23.02.1981
Efri deild: 55. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2478 í B-deild Alþingistíðinda. (2642)

221. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Guðmundur Karlsson:

Herra forseti. Ég vil svara því til, að ég tel að við þurfum að vera raunsæir. Við verðum að miða gengi íslenskrar krónu við afkomumöguleika stærstu útflutningsgreina okkar. Þá er náttúrlega frystingin efst á blaði. Það er staðreynd, að hún veitir flestu fólki í landinu atvinnu og flestir byggja á henni. Það er alveg sama hvar við förum með ströndinni, hvar við komum í fiskibæina, það er frystihúsið og fyrst og fremst frystihúsið sem veitir fólkinu atvinnuna. Og ég tel að þar sem frystingin er stærsta útflutningsgreinin og síðan saltfiskurinn, þá verði að miða gengið við afkomu þessara greina, hjá því verði ekki komist.

Við sjáum glöggt hvað var að gerast. Núverandi ríkisstj. ætlaði að festa gengið við dollarann. Hún gafst upp á því vegna hreyfingar á dollaranum. Við vitum ekki hvaða þróunar má vænta núna á næstunni. Það er ákaflega mikil óvissa um þróun mála á fiskmarkaðinum í Bandaríkjunum. Við getum alveg eins búist við því að hann geti hreyfst niður á við eins og upp á við. Við höfum verið ákaflega heppnir á undanförnum árum, þar hefur þróun verið okkur í flestum tilvikum jákvæð. Þó er það ekkert náttúrulögmál að slík þróun haldi áfram. Við getum alveg eins búist við að þar verði misviðrasamt á þessu ári og kannske næstu árum. Ég tel rangt ef á að fara að halda þessum stærsta iðnaði okkar uppi með millifærslum og styrkjum nú á næstu árum og komandi tíð.