23.02.1981
Efri deild: 55. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2475 í B-deild Alþingistíðinda. (2639)

221. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Það var nú ekki sérlega glæsileg afkoma fiskvinnslunnar sem hæstv. ráðh. gerði hér grein fyrir, þrátt fyrir eins og hálfs mánaðar möndl, sem endaði með sögulegri uppákomu eins og menn muna þegar átti að ganga frá fiskverðinu á sínum tíma, þar sem ríkisstj. og fulltrúi hennar hoppuðu fram og til baka í prósentum úr 19 í 16 og upp í 18 á einni helgi.

Ég held að við eigum að vera minnugir þess, að skreiðarmarkaðir hafa reynst mjög stopulir. Ég held að ástæða hefði verið til þess að byggja sérstaklega upp verðjöfnunarsjóð í þeirri grein þegar afkoman er svona góð, ég tek undir þau sjónarmið sem fram hafa komið varðandi það efni.

En útkoman er nú ekki betri en þetta þrátt fyrir það að flutt séu til útflutningsgjöld og það sé tekið upp að verðlauna sérstaklega fyrir léleg gæði fisks, og þrátt fyrir það að ávísað sé upp á a.m.k. 6 milljarða að því er virðist, sem ekki eru til, í tóman sjóð.

Ég skal ekki fjölyrða mjög um þetta, en mér þykir það ærið kúnstugt að menn skuli velja að fara hér aftur inn á þá braut að ávísa á tóma sjóði. Það hafði tekist að venja sig af þeim óvana, og sannleikurinn er vitaskuld sá, að ávísun af þessu tagi er verðbólguhvetjandi og á þátt í því að halda uppi röngu gengi, sérstaklega þegar það á við um þá atvinnugreinina innan sjávarútvegsins sem sér fyrir um helmingnum af útflutningnum í greininni allri. Ég held líka að það sé ákaflega varasamt, sem hér hefur verið gert, að hækka sérstaklega verð á lélegum fiski á lakari gæðaflokkum. Ég minnist þess, að hæstv. ráðh. hefur talað mjög mikið um nauðsyn þess í sambandi við fiskveiðistefnu að gæðin yrðu efld, það yrði að efla gæðin á fiskinum, og bæta þá náttúrlega meðferð hans. Ég held að sú ákvörðun, sem tekin hefur verið um þetta efni, hljóti að miða í þveröfuga átt við það sem mér hefur þó skilst að væri stefna ráðh. Ég held að það sé varasamt til lengdar að fylgja þeirri reglu að framkvæma ævinlega hlutina í þveröfuga átt við það sem menn vilja stefna að. Mér finnst gerast allt of mikið af því, að menn vilji eitt, en geri hitt, og flytji frv. um það sem þeir vilja ekki.