25.02.1981
Efri deild: 58. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2562 í B-deild Alþingistíðinda. (2741)
218. mál, atvinnuleysistryggingar
Flm. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Aðeins nokkur orð. Ég þakka hv. formanni heilbr.- og trn., sem talaði hér síðast, Davíð Aðalsteinssyni, 3. þm. Vesturl., fyrir undirtektir hans um að skoða þetta mál með skjótum hætti. Það þarf ekki að þýða það, að það verði ekki gert á þann hátt sem hér er lagt til, þ. e. í fullu samráði við stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs, eins og sérstaklega er tekið fram í grg.
Ég held að það, sem kom hér fram hjá hv. 3. landsk. þm., Karli Steinari Guðnasyni, eigi kannske að einhverju leyti rétt á sér. Menn verða að íhuga, hver greiðslustaða Atvinnuleysistryggingasjóðs er, í sambandi við þetta mál. En ég vek athygli á því, að bæði í sjálfri frvgr. og grg. er lögð áhersla á að ekkert skuli gert í þessu efni sem þvingar stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs til eins eða annars. Hins vegar tel ég það mjög gagnlegt, að stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs hafi heimild til að gera slíkt ef hún telur sig geta gert það, telur sig komast betur frá því fjárhagslega heldur en að greiða atvinnuleysisbætur og hún er sammála um að hún hafi svigrúm til þess að gera slíkt. Það er einmitt þetta sem fyrir mér vakir í þessum efnum.
Ég er algerlega sammála hv. þm. Davíð Aðalsteinssyni um að þetta mál er margþætt: hafís leggst að landi og verður til þess að lama atvinnulíf á stórum landssvæðum og valda verulegu tjóni o. s. frv. Mér er persónulega kunnugt um að við slíkar aðstæður koma upp mál sem eru flókin og margþætt. Við, sem flytjum þetta frv., höfum reynslu af því, m. a. hv. þm. Stefán Jónsson. Það var því hugmynd okkar að hreyfa þessu máli sérstaklega og fjölyrða ekki frekar um þau atriði í sambandi við vá af völdum hafíss. Ég hvet eindregið til þess, að þetta mál verði skoðað vel, en að það hljóti afgreiðslu á þessu þingi. Og ég verð að segja alveg eins og er, að þar sem stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs er selt algert sjálfdæmi getur hún metið það, hvort hún hefur fjárhagslegt afl til að greiða flutning á afla og geti jafnvel komist betur út úr því en að greiða atvinnuleysisbætur.
Ég vek athygli á því, að af atvinnuleysistryggingum hefur verið létt allverulegum greiðslum með nýrri löggjöf um fæðingarorlof. Og ég fæ ekki séð að það sé með neinu móti hægt að hafa á móti því, að stjórn, sem er algerlega sjálfstæð, eins og stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs er, og verkalýðshreyfingin hefur meiri hluta í, hafi sjálfdæmi um það, hvort hún geti eða hvernig hún vilji framkvæma slíka heimild. Það er þetta sem fyrir okkur vakir. Að sjálfsögðu er hugsanlegt að fara einhverjar aðrar leiðir í því að greiða þann kostnað sem hlýst af atvinnujöfnun við tilvik þegar hafís lokar kannske höfnum á stórum landssvæðum. En það er spurning hvort það er ekki einmitt rétti aðilinn, að stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs geti metið hvorn kostinn hún vill heldur taka, að greiða einhvern kostnað af því að halda uppi atvinnu á þessum landssvæðum eða greiða töluverðar atvinnuleysisbætur.