24.02.1981
Sameinað þing: 53. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2505 í B-deild Alþingistíðinda. (2664)

211. mál, húshitunaráætlun

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég fagna því, að þessi fsp. hefur verið lögð fram, og læt einnig í ljós ánægju með að iðnrn. hefur ekki gleymt því að gera athuganir hvað jaðarbyggðir snertir.

Mér fannst það athyglisvert, að iðnrh. talaði um að stefnt væri að því að koma upp vindmyllu í Grímsey. Vissulega er þar farið inn á merkilega braut. Ég hygg að það sé vænlegra en að nýta þá orku sem kemur frá ræðumönnum hér úr pontunni, jafnvel þó að þar geti orðið hvasst stundum.

Hins vegar saknaði ég þess, að hann minntist ekkert á notkun á varmadælum á lághitasvæðum. Ég tel að það þurfi alveg sérstaklega að athuga þá möguleika sem varmadælur gefa.

Einnig vona ég að iðnrh. upplýsi hvort því megi treysta, að húshitunaráætlunin geri ráð fyrir að sveitarafvæðingunni verði lokið innan þess ramma, því að að sjálfsögðu verður ekki komið á viðunandi lausn í upphitun til sveita nema rafvæðingin eigi sér stað. Ef til vill má segja að það hefði þurft sérstaka fsp. um þau mál. Því miður hefur rafvæðing sveitanna tekið lengri tíma en æskilegt er og mjög víða er sú mismunun orðin óþolandi. Það stafar af því að býli hafa ekki fengið rafmagn og það hefur ekki komið fram nein ákveðin stefna um hvernig beri að leysa orkumál þeirra.