24.02.1981
Sameinað þing: 53. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2508 í B-deild Alþingistíðinda. (2671)

211. mál, húshitunaráætlun

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Aðeins örfá orð. Það var greinilegt að hæstv. ráðh. hafði hægara um sig í seinni ræðunni en áður. En það væri fróðlegt að fá hæstv. iðnrh. til að lýsa því yfir í ræðustól í þessum umr., hvernig hann greiddi atkvæði við atkvgr. um þá tillögu við afgreiðslu fjárlaga sem gerði ráð fyrir að hækka fjárveitingar til sveitarafvæðingar. Vill ekki hæstv. iðnrh. lýsa því yfir hérna, hvernig hann greiddi atkvæði í þeirri atkvgr.? Samþykkti hann þá tillögu eða greiddi hann atkvæði á móti henni? Aðeins eitt orð af hálfu hæstv. iðnrh. getur skýrt það. Ég veit hvernig menn greiddu atkvæði, en ég vil fá hann til að segja það sjálfan. Það getur orðið til þess að svipta hulunni af hræsninni sem hér hefur komið fram hjá hæstv. orkumrh. í þessu máli. Ég skora á hæstv. ráðh. að koma hér upp og segja hvernig hann greiddi atkvæði um þá tillögu sem hér var til afgreiðslu við afgreiðslu fjárlaga um að hækka fjárveitingar til sveitarafvæðingar. Ef hann kemur ekki hér upp og segir það, hefur ekki þor til þess eða þrek, skilur allur þingheimur hver staða hans er í málinu.