24.02.1981
Sameinað þing: 53. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2507 í B-deild Alþingistíðinda. (2670)

211. mál, húshitunaráætlun

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Eftir ummæli hæstv. iðnrh. mætti ætla að hæstv. ráðh. hefði hvorki staðið að framlagningu fjárlagafrv. né afgreiðslu fjárlaga. Mér er spurn: Er hæstv. iðnrh. andvígur þessum þætti fjárlaganna ellegar greiddi hann atkvæði með öðrum hætti en þeim að samþykkja fjárlögin lið fyrir lið og í heild? Í annan stað man ég ekki betur, þó að mér hafi ekki gefist tími til að gá að því, en að við afgreiðslu fjárlaga hafi verið birtar brtt. einmitt varðandi sveitarafvæðingarmálin. Hvernig skyldi hæstv. iðnrh. Hjörleifur Guttormsson hafa greitt atkvæði um slíkar brtt? Ef afstaða hans er sú sem hann lýsir hér, hvernig stóð á því, að hæstv. iðnrh. lét málið fram hjá sér fara með þeim hætti sem hann hefur sjálfur lýst, og hvernig stóð á því, að hæstv. iðnrh. greiddi ekki atkvæði með brtt. um þessi atriði né heldur beitti sér fyrir að slíkar brtt. gætu komið fram hér í þinginu?

Málflutningur eins og hæstv. iðnrh. tíðkar er ekki alveg dæmalaus, en hann heyrir til fádæma. Auðvitað getur hæstv. ráðh. ekkert frekar en aðrir ráðh. í þessari ágætu ríkisstj. komið sér undan því að bera ábyrgð á þeim afgreiðslum sem ríkisstj. og stjórnarmeirihlutinn hér í þinginu standa að.