24.02.1981
Sameinað þing: 53. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2498 í B-deild Alþingistíðinda. (2659)

211. mál, húshitunaráætlun

Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Fsp. sú, sem hér er til umr., varðar húshitunarmálin sem svo mjög hafa verið á dagskrá þingsins á undanförnum misserum. Þess er skemmst að minnast, að um fá mál var meira rætt á síðasta þingi en einmitt húshitunarmálin. Höfðu þá komið fram tvö frv. varðandi það mál, annað sem ég ásamt þrem öðrum flm. stóð að, en hitt sem var stjfrv. Stjfrv. var samþykkt. Í einni grein þeirra laga eru ákvæði sem ég hef leyft mér að spyrja um í þeirri fsp. sem hér er á þskj. 414.

Í þessum lögum, nr. 53 frá 1980, er gert ráð fyrir að það verði gerð sérstök húshitunaráætlun fyrir tímabilið 1981 – 1983. Það er um þessa húshitunaráætlun sem fsp. mín fjallar, en ég hef leyft mér að spyrja hæstv. iðnrh. að því í fyrsta lagi, hvort það hafi verið gerð húshitunaráætlun fyrir tímabitið 1981 – 1983 um nýtingu innlendra orkugjafa til húshitunar í stað olíu, svo sem gera skal samkv. 14. gr. laga um jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar, nr. 53 frá 28. maí 1980.

Í öðru lagi hef ég leyft mér að spyrja hæstv. iðnrh. um hvaða tillögur væru um framkvæmdir í orkumálum, sem nauðsynlegar teldust til þess að sem flestir landsmenn byggju við innlenda orkugjafa eða nytu orku frá olíukyntri fjarvarmaveitu í árslok 1983.

Í framhaldi af þessu spyr ég hæstv. iðnrh. um hver sé áætlaður kostnaður slíkra framkvæmda.

Í fjórða lagi er spurt að því, hvernig framkvæmdirnar skiptist annars vegar á milli ára og hins vegar með tilliti til innlendra orkugjafa og olíu til fjarvarmaveitna.

Það fer ekki milli mála að hér er um ákaflega mikilvægt málefni að ræða. Því er það ekki að ófyrirsynju að ég hef leyft mér að spyrja hvað hæstv. ríkisstj. aðhafist í þessu máli.