um á þessari stundu. En það kann að vera að ég eigi eftir að gera það. Það er fyrst og fremst verið að takast á um hvernig eigi að dreifa fénu sem er í Byggðasjóði. Það er verið að takast á um hvort eigi að halda uppi byggð í landinu á svona stöðum. Menn verða að athuga það t.d., að á Þórshöfn var byggt frystihús — það var byrjað á að byggja það 1973 — sem var miðað við 5–6 þús. tonna afla yfir árið. Hverjir stóðu fyrir því? Það var Framkvæmdastofnun ríkisins, og það var eftirlitsmaður frá stofnuninni, Karl Bjarnason, sem gerði það með prýði. Ég efast um að hafi verið betur að staðið að því af heimamönnun annars staðar að byggja slíkt hús. En þegar það var upp komið, 1976 hafði bátaaflinn hrapað úr rúmum 3000 tonnum niður fyrir 1000 tonn. Það var þá sem þeir óskuðu eftir að fá togara. Í kringum sjávaraflann snýst nefnilega öll atvinna á þessum stað.

Umræðan er alveg öfug við allt það eðlilega. Ef eitthvert byggðarlag ætti að fá togara á því herrans ári 1981 er það Þórshöfn vegna þess að Þórshöfn stendur og fellur með þessum hráefnum. Hvaða byggðarlag á Íslandi er þannig sett annað en Þórshöfn? Það kann að vera að það séu einn eða tveir staðir á Austfjörðum. Þá eiga þeir líka að fá svipaða aðstoð. (Gripið fram í.) Það kann að vera að það séu fleiri staðir, en þeir eru a.m.k. búnir að berjast lengst á þessum stað fyrir þessu.

Nú vil ég spyrja formann stjórnar Framkvæmdastofnunar ríkisins að því, hvernig hann ætlar að leysa mal Bjarna Herjólfssonar. Ég held að menn ættu að hugsa svolítið lengra. (Gripið fram í.) Það er óþarfi og ég ætla ekki að taka lengri tíma.

Ég deildi á það í upphati, að þessi umræða öll hefði farið fram um þetta mál. Margt, sem hefur verið sagt um þetta mál, er lítilmannlega sagt og af litlum skilningi. Ég vona að slík umræða um önnur mál, þegar tekist verður á um mál annarra byggða sem líkt standa, heyrist aldrei í sölum Alþingis.

Ég þakka þeim sem hafa leyst þetta mál, bæði ríkisstj. og þeim mönnum í stjórn Framkvæmdasjóðs sem urðu til að leysa þetta mál, og ég þakka byggðadeild Framkvæmdastofnunar og framkvæmdastjóra hennar fyrir það sem hann hefur vel gert í þessu máli. Ég sagði: „fyrir það sem hann hefur vel gert“ — því það er mikið sem hann hefur gert vel í þessu máli. Það er mér alveg ljóst og er ekkert viss um að það hefði leysts — ég er raunar viss um að það hefði ekki leysts ef hann hefði ekki lagt þar hönd að. En svipað gæti ég kannske sagt um ýmsa aðra líka.

Að endingu vil ég segja það, að það er alveg rétt, sem hefur komið hér fram, að þetta var að frumkvæði þm. Norðurl e., og ég veit ekki betur en þeir standi allir að þessu máli og beri þá ábyrgð sem fylgir því að vera þingmaður og berjast fyrir byggðarlag sem er í hættu, eins og hefur verið gert í þessu tilviki.

Ég ætla þar með að ljúka máli mínu.