04.11.1980
Sameinað þing: 13. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 412 í B-deild Alþingistíðinda. (269)

46. mál, breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils

Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Fsp. sú, sem hér er til umr., fjallar um breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils. Með lögum um breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils, sem samþ. voru 16. maí 1979, er svo gert ráð fyrir, að frá og með 1. jan. 1981 hundraðfaldist verðgildi krónunnar.

Þetta mál á sér alllangan aðdraganda. Sannleikurinn er sá, að allt frá 1962 hefur þetta mál komið upp öðru hverju hér í þingsölunum. 1962 voru að frumkvæði þáv. fjmrh., núv. hæstv. forsrh., athugaðir möguleikar á þessu. 1972 var flutt þáttill. af Birni Pálssyni um athugun á þessu máli og árið 1977 af Lárusi Jónssyni. Þannig er þetta ekki nýtt mál. En það, sem hefur orðið til þess að ég hreyfi þessu máli núna, er að fram undan eru framkvæmdir í málinu.

En hvers vegna hefur þetta verið svo til umr. án þess að til framkvæmda hefur komið? Það er vegna þess að menn hafa ekki verið á eitt sáttir eða að sjálfsögðu viljað umfram allt athuga hvaða áhrif þessi breyting kynni að hafa, og þegar menn hafa verið að athuga það mál hefur það verið gert í sambandi við hvaða áhrif verðgildisbreyting hefði á viðureignina við verðbólguna og viðleitni til að stuðla að stöðugleika í efnahagsmálunum.

Það er viðurkennt að gjaldmiðilsbreytingin hefur ekki nein bein áhrif í þessu efni. Hins vegar fer það ekki á milli mála að slík ráðstöfun getur haft mikil óbein áhrif. Slík áhrif gætu verið á þann veg, að þau drægju úr þeim verðbólguhugsunarhætti sem sílækkandi verðgildi íslensku krónunnar veldur með því að grafa undan virðingu fyrir peningum og áhuga manna á því að hamla gegn verðbólgunni. En forsenda þess, að aukning verðgildis íslensku krónunnar hafi hin hagstæðu sálrænu áhrif sem vonast er til, hlýtur að vera sú, að aðgerðin sé liður í víðtækri stefnumótun og framkvæmd til að ráða bót á verðbólgunni og koma á stöðugleika og jafnvægi í efnahagsmálum þjóðarinnar. Aukning verðgildis krónunnar gæti því orðið vottur þess, að slík stefna hefði verið tekin upp í efnahagsmálum, og brýning til þess að takast á við vandann af meiri einurð en áður.

En ef þessi skilyrði eru ekki fyrir hendi, hvaða áhrif hefur þá slík ráðstöfun sem breyting á verðgildi krónunnar? Það er ekki talinn nokkur vafi leika á því, að ef ekki sé fyrir hendi heildarstefna í efnahagsmálum til að ráða bót á efnahagsvandanum og verðbólguvandamálinu verði slík ráðstöfun einungs til að hella olíu á eld verðbólgubálsins.

Það er með tilliti til þessa sem fsp. er borin fram. Ég held að við getum í raun og veru verið sammála um að það er núna engin heildarstefna í efnahagsmálunum eða samræmdar aðgerðir til viðnáms við verðbólgu. Hæstv. ríkisstj. viðurkennir þetta sjálft með yfirlýsingum sínum um að málin séu í athugun og þess sé að vænta að aðgerðir komi um næstu áramót. En það er ekki nægilegt í þessu efni. Þess vegna er spurt að því, hvort ríkisstj. hafi ekkert að óttast í þessu efni og hvort ekki sé ástæða til þess að hugleiða allt þetta mál betur en gert hefur verið.