24.02.1981
Sameinað þing: 53. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2511 í B-deild Alþingistíðinda. (2679)
Umræður utan dagskrár
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég verð satt að segja að lýsa furðu minni yfir þessari athugasemd hv. 1. þm. Reykn.
Hér hafa farið fram í allan vetur mjög verulegar umr. utan dagskrár. Bæði ríkisstj. og forsetar hafa reynt að gera það sem unnt er til að greiða fyrir því, að hv. þm. fengju svör við þeim fsp. sem þeim brenna í huga hverju sinni, enda þótt hafi verið umdeilanlegt hversu mikið lægi á að svara einstökum fsp. hafa menn lagt á það áherslu að reyna að koma þeim frá. Nú gerist það hins vegar, að það er gagnrýnt af hv. 1. þm. Reykn. að ráðh. skuli ekki svara fsp. á dagskrá, — mér liggur við að segja jafnframt því sem þeir svara fsp. utan dagskrár. Þannig ganga málin ekki fyrir sig hér á hv. Alþingi og geta ekki gert.
Ef hv. þm. vill koma í veg fyrir að það gerist, sem nú er að koma upp, að fsp. á dagskrá sé frestað vegna fsp. utan dagskrár, er nauðsynlegt fyrir hann í þessu tilviki, sem nú er í uppsiglingu, að fjalla um málið sérstaklega við hv. 1. þm. næsta kjördæmis, það er að segja Reykjavíkur.