03.11.1980
Neðri deild: 9. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 399 í B-deild Alþingistíðinda. (263)

17. mál, olíugjald til fiskiskipa

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Maður gat vænst þess, fyrst hæstv. ráðh, ómakaði sig hingað niður eftir, að hann hefði séð ástæðu til að svara sumum af þeim spurningum sem hv. 1. þm. Vestf. beindi til hans áðan. (Sjútvrh.: Það er ekki búin umr.) Ja, hún er komin nokkuð langt. (Sjútvrh.: Þm. varð aðeins á undan mér.) Ekki skal standa á mér að gefa hæstv. ráðh. tækifæri til að svara fsp. og koma þá heldur á eftir til þess að flýta umr. (Forseti: Hv. þm. og hæstv. ráðh. gefa ekki hvor öðrum orðið. Það er ég sem ræð því.) Rétt má það vera, og má þá kannske reyna að halda áfram máli sínu, með leyfi hæstv. forseta.

Ég held að það blandist engum hugur um það, nema kannske hæstv. fjmrh., að frv., sem hér liggur fyrir, er aðeins einn þátturinn í miklu stærra máli og sýnir ljóslega þá ringulreið sem ríkir í efnahagsmálum og atvinnumálum nú um stundir. Menn minnast þess, að þegar núv. ríkisstj. var mynduð var ein af forsendum stjórnarsáttmálans, eins og hann var úr garði gerður, að gengið yrði á útflutningsatvinnuvegina og lengi framan af og raunar enn hefur ríkisstj. fylgt þeirri stefnu með margvíslegum hætti þannig að í sumum greinum útflutningsframleiðslunnar hefur komið til mjög verulegra og alvarlegra erfiðleika sem hafa valdið tilfinnanlegum samdrætti og ég vil segja í sumum greinum óbætanlegum samdrætti, eins og t.d. í skinnaiðnaði. Þrátt fyrir það að ég hafi nokkrum sinnum gert tilraun til þess að það mál yrði rætt á Alþ., hvernig hagur ullar- og skinnaiðnaðarins hefur verið, hefur það ekki fengið neinar undirtektir. Þannig hefur tómlætið verið fyrir þeim atvinnugreinum, og skyldi maður þó ætla að ýmsir, ekki síst bændur, skildu mikilvægi þess, að þessi framleiðslugrein gæti starfað með eðlilegum hætti.

Nú liggur alveg ljóst fyrir eftir síðustu kjarasamninga, sem gerðir voru, og eftir síðustu fiskverðsákvörðun, að í fyrsta lagi sitja sjómenn eftir, þeim hafa ekki verið búnar sömu launahækkanir og öðrum atvinnustéttum og þannig gengið á hlut þeirra. Í þeim efnum heldur ríkisstj. áfram þeim leik sem ríkisstj. hæstv. utanrrh. lék á sínum tíma, ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar sem sat fyrir einu ári, þegar hún setti gerðardómslögin alræmdu á sjómenn. — Það er einn af þeim göllum sem eru á stjórnarskránni, að ríkisstj. skuli haldast uppi að gefa út brbl. án þess að leggja þau fyrir Alþ. til synjunar eða samþykktar, heldur eru þau látin daga uppi þannig að aldrei fæst úr því skorið, hvort þau hafi raunverulega haft meiri hluta á bak við sig eða ekki. Ég hygg til dæmis að þannig sé um annað frv., sem lagt var fram á síðasta sumri, frv. um fóðurbætisskattinn. Má þó vera að hæstv. ríkisstj. takist að fá það frv. samþykkt á Alþ. með hjálp krata, og lýsir það í sjálfu sér hvernig ástandið er í landinu þegar Framsfl. er farinn að stjórna bændapólitíkinni annars vegar með stuðningi Dagblaðsins og hins vegar krata. Er náttúrlega ekki að vænta að árangurinn verði burðugur.

