24.02.1981
Sameinað þing: 53. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2511 í B-deild Alþingistíðinda. (2680)

Umræður utan dagskrár

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég vil bara upplýsa það, að ég hafði vænst þess að eiga þess kost að svara hér þremur fsp. sem eru á dagskrá þessa fundar, en vegna þess að formaður Sjálfstfl. vill komast að með utandagskrárumr. kem ég ekki þeim svörum að. — Ég held að hv. þm. Matthías Á. Mathiesen hafi gefið harla villandi mynd af því ástandi sem hér er.