23.02.1981
Neðri deild: 56. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2495 í B-deild Alþingistíðinda. (2656)
201. mál, sérhannað húsnæði aldraðra og öryrkja
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð sem ég vildi láta koma fram af minni hálfu þegar þessari 1. umr. er að ljúka. Við eigum vafalaust eftir að ræða um þessi mál ítarlegar á þessu þingi. En í þeim umr., sem hafa farið fram hér í dag, hefur ýmislegt komið fram sem varpar ljósi á málið og er fróðlegt að hafa í huga.
Ég verð nú að segja það, að ég tel að ekki sé hægt að bera kostnaðartölur saman með sama hætti og hv. þm. gerði áðan varðandi annars vegar 150 pláss á „DAS-verði“ eins og ég kallaði það og hins vegar 150 pláss á Borgarspítalaverði, þegar það er reiknað allt upp á því háa daggjaldi sem er á Borgarspítalanum. (Gripið fram í.) Út af fyrir sig er það rétt, en þegar verið er að reikna út daggjöld fyrir þessa stofnun og þó að þessir sjúklingar þurfi kannske miklu minni þjónustu en ýmsir aðrir, þá er inn í daggjöld þeirra reiknaður kostnaður við Slysavarðstofuna og þess háttar. Þessi daggjaldagrundvöllur, sem menn eru oft að miða við, orkar þess vegna mjög tvímælis og er villandi. Ég hef hitt forráðamenn sjúkrahúsa úti á landi sem halda því fram, að það sé miklu ódýrara að framkvæma minni háttar aðgerðir, eins og botnlangaskurð og þess háttar, hjá þeim vegna þess að daggjöldin séu þar lægri en annars staðar. Þetta er mikill misskilningur. Staðreyndin er auðvitað sú, að þjónustan kostar í grundvallaratriðum svipað í landinu, vegna þess að launakjörin hjá heilbrigðisstéttunum eru uppistaðan í kostnaðinum, og þau eru svipuð eða þau sömu í meginatriðum yfir landið. Mér finnst því að daggjaldaumræðan sé oft dálítið villandi.
Það er alveg rétt sem hv. þm. bendir á, enda þekkir hann þessi mál betur en flestir aðrir hér, að þau pláss, sem ég taldi upp, eru út af fyrir sig ekki sérhönnuð sem hjúkrunarpláss, en þau hafa verið tekin í notkun fyrir hjúkrunarpláss í neyð. Þau eru brúkuð sem slík um þessar mundir.
Hv. þm. Árni Gunnarsson vék hér nokkuð að því sem hann kallaði „einangrunarstefnu“ í þessum efnum, þ.e. að loka aldraða af í stórum húsum án þess að þeir væru í raun og veru í nokkrum tengslum við félagslegt umhverfi að öðru leyti. Ég er sammála þessum aðvörunum hans, og ég hef ekki haft mikinn áhuga á því að taka þátt í að fara út í stórframkvæmdir á þessu sviði, þar sem um yrði að ræða vistunarrými, við skulum segja t.d. fyrir 300 hjúkrunarsjúklinga aldraða, og sá fjöldi þarf á þessari þjónustu að halda hér. Ég held að slík stofnun yrði aldrei til lengdar til góðs vegna þess að þar yrði ekki sá heimilisbragur sem þarf helst að vera á þessum stofnunum. Þar yrði aðhlynningin ekki sem skyldi. Það yrði verksmiðjusvipur en ekki svipur félagslegrar þjónustu yfir slíku bákni. Ég hef fyrir mitt leyti ýtt frá mér frekar en hitt tillögum um slíkar verksmiðjueiningar, liggur mér við að segja, — stóriðjueiningar í sambandi við okkar þjónustu við aldrað fólk.