Herra forseti. Ég hélt að hæstv. ráðh. hefði skilið að það voru nokkrar spurningar sem ég vildi ítreka við hann. Ég gaf honum kost á að tala þegar í stað, en hann vildi endilega að ég talaði á undan. Ég vil þá gjarnan fá að ítreka þessar spurningar og hann verður að afsaka þótt það taki pínulítinn tíma. Ég held að ráðh. verði að sitja hér. Eru þeir ekki með þreföld laun alþingismanns? Ég held að þeir séu ekki of góðir til að sitja, smástund inni í þingsölunum. (Forseti: Má ég biðja þingmenn að ná í sjútvrh.)

Ég verð að biðja hæstv. ráðh. afsökunar á að hafa ónáðað hann. (Gripið fram í.)

Ég er ekkert á móti því. Ég sýndi enga óþolinmæði, síður en svo. Nú áttum við nokkur orðaskipti á síðasta vori og þá man ég ekki betur en hæstv. ráðh. hafi gefið það fyrirheit, að lausaskuldalánum útgerðarinnar yrði breytt í löng föst lán. Ég gat ekki betur skilið en við því mætti búast, að það gæti gerst skjótlega, og sætti mig við þau svör hjá hæstv. ráðh. Nú þætti mér fróðlegt að fá að vita hvernig það mál stendur, hvort unnið hafi verið að því að breyta lausaskuldalánum útgerðarinnar í föst lán og þá við hvað er miðað í þeim efnum, hvort einungis er þá miðað við t.d. Byggðasjóð og Fiskveiðasjóð eða hvort hugmyndir eru uppi um að líta á olíuskuldirnar einnig.

Það væri fróðlegt að fá við þessu svör, en einnig við öðru máli sem ég hef afskaplega oft rætt í þingsölum, en fengið litlar undirtektir við.

Nú vitum við að fiskiskip hafa verið keypt til landsins með afskaplega misjöfnum kjörum. Þessi kjör fóru fram eftir þessum áratug smátt og smátt versnandi, og ég hygg að það sé rétt hjá mér, að ef miðað er við togarana sé Sigurbjörg á Ólafsfirði með verstu lánskjörum keypt sem nokkur togari þarf að sæta. Nú hafa ýmsir togarar verið keyptir til landsins og dregið hefur verið úr þessu og lánskjörin gerð, — ég vil nú ekki segja skaplegri, en ekki alveg jafnranglát og þau voru. Nú vil ég spyrja hvort þess sé að vænta, að lánskjörin á þeim skipum, sem verða að sæta verstu lánskjörum, lentu þar mitt á milli, verði eitthvað löguð. Ég veit að þessi fyrirspurn getur ekki komið hæstv. ráðh. á óvart, vegna þess að ég ræddi þetta mál á síðasta þingi og óskaði eftir að fá að vita hvort þetta mál hefði verið athugað í sambandi við þær ráðstafanir sem þá voru í vinnslu í sambandi við vanskilaskuldir útgerðarinnar. Ég held að það sé óhjákvæmilegt einnig að líta á lánskjörin, því að það er náttúrlega skammgóður vermir að breyta lausaskuldunum í föst lán ef lánskjörin eiga eftir sem áður að vera slíkir afarkostir að vonlaust er fyrir nokkra útgerð að rísa undir þeim. Það getur verið gott og blessað fyrir þá, sem eiga fjármagnið, að fá háa vexti, jafnvel verðtryggingu sem miðast við byggingarvísitölu. En sá er bara galli á gjöf Njarðar, að það stendur enginn rekstur undir þvílíkum lánskjörum og allra síst þegar verðbólgan er komin upp í 80%.

Ég verð nú að biðja ráðh. afsökunar á því að ég skuli fara ofurlítið út í aðra sálma, en í þessu samhengi held ég að það sé alveg óhjákvæmilegt.

