26.02.1981
Efri deild: 60. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2605 í B-deild Alþingistíðinda. (2763)

231. mál, eftirlaun til aldraðra

Davíð Aðalsteinsson:

Herra forseti. Aðeins örfá orð. Mig langaði til að spyrja hæstv. ráðh. að því, hvort eða hvernig hefði verið tekið á erindi sem barst frá Stéttarsambandi bænda varðandi þó nokkurn hóp aldraðra og öryrkja í sveitum sem samkv. nánari skoðun virðast ekki njóta bótanna sem þarna er um að ræða. Ég veit að hæstv. ráðh. er kunnugt um þetta bréf sem barst honum væntanlega frá Stéttarsambandinu. — Mig langaði að forvitnast um hvernig á því máli yrði tekið.