23.02.1981
Neðri deild: 56. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2490 í B-deild Alþingistíðinda. (2654)

201. mál, sérhannað húsnæði aldraðra og öryrkja

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til að taka í megindráttum undir efni þess frv. sem hér er til umr. Ég vil þó á hinn bóginn vara eindregið við þeirri stefnu sem mér virðist hafa verið allt of rík hér á landi í sambandi við málefni aldraðra og fatlaðra, stefnu sem ég hef kallað einangrunarstefnu. Við höfum orðið vitni að því, hvernig fötluðu fólki hefur verið komið fyrir í ákveðnu húsnæði sem er sérhannað og sérbyggt fyrir það. Vil ég í því sambandi nefna Hátúnshúsin þar sem er nær eingöngu fatlað fólk. Þetta kerfi eða þessi stefna hefur ekki þótt ná þeim árangri sem menn vildu með því að sérhanna húsnæði fyrir fatlað fólk, og hið sama hygg ég að gildi um aldraða. Ég er alfarið þeirrar skoðunar, að það eigi að blanda saman aldurshópum og það eigi að blanda saman, þegar um það er að ræða og unnt er að koma því við, heilbrigðu fólki og fólki sem er veikt af einhverjum ástæðum, en getur bjargað sér á sómasamlegan hátt með örlítilli aðstoð. Ég held nefnilega að sú stefna ætti að vera í gildi, t.d. hjá Reykjavíkurborg við lóðaúthlutanir þegar verið er að úthluta fjölbýlishúsalóðum, að á þeim úthlutunum ættu að vera mjög ákveðnar kvaðir um tiltekinn fjölda íbúða fyrir aldraða og fyrir fatlaða, sem þá yrðu sérstaklega útbúnar svo að þetta fótk gæti notað þær. Það hefði þá tækifæri til þess að umgangast það sem við í daglegu tali köllum allt venjulegt fólk. Við ætlum ekki að loka aldrað fólk inni í byggingum eingöngu vegna þess að það er aldrað, en reyna miklu fremur að leyfa því að lifa eðlilegu lífi í samfélagi við yngri aldurshópa. Eins ættum við að leyfa því fatlaða fólki, sem um er að ræða, að vera innan um þá sem heilbrigðir eru taldir.

Þegar einangrunarstefnu, sem ég nefni því nafni, er fylgt, þá er raunverulega verið að fela vandamálin fyrir fólkinu í landinu. Þetta á sérstaklega við að mínum dómi um Hátúnshúsin þar sem fatlaða fólkið er raunverulega falið fyrir öllum hinum og það gerir ekkert annað en horfa á eigin spegilmynd allan guðslangan daginn, umgengst vart annað en fattað fólk og svo það starfsfólk sem vinnur í húsunum. Þannig gerist tvennt: Fatlaða fólkið gleymist og við hin hættum að læra að lifa með því. Vandamálið er sem sagt lokað inni. Þetta held ég að þyrfti að aðgæta mjög gaumgæfilega. Svíar hafa gert tilraunir með að blanda öldruðu fólki í fjölbýlishús með ungu fólki, og það hefur þótt takast býsna vel. Þar hefur verið um að ræða fjölbýlishús með litlum þjónustueiningum, þar sem aldraða fótkið hefur fengið mat og aðra þjónustu sem það hefur þurft á að halda.

Einnig vil ég koma að öðru máli sem hv. þm. Pétur Sigurðsson nefndi þegar hann flutti sína ræðu, og það eru málefni geðsjúkra gamalmenna. Ég vék að þessu sérstaklega í umr. hér fyrir nokkrum dögum, þegar hv. þm. Helgi Seljan talaði hér fyrir till. um geðverndarmál. Þá minnti ég sérstaklega á það, að í þáltill. hefðu málefni eða málaflokkur geðsjúkra gamalmenna algjörlega gleymst. Og þarna er náttúrlega þvílíkur vandi, að það veit enginn nema sem reynt hefur, t.d. bara í sambandi við „senilltet“ og elliær gamalmenni hvers konar. Þar eru óhemju vandamál á ferðinni fyrir fjölskyldur sem bera ábyrgð á því fólki.

Ég hef ekki miklu við þetta að bæta. Ég get skýrt frá því, að byggingarsamvinnufélag eitt hér í Reykjavík, þar sem ég sit í stjórn, ákvað á stjórnarfundi fyrir skömmu að rita borgarráði Reykjavíkur bréf og bjóðast til þess að hafa um 20% af íbúðunum fyrir aldrað fólk, sem yrði þá forgangshópur, og/eða fatlað fólk. Þá yrði tekið tillit til þess við hönnun húsnæðisins. Ég held nefnilega að þessa leið mætti fara í mjög mörgum tilvikum því að það er ekki alltaf fjárhagurinn, sem kemur í veg fyrir að aldrað fólk geti eignast húsnæði, heldur ýmsa aðrar ástæður.

Það þarf ekki að rekja þau vandamál sem nú eru til umræðu í okkar samfélagi og sérstaklega hér í Reykjavík, hjá öldruðu og gömlu fólki sem bíður svo hundruðum skiptir á listum Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar eftir því að fá mannsæmandi húsnæði. Ég minnist þess, að einn af starfsmönnum Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar eftir því að fá mannsæmandi húsnæði. Ég minnist þess, að einn af starfsmönnun Félagsmálastofnunar orðaði það svo, að reykvískir hestamenn mundu ekki hýsa hross sín í sumu því húsnæði sem gamla fólkinu er boðið. Og þetta er í velferðarþjóðfélaginu á Íslandi árið 1981.

Öll umræða um þessi mál er af hinu góða. Ég vil taka undir þann anda, sem felst í þessu frv., og þakka hv. 1. flm., Pétri Sigurðssyni, fyrir það framtak sem hann hefur sýnt með þessu.