Kjarasamningar eru nú nýafstaðnir. Við munum eftir því, að hinn 1. mars á árinu 1978, þegar gerðar voru ráðstafanir til að klippa á víxlgengi kaupgjalds og verðlags með febrúarlögunum svonefndu, var það talið af verkalýðshreyfingunni algjörlega forkastanlegt og mikil brigð að ríkisstj. skyldi leyfa sér að setja lög sem skertu þá verðbótavísitölu sem hafði verið samið um vorið 1977 og ríkisstj., sem þá sat, hafði síðan samið um einnig. Á þessu hausti horfir þetta mál öfugt við. Hæstv. ríkisstj. reið á vaðið og samdi við opinbera starfsmenn í byrjun, um mánaðamótin ágúst — september. Síðan gerðist það, að samið var á hinum almenna vinnumarkaði. Í stórum dráttum var þar um sömu samninga að ræða. Nú bregður svo undarlega við, að í Þjóðviljanum, málgagni hæstv. fjmrh., er fjargviðrast út af því, að atvinnurekendur beri einir ábyrgð á þessum samningum. Ég veit að hæstv. sjútvrh. skilur að það var með öllu útilokað að hugsa sér að fólkið, sem vann við framleiðsluatvinnuvegina, ætti að sitja eftir og fengi ekki sömu launahækkanir og hið opinbera hafði samið um áður fyrir fólk sem gegndi sams konar störfum. Nú er spurningin: Hyggst ríkisstj. klippa á víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags með þeim hætti að taka verðbótavísitöluna úr sambandi eða skerða hana með einum eða öðrum hætti?

Nú verð ég að segja að það er í rauninni hálfdapurlegt að hv. 7. þm. Reykv. skuli ekki vera hér inni, Guðmundur J. Guðmundsson, því að ég veit að hann mundi taka undir mal mitt í þessum efnum. Sá er nefnilega munurinn á nú og fyrir tveimur árum, að sá kaupmáttur, sem fólk hefur núna eftir samningana, er mun minni en kaupmátturinn var eftir „sólstöðusamningana“ árið 1977. Við munum að þá gerði Guðmundur J. Guðmundsson þá kröfu og verkalýðshreyfingin að samið yrði um 100 þús. kr. lágmarkslaun í landinu. Við munum einnig að hæstv. núv. utanrrh., Ólafur Jóhannesson, tók með öðru orðinu undir þessa kröfu, þó að hann tæki raunar allt aftur með hinu. Þegar búið var að semja á árinu 1977 voru byrjunarlaun í fiskvinnslu 93 078 kr., þá vantaði m.ö.o. 7.4% upp á að sú 100 þús. kr. viðmiðun næðist sem verkalýðshreyfingin á þeim tíma talaði mest um. Ef við færum þetta til verðlagsins í dag svara þessar 100 þús. kr. til 423 294 kr., en launin í fiskvinnslunni eru ekki nema 337 428 kr. Það vantar m.ö.o. 25.4% upp á að samið hafi verið um þau laun sem á vordögum 1977 voru talin algjört lágmark þess sem hægt væri að tala um að viðunandi væri í því menningar- og velferðarþjóðfélagi sem við vildum lifa í hér á landi. Ef miðað er við þessar forsendur og þennan tíma sjáum við að ekki standa efni til þess að skerða verðbótavísitöluna, ef við á annað borð viljum að sami kaupmáttur sé í landinu eða sömu kjör og þá voru.

En það er ekki aðeins að með þessum hætti sé búið að klippa ofan af laununum hjá fólkinu, heldur hefur verið tekið neðan af einnig með því að skattar hafa verið stórauknir, bæði beinir skattar og óbeinir. Röng vaxtapólitík og stöðugur samdráttur í lánamálum veldur því, að margt fólk, sem nú er á besta aldri, milli þrítugs og fertugs, má hafa sig allt við til þess að missa ekki íbúðir sínar.

