23.02.1981
Efri deild: 55. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2474 í B-deild Alþingistíðinda. (2638)

221. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Guðmundur Karlsson:

Herra forseti. Ég vil lýsa yfir andstöðu við þetta frv. Ég tel að þarna sé farið inn á ranga braut. Ég tel að við höfum byggt upp ákaflega sterkt og gott tæki sem þarna hefði átt að nota. Það er Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins. Reynslan sýnir að skreiðarvinnsla hefur oft átt í býsna miklum erfiðleikum og þá hefur ekki verið á undanförnum árum gerð nein breyting þess vegna. Því finnst mér þarna rangt að farið. Ég tel rétt að það hefði þurft að byggja upp öflugra tæki, enn öflugra tæki en nú er, þar sem Verðjöfnunarsjóðurinn er. Allt sýnist benda til þess, að þarna eigi að halda uppi rangri gengisskráningu. Það er náttúrlega engin spurning um það, að það er frystingin og söltunin sem eru með mestan útflutning og því ástæða til þess að miða gengisskráningu við afkomu þeirra greina, en ekki við skreiðina. Það er mikil óvissa ríkjandi á skreiðarmörkuðum, það hafa engir samningar náðst enn þá og ekkert vitað hvað úr því verður. Ég tel að það hafi verið ákaflega óheppileg auglýsing sem fór fram í sambandi við síðustu fiskverðsákvörðun um afkomu fiskvinnslunnar. Það er búið að hafa mikil áhrif á afkomu skreiðarvinnslunnar með tilfærslum í gæðaflokkum og eins með mikilli hækkun á ódýrari fisktegundum. Mér sýnist að auglýsingarstarfsemi, sem fram fór um afkomu greinanna, hafi verið ákaflega óholl og ekki að vita enn þá hvaða áhrif það hefur úti á mörkuðunum, að menn skuli geta sótt upplýsingar hingað um hver afkoma hverrar greinar er. Ég býst við að þeir menn, sem koma til samninga við okkur, kaupendur fiskafurða, komi miklum mun fróðari en áður um það, hvað þeir geta til okkar sótt.

Ég vil lýsa yfir andstöðu við þetta frv. og tel að hér sé farið inn á ranga braut.