24.02.1981
Sameinað þing: 53. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2507 í B-deild Alþingistíðinda. (2669)
211. mál, húshitunaráætlun
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Það bætti aðeins í norðvestangustinn og ég ætla ekki að reyna að virkja hann að þessu sinni, en aðeins að geta þess, að við undirbúning fjárlagagerðar á s.l. ári voru tillögur míns rn. um allt aðrar og hærri upphæðir í sambandi við sveitarafvæðingu en fallist var á innan ríkisstj. við mótun fjárlagafrv. Í framhaldi af því vakti ég athygli hv. fjvn. á því, hvernig þessi mál stæðu, og þörfinni á auknu fjármagni í þessu skyni ef þarna ætti að þoka fram málum hraðar en fjárveitingar leyfðu.
Ég hef nú litið svo til, að vald fjvn. sé nokkuð, þó að ég hafi alls ekki átt von á því, að hún gæti ausið úr stórum sjóðum í þessu skyni á yfirstandandi ari. Ákveðnar áherslur geta væntanlega frá nefndinni komið í einstökum málum og það gerist við hennar tillögugerð. Ég held að það gæti verið gagnlegt ef fjvn. sem slík léti koma fram sitt álit, ef menn eru þar samstæðir eða þar ríkja mismunandi skoðanir um þær áherslur sem ber að leggja á þennan þátt orkumálanna, sem varðar umrædda sveitarafvæðingu.