23.02.1981
Efri deild: 55. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2462 í B-deild Alþingistíðinda. (2625)
217. mál, lánsfjárlög 1981
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Á fundi deildarinnar í seinustu viku, þegar þetta mál var til umr., bar hv. þm. Lárus Jónsson, 3. þm. Norðurl. e., fram þrjár spurningar til mín sem lúta að þessu máli, þ.e. frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1981 og framkvæmd lánfjáráætlunar fyrir seinasta ár. Ég ætla að svara þessum spurningum hér.
Fyrsta spurningin var sú, hvernig lánsfjáráætlun fyrir árið 1980 hefði komið út í reynd hvað fjáröflun snertir, og í öðru lagi, hvað erlendar lántökur hefðu orðið háar í reynd og hvernig tekist hefði til með þann niðurskurð sem ákveðinn var í lánsfjáráætlun þess árs.
Í grófum dráttum er því til að svara, að innlend fjáröflun til ríkissjóðs stóðst nokkurn veginn eins og til stóð og nam 25.7 milljörðum, en í lánsfjáráætlun var áætlað að hún mundi nema 24 milljörðum. Fjáröflunin innlenda var því ívið meiri en ráð var fyrir gert í lánfjáráætlun. Sala spariskírteina stóðst nokkurn veginn nákvæmlega á endum, það innheimtist meira af endurlánuðum spariskírteinum en ráð var fyrir gert, 3 milljörðum hærri upphæð. Verðbréfakaup bankakerfis urðu hins vegar um 1.7 milljörðum minni en ráð var fyrir gert. Sérstaklega urðu verðbréfakaup lífeyrissjóða allmiklu eða sem nam um 4.8 milljörðum minni, en á móti kom að önnur innlend lánsfjáröflun var allmiklu meiri en ráð var fyrir gert, og því var heildarútkoman ívið hærri en lánsfjáráætlun gerði ráð fyrir.
Hvað snertir erlendar lántökur, þá var erlend lántaka opinberra aðila 53 milljarðar í staðinn fyrir 49.8 milljarða sem og ráð var fyrir gert. Hefur áður verið gerð grein fyrir því hér í frv. um heimild fyrir ríkisstj. til töku erlends láns, sem afgreitt var hér fyrir jól, í hverju sá mismunur var fólginn. Hækkunin á erlendum lántökum opinberra aðila var sem sagt liðlega 3 milljarðar, og var þar einkum um að ræða auknar lántökur vegna raforkuframkvæmda. Það voru Rafmagnsveitur ríkisins sem þarna komu hvað helst við sögu, Jarðvarmaveitur ríkisins á svæði Kísiliðjunnar og Kröfluvirkjun. Þessir aðilar fengu aukið lánsfé miðað við það sem áður var ráð fyrir gert, af óhjákvæmilegri nauðsyn, og þetta mál hefur verið afgreitt hér í þinginu þegar, það var gert þegar ákveðin var lántökuheimild til ríkissjóðs fyrir jól.
Lánastofnanir tóku að láni nákvæmlega þá upphæð sem ráð var fyrir gert, 5.5 milljarða. Aftur á móti kemur á daginn að í einkageiranum er um meiri lántökur að ræða en ráð var fyrir gert. Ber þar hæst innlendar skipasmíðar sem fóru allverulega miklu hærra í lántökum sínum á erlendum vettvangi en ráð var fyrir gert, í 7.5 milljarða í staðinn fyrir 3 eins og ráð var fyrir gert í lánsfjáráætlun. Flugvélakaup urðu 8.4 milljarðar í staðinn fyrir 7.7. Endurbætur fiskiskipa urðu rúmir 2 milljarðar í staðinn fyrir 1 milljarð. Og lántökur vegna fiskiskipa urðu 4.9 milljarðar í staðinn fyrir 4.2. Liðurinn „vélar og tæki“, þ.e. kaup einkaaðila á vélum og tækjum, varð allmiklu hærri en áætlað var eða 3.4 milljarðar í staðinn fyrir 2, og „ýmislegt ófyrirséð“ hækkaði mjög verulega, varð 6 milljarðar í staðinn fyrir 1 milljarð. Samtals varð hækkunin hjá einkaaðilum — að meðtalinni Járnblendiverksmiðju sem hækkaði úr 8 milljörðum í 9.8 — um 16 milljarðar kr., og það er aðalástæðan fyrir því, að í heild urðu erlendar lántökur 104 milljarðar í staðinn fyrir rúml. 85 eins og áður var ráð fyrir gert. Hækkunin nemur 19 milljörðum. Hækkunin hjá opinberum aðilum, þ.e. hjá ríkissjóði, er, eins og hér hefur komið fram, liðlega 3 milljarðar, en hjá einkaaðilum um 16 milljarðar.