Hæstv. sjútvrh. komst svo að orði í viðtali við Morgunblaðið 28. okt. s.l.: „Ég hef ekkert heyrt um þessa ákvörðun ríkisstj. fyrr en ég las frétt Morgunblaðsins. En ég vildi gjarnan að ríkisstj. færi nú að taka sig á og skerti verðbætur á laun, búvöruverð, fiskverð og gengissig, því þá væri niðurtalningin komin í framkvæmd.“

Nú er spurningin: Hvað á hæstv. sjútvrh. við með þessum orðum? Er samstaða um það innan ríkisstj. að skerða kaupgjaldið í landinu, eins og þarna er talað um. Með því frv., sem hér er verið að tala um, er efnt til ófriðar við sjómenn. Það er ástæða til að spyrja hvort einnig sé í samningu frv. um að skerða vísitöluna og efna einnig til ófriðar við alla launþegahreyfinguna í landinu nú á þessum vetrardögum. Ég geri raunar ráð fyrir að hæstv. ríkisstj. muni ekki hafa kjark eða þrek til að opinbera þessar ætlanir sínar áður en alþýðusambandsþing kemur saman, en það sakar ekki að spyrja og fá svar um það frá hæstv. sjútvrh., hvort samstaða hafi tekist í þessum efnum, hvort kjaraskerðingaráformin séu orðin að veruleika í hugum ráðh. og það eina, sem eftir sé að gera, sé að festa þau á pappír og leggja fram á Alþingi.

Sérstaklega í sambandi við það frv., sem hér liggur fyrir, er náttúrlega hægt að segja það almennt um þennan atvinnurekstur, útgerðina, eins og um annan atvinnurekstur í landinu, að þar er um mjög mikla erfiðleika að ræða og skuldasöfnun, eins og hv. 1. þm. Vestf. rakti rækilega í sinni ræðu. Kjörin, sem atvinnuvegirnir búa við, eru þvílík, að þess er engin von að hægt sé að halda uppi heilbrigðum rekstri. En þó er það einn sjóður sem græðir á vitleysunni. Þegar verðbólgan magnast sem mest er það eitt fyrirbæri í þessu landi sem græðir og það er ríkissjóður. Það veit hver einasti maður sem hefur nokkru sinni komið nálægt fjárlagagerð, sem hefur nokkru sinni kynnt sér hvernig tekjukerfi ríkisins er byggt upp, að í miklum verðbólguvexti styrkist staða ríkissjóðs vegna þess að útgjöldin fylgja ekki jafnhratt á eftir og þær tekjur sem bundnar eru, sem fylgja verðlaginu, eins og söluskattur eða tollar. Það er þess vegna ekkert undarlegt þótt hæstv. fjmrh. geti, eins og nú er í pottinn búið, hrósað sér af því að hann kunni að eiga nokkra skildinga eftir í ríkissjóði þegar fram á áramótin kemur, þegar verðbólgan gusast áfram eins og merkin sýna, og mundi vera meiri drengskapur af honum að reyna heldur að verja þeim peningum, sem afgangs eru, t.d. til þess að sjómenn gætu haldið sínum hlut til jafns við aðrar,stéttir fram að áramótum og útgerðin fengi sinn hlut úr ríkissjóði.

Ef ekki er hægt að halda uppi heilbrigðri atvinnustarfsemi í landinu hlýtur að því að reka fyrr eða síðar að allt stöðvist, nema hið opinbera hlaupi undir bagga, enda er það viðurkennt og opinberlega staðfest í stefnuskrá Alþb., að það sér ofsjónum yfir sjávarútveginum, bendir á að það sé sá atvinnuvegur hér á landi þar sem auðvaldið nýtur sín best og sjávarútvegurinn hafi búið við of mikið hagræði undanfarin ár og sé þess vegna of sterkur. Nú á að grípa tækifærið með Framsfl. og undanvillingunum og reyna að steypa útgerðinni í landinu og koma henni yfir á klafa ríkisvaldsins. — Það er að vísu annað mál, en ég áttaði mig ekki alveg á því, hvernig hv. 1. þm. Vestf. fann út að framsóknarmennirnir í ríkisstj. væru sex. En við eigum eftir að ræða það betur og má vera að svo sé.

En þetta vildi ég segja á þessu stigi málsins og vonast til þess, að hæstv. sjútvrh. svari þeim spurningum, sem hér hafa komið fram, og einnig því, hvað hann eigi við þegar hann talar um að skerða ekki aðeins kaupgjaldsvísitöluna, heldur einnig fiskverðið, eins og fram kemur í umræddu Morgunblaðsviðtali.