Hv. þm. Magnús H. Magnússon vék hér nokkuð að frv. því sem hann lét undirbúa í heilbr.- og trmrn. varðandi þjónustu við aldraða. Það frv. hefur verið til meðferðar um alllangan tíma, og það hefur orðið dráttur á framlagningu þess. Af hverju hefur sá dráttur orðið? Hann hefur fyrst og fremst orðið vegna þess, að ég hef viljað sjá fyrir endann á kostnaðarvandamálunum áður en ég færi að leggja það hér fyrir. Ég hef ekki viljað leggja hér fyrir frv. sem tæki í raun og veru mjög lítið á þeim málum. Þau eru það þung og erfið, bæði fyrir ríki og fyrir sveitarfélögin, að það verður að taka á kostnaðarmálunum, annars er framlagning slíks frv. marklítil. Það eru þau mál sem ég hef viljað reyna að ná samkomulagi um á vettvangi ríkisstj. og stjórnarflokkanna og taka á þeim áður en ég legði frv. fram hér í endanlegum búningi. En eins og ég sagði er von mín að það komi fram hér áður en langur tími líður.
Ég vil aðeins nefna það hér, sem hefur verið nokkuð rætt, en þó lítið í þessum umræðum, að talsverðar aðgerðir eru í undirbúningi hér á Reykjavíkursvæðinu. Ég taldi upp þær húsbyggingar sem um er að ræða á vegum Dvalarheimilis aldraðra sjómanna í Hafnarfirði. Ég nefndi húsnæðið við Droplaugarstíg í Reykjavík, sem er í byggingu, B-álmu Borgarspítalans og hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi.
Auk þessa er mér kunnugt um að borgarstjórn Reykjavíkur hefur verið með í athugun ýmis önnur mál sem geta orðið til þess að draga úr versta neyðarástandinu. Þær hugmyndir, sem hafa verið í athugun sérstaklega á vegum Reykjavíkurborgar og hafa verið ræddar við mig af forráðamönnum hennar, eru þær, að á tiltölulega mjög skömmum tíma yrði unnt að taka í notkun u.þ.b. 70 pláss fyrir aldraða hjúkrunarsjúklinga á þremur stöðum hér á borgarsvæðinu. Þar er um að ræða Arnarholt, sem er ekki að fullu nýtt, að mér er tjáð, þar er um að ræða Hvítabandið og þar er um að ræða skrifstofuhúsnæði borgarlæknis í Heilsuverndarstöðinni. Samtals eru þetta u. þ. b. 70 pláss.
Þá hafa einnig komið að máli við mig forráðamenn Landakotsspítala, sem hafa óskað eftir því að fá að innrétta ákveðið húsnæði í grennd við spítalann fyrir langlegusjúklinga, þar sem yrðu 30 – 35 pláss.
Ég held að með aðgerðum af þessu tagi, sem ég hef hér talið upp, lagasetningu um betra skipulag heilbrigðisþjónustu við aldraða og þeim aðgerðum, sem að öðru leyti eru í gangi, sé hægt að halda því fram, að hér sé talsvert á málunum tekið, þó að það sé enn þannig, eins og ég lagði á áherslu við fyrri hluta 1. umr., að um er að ræða vaxandi verkefni á næstu árum. öldruðu fólki fer fjölgandi hjá okkur, sem betur fer, og hér er um að ræða vaxandi viðfangsefni sem við þurfum að taka á.
Spurningin er þá fyrst og fremst sú, hvað þjóðin er tilbúin að leggja á sig af kostnaði, sköttum og útgjöldum vegna þessa. Það er spurningin, sem þetta snýst um, númer eitt, tvö og þrjú. Allir höfum við ákveðnar hugmyndir um nauðsynlegar lagfæringar, en þá verða menn að vera tilbúnir líka, ekki bara til að segja a, heldur líka b, og bera þann kostnað sem af þessu hlýst. Það er okkur skylt að gera. Sú góða umræða, sem hér hefur farið fram, finnst mér vera til marks um það, að hv. alþm. í öllum flokkum skilja þessa nauðsyn og eru reiðubúnir til þess að taka á málinu í samræmi við það, jafnframt því sem það er svo ljóst, sem hv. þm. Pétur Sigurðsson hefur lagt hér á áherslu og ég líka, að spurningin er líka um það, hvort hægt er að nýta þá fjármuni betur sem þegar eru í okkar heilbrigðiskerfi. Um það mætti setja á langa umræðu hér á Alþingi og væri satt að segja ekki vanþörf á en ekki er kostur á því á þessum fundi.