Í lánsfjáráætlun fyrir árið 1980 var gert ráð fyrir nokkrum niðurskurði á lánveitingu til opinberra framkvæmda og opinberra stofnlánasjóða frá því sem gert var ráð fyrir í fyrstu áætluninni sem lögð var fram. Hv. þm. spurði hvernig þessi niðurskurður hefði tekist. Ég vil upplýsa það hér, að í meginatriðum var fylgt áætlun. Áform flugmálastjórnar voru skorin niður um 40 millj., Ríkisútvarpsins um 30 millj., Skipaútgerðar um 20 millj., styrking dreifikerfa um 108 millj., sveitarafvæðing um 42 millj., einkarafstöðvar um 4 millj., hitaveitulán um 50 millj., og jarðhitaleit um 15 millj., eða samtals 309 millj. Hins vegar er rétt að sá áformaði niðurskurður, sem við höfðum sett á blaði stóðst ekki að öllu leyti. Eru það fyrst og fremst framkvæmdir á vegum Rafmagnsveitna ríkisins sem ekki reyndist unnt að skera niður í þeim mæli sem áætlað var. Þetta át.d. við um Vesturlínuna, og á raunar líka við um framkvæmdir Kröfluvirkjunar og Jarðvarmaveitna ríkisins, eins og ég hef þegar tekið fram.
Framkvæmdasjóði var ætlað að draga úr útlánum um 10% eða um 2525 millj. kr. Sá niðurskurður skiptist þannig á einstaka sjóði, að Lánasjóður sveitarfélaga var skorinn niður um 330 millj., Fiskveiðasjóður um 990 millj., Stofnlánadeild landbúnaðarins um 310 millj., Iðnlánasjóður um 620 millj., Ferðamálasjóður um 60 millj., Landflutningasjóður um 30 millj., Verslunarlánasjóður um 40 millj., Lánasjóður samvinnufélaganna um 40 millj. og bein útlán Framkvæmdasjóðs voru skorin niður um 105 millj., eða samtals um 2525 millj. kr. Þessi niðurskurður stóðst fullkomlega áætlun og skiptist sem sagt með fyrrgreindum hætti.
Að lokum spurði hv. þm. hver væri hlutdeild bænda í því sem á vantar að fullnægt sé útflutningsbótaþörf á landbúnaðarafurðir miðað við fulla verðtryggingu á framleiðsluárinu 1979–1980. Svarið við þeirri spurningu er svo hljóðandi:
Talið er að útflutningsbótaþörfin á framleiðsluárinu 1979–1980 nemi um 13.9 milljörðum gkr. Ég tek það fram, að í máli mínu hér tala ég ævinlega um gkr. vegna þess að verið er að tala um liðið ár og þá virðist eðlilegast að tala um þá mynteiningu sem þá var. Bótaþörfin, þ.e. þessir 13.9 milljarðar kr., var fjármögnuð þannig: Fjárveiting á fjárlögum nam 8.4 milljörðum. Geymdur hluti frá lánsfjáröflun 1980 vegna framleiðsluársins 1978/1979, sem ekki var notaður vegna þess framleiðsluárs, að upphæð 1 milljarður, kemur þarna til viðbótar. Síðan kemur fyrirhuguð lánsfjáröflun í lánsfjáráætlun 1981 vegna framleiðsluársins 1979/1980 í samræmi við það mál sem hér er til umr., frv., til lánsfjárlaga, en ákvæði þess efnis er í 9. gr. frv. Og síðan kemur hluti bænda, sem er afgangurinn, 2.8 milljarðar. Samanlagt verða þetta 13.9 milljarðar kr.
Eins og hér kemur fram var ekki þörf fyrir allt það fé sem aflað var í lánsfjáráætlun 1980, m.a. vegna birgðauppsöfnunar landbúnaðarvara. Hefur það orðið að samkomulagi, að sú upphæð sé notuð til að brúa vandann á árinu 1981.
Varðandi útflutningsbótaþörf á framleiðsluárinu 1980/1981 er það að segja, að erfitt er að spá um hana. Margt bendir til þess, að bótaþörfin á seinasta framleiðsluári verði að tiltölu mun minni en á árinu 1979/ 1980. Ljóst er að kjötframleiðslan dregst verulega saman. Hugsanlegt er að útflutningur á kindakjöti geti numið 4 þús. tonnum í stað 5500 tonna 1980. Þá ber og að hafa í huga að mikil óvissa er um innanlandsmarkaðinn, enda tengist auðvitað innanlandsneyslan stefnu stjórnvalda í niðurgreiðslumálum. Hliðstæðu máli gegnir um framleiðslu mjólkurafurða, en þar ríkir þó enn meiri óvissa en um útflutningsbótaþörf vegna kjötsins.
Þetta seinasta, sem ég nú las, er svar fjárlaga- og hagsýslustofnunar við þeirri spurningu, hvernig þessi mál líta hugsanlega út núna á fjárlagaárinu. En það var nú fyrst og fremst hin spurningin sem hv. þm. vildi fá svar við, hver yrði hlutur bænda varðandi fjármögnun útflutningsbóta á liðnu framleiðsluári, og svarið við þeirri spurningu hefur þegar komið fram. Hlutur bænda er 2.8 milljarðar.
Herra forseti. Ég vænti að með þessu hafi ég svarað spurningum hv. þm.
Ég vil láta þess getið, að hv. þm. Lárus Jónsson og Kjartan Jóhannsson voru boðaðir á fund í fjmrn. í morgun þar sem gerð var grein fyrir þeim þáttum lánsfjáráætlunar sem enn eru ekki fram komnir hér í þinginu, ef það mætti verða til þess að greiða fyrir því, að málið kæmist til nefndar. Því miður var annar hv. þm. veðurtepptur austur á fjörðum og mun því ekki hafa komist á þennan fund, en ég vænti þess, að hann kynni sér þessi gögn um leið og hann kemur og að mál þetta geti fengið afgreiðslu til nefndar hið allra fyrsta.