24.02.1981
Neðri deild: 57. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2553 í B-deild Alþingistíðinda. (2725)

215. mál, lögheimili

Flm. (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Frv. þetta, sem ég flyt á þskj. 425 ásamt hv. þm. Ólafi G. Einarssyni, er í nokkrum skyldleika við og í framhaldi af frv. sem ég er 1. flm. að og hefur verið til umr. hér í hv. deild að undanförnu, frv. til 1. um sérhannað húsnæði fyrir aldraða og öryrkja.

Lagt er til með frv. þessu að breyting verði gerð á lögum um lögheimili, að breytt verði 2. gr. laga nr. 35/1960, hvar ákvæði eru um hvar heimili manna skuli teljast. Þar segir „elliheimili eða annarri slíkri stofnun,“ en komi: sérhönnuðum heimilum og íbúðum aldraðra og öryrkja byggðum í tengslum við þjónustumiðstöð aldraðra eða heilsugæslustöð.

Það er nokkuð síðan hugtakið „elliheimili“ hefur verið lagt niður hjá frændþjóðum okkar, og ef það væri ekki til í nafni slíks heimilis hér á landi væri það sjálfsagt búið að vera hér líka. Eru margar skýringar á að svo sé, m. a. sú gamla og heldur lélega reynsla sem fékkst fyrr á öldum og á fyrstu áratugum þessarar aldar víða á Norðurlöndum af heimilum sem féllu undir þetta heiti: Nú hefur, eins og ég hef reyndar komið inn á í því máli sem ég vitnaði til, verið breytt til og slík heimili bera allt annað heiti, enda sú starfsemi, sem þar er rekin, allt önnur en var á hinum gömlu elliheimilum, sem voru bæði fátæklingaheimili og geymsluheimili, sem ekki þekkist í dag.

Í því frv., sem ég vitna til, er lagt til m. a. að það verði tekin upp nokkur sérstök heiti á öllum sérhönnuðum íbúðum aldraðra og öryrkja. Sú hugsun er að sjálfsögðu á bak við, að bæði Byggingarsjóður ríkisins og aðrir aðilar, jafnvel Alþingi líka, komi til með að styrkja slíkar byggingar á einn eða annan hátt, annaðhvort með góðum lánum, eins og sagt er nú, eða þá með beinum styrkjum eða annarri fyrirgreiðslu. Þetta þýðir að sjálfsögðu að aldraðir munu sækja til slíkra bygginga, og það er ljóst að slíkar byggingar munu verða reistar í námunda við þá þjónustu sem mun verða og er þegar orðin hjá t. d. heilsugæslustöðvunum og reyndar líka hjá þjónustustöðvum aldraðra sem eru að rísa og hafa risið og í kringum spítala sem hafa á sínum vegum það sem fellur undir hugtakið „hjúkrunarheimili aldaðra,“ en það má segja að svo sé um marga spítala víðsvegar um landið.

Það stendur t. d. þannig á hér í nágrenni við okkur, á mörkum Garðabæjar og Hafnarfjarðar, að í Hafnarfirði er verið að reisa hjúkrunarheimili fyrir aldraða og þar verður þjónustumiðstöð fyrir aldrað fólk sem mun spanna yfir stærra svæði, þ. á m. nokkur sveitarfélög, a. m. k. þrjú til fjögur sveitarfélög, sem munu eiga bæði beina og óbeina aðild að þeirri þjónustumiðstöð. Það er fyrirhugað að reisa slík sérhönnuð hús í nágrenni þessa heimilis, en þau verða í Garðabæ. Það er nokkur uggur í bæjarstjórn Garðabæjar um að svo geti farið, að þangað flytji stórir hópar af öldruðu fólki sem eigi þá kröfu á sveitarfélagið bæði um heimahjúkrun og heimilishjálp, sem svo lítið sveitarfélag mun eiga í miklum vandræðum með að standa undir.

Við hér í Reykjavík þekkjum vel þetta vandamál. Við höfum orðið að búa við það áratugum saman, að margs konar félagsleg þjónusta, sem hér í borginni er veitt og hefur verið veitt um áratugaskeið fram yfir það sem mörg önnur sveitarfélög hafa veitt, hefur kallað á að aldrað fólk víðs vegar að af landinu, og þ. á m. fólk sem er að nálgast eftirlaunaaldur, hefur reynt að ná sér í sveitfesti hér í borginni og náð. Það hefur haft í för með sér að þeir þegnar í Reykjavíkurborg, sem borga skatta og skyldur til borgarinnar, verða að standa undir auknum útgjöldum af þessum sökum, en það sveitarfélag, sem hafði skatttekjur af þessu fólki meðan það gat greitt þær, meðan það var í blóma lífsins, heldur afrakstri þeirra eftir, en þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu gamla fólki þegar svo er komið.

Hér er að sjálfsögðu átt við ef þetta fólk fer inn í íbúð sem er á þess nafni.

Það á hins vegar ekki við um svokölluð elliheimili eða aðrar slíkar stofnanir, en undir þá skilgreiningu falla dvalarheimilin m. a. Á þeim heldur vistfólk áfram sínu gamla lögheimili þótt það flytjist inn á þau úr öðru sveitarfélagi, enda tæplega hægt að búast við öðru, því við höfum hér á landi mörg heimili sem eru byggð á þann veg og rekin að þau eru ekki rekin fyrir íbúa eins sveitarfélags. Ég fæ ekki séð annað, ef þessi breyting verður ekki gerð, en að þá verði útilokað fyrir aðra aðila en sveitarfélögin sjálf að byggja slíkar sérhannaðar íbúðir innan sinna vébanda og þá eingöngu fyrir það fólk sem þar hefur verið búsett um ákveðið árabil.

Ég sé enga ástæðu til þess að við hjálpum ekki til þess að taka slíka sveitfesti af öldruðu fólki. Hæstv. heilbrmrh. hefur tekið undir fyrri orð mín í umr. um daginn, að þetta gamla fólk okkar ætti að sjálfsögðu að hafa sem mest val um hvar það býr og hvernig það býr. Ég tel að samþykkt þessa frv. sé einmitt í áttina til þess að svo geti orðið.

Ég sé ekki, herra forseti, ástæðu til að hafa fleiri orð um frv., nema frekari ástæða gefist til, og legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og til allshn.