26.02.1981
Neðri deild: 59. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2618 í B-deild Alþingistíðinda. (2771)

193. mál, viðnám gegn verðbólgu

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Ég vil gjarnan fá tækifæri til að gera örfáar aths. við það frv. sem hér er til umr. og fá tækifæri til að varpa fram nokkrum fsp. til hæstv. forsrh. og fjalla um málið að öðru leyti, enda er hér á ferðinni það mál sem snertir efnahagsaðgerðir ríkisstj. og telst til meiri háttar mála Alþingis á yfirstandandi þingi.

Mér þótti leitt að heyra það í hádegisútvarpinu í dag, að hæstv. forsrh. hefði haldið því fram að stjórnarandstaðan hefði hótað málþófi. Vonandi verður það ekki kallað málþóf þótt nokkrir þm. komi fram með sín sjónarmið í svo stórvægilegu máli. En fréttaflutningur Ríkisútvarpsins vakti kannske mesta athygli fyrir að þar kom ekki fram stærsta frétt dagsins í dag, — sú frétt sem ég hélt að miklu fleiri hefðu beðið eftir en frétt af fundinum á Akranesi, sem eflaust var góður, — en það er sú frétt, að í morgun lét hæstv. ríkisstj. frá sér fara ályktun í sambandi við togarakaup á Þórshöfn. Það hefði verið full ástæða að Ríkisútvarpið hefði sagt frá því og efni þeirrar ályktunar. En með það mál er nú farið með öðrum hætti en hingað til hefur verið gert. Það væri vissulega fróðlegt, ef hæstv. forsrh. hefði gefið sér tíma til að leggja fyrir þingið umbeðna skýrslu um það mál, þannig að það væri hægt að sjá og lesa það mál — ef ég má nota orðalagið — „í sögulegu samhengi“ þess.

Eins og hv. þm. vita var gert ráð fyrir að það mál, sem hér er til meðferðar, hefði greiðan gang í Nd. Alþingis og Alþingi fyrir mánaðamótin sem eru í lok þessarar viku. En vegna þess, að í fyrradag, við síðustu umr. í Ed., komu fram nýjar upplýsingar í skattamálum og varðandi tryggingabætur, og eins vegna þess, að hæstv. ríkisstj. hefur látið frá sér fara yfirlýsingu um vaxtabreytingar um næstu mánaðamót, hafa komið fram ný sjónarmið í þessu máli sem gera það að verkum að hv. fjh.- og viðskn. Nd. verður að sjálfsögðu að fá tækifæri til að skoða þau gögn, sem lögð hafa verið fram, en hafa ekki verið rædd í nefndum þingsins og hafa ekki verið sýnd í þingflokkum, en hafa hins vegar gengið á milli fárra útvalinna stuðningsmanna ríkisstj.

Í umr., sem áttu sér stað hér í gær, og í framíkalli hæstv. forsrh. undir ræðu formanns Sjálfstfl. var því haldið fram af hæstv. forsrh., að það hefði ekki verið ákvörðun hæstv. ríkisstj. að miða gengi íslensku krónunnar við dollarann frá áramótum. Er þetta að sjálfsögðu alveg ný yfirlýsing og dálítið merkileg með tilliti til þess, að það stendur skýrum stöfum í lögum um Seðlabankann að hann starfi í samræmi við stefnu ríkisstj. í gengismálum. Þetta þýðir m. ö. o. að annaðhvort hafa þessi boð komið frá ríkisstj. eða Seðlabankinn hefur valið þessa leið án þess að hafa samband við ríkisstj. Ég held að það, sem hafi gerst í þessu máli hafi verið að Seðlabankinn hefur auðvitað ákveðið þessa viðmiðun í því skyni að hjálpa ríkisstj. af tveimur ástæðum. Önnur ástæðan var sú, að fiskverð var ekki komið og það var auðvitað til bóta fyrir þá, sem sömdu um fiskverð, að hafa gengi dollarans fasta stærð. Eins byggist þessi ákvörðun á því, að því hafði verið spáð í Bandaríkjunum, bæði af fjármálamönnum og hagfræðingum, að gengi dollarans yrði stöðugt frá áramótum eða a. m. k., eins og það var orðað í ýmsum tímaritum, mundi gengi dollarans ekki hækka eftir áramót. En í Bandaríkjunum er kominn nýr valdhafi, jafnaldri núv. hæstv. forsrh., ágætur stjórnmálaskörungur og góður leikari, og hann sló kollega sínum hér á Íslandi heldur betur við því að hann styrkti með yfirlýsingum sínum og róttækum hugmyndum stöðu bandaríska gjaldmiðilsins með þeim hætti að við urðum að hverfa hér uppi á Íslandi til gömlu viðmiðunarinnar, sem auðvitað er eðlilegra að miða við, þ. e. meðalgengi. Þetta held ég að sé skýringin á því, hvers vegna dollarinn var valinn frá áramótum og hvers vegna horfið var frá þeirri ákvörðun nokkrum vikum síðar.

Mig langar til þess að gera eina formlega aths. við framlagningu brbl., þ. e. frv. til staðfestingar brbl. Þá aths. hef ég gert margoft úr þessum ræðustól. Hún er á þá leið, hvort ekki sé eðlilegra að hafa athugasemdir við einstakar greinar, eins og oftast er gert við stjfrv. Hefði í þessu tilviki t. d. mátt fylgja skjal um efnahagsaðgerðir að öðru leyti, í stað þess að vitna beint í brbl. þannig að frv. verður tvítekning og ekkert annað. Þetta er ekkert nýtt fyrirbrigði. Þannig hefur verið farið að um áratugaskeið og sjálfsagt ætíð, en fyrir allan þann fjölda, sem tes lagafrumvörp, væri til mikilla bóta að skýringar væru við einstakar greinar ef um frumvörp til staðfestingar á brbl. er að ræða rétt eins og um önnur stjfrv. Þetta er ekki mikilvægt atriði, en á það minni ég nú vegna þess að það er áreiðanlega öllum til góðs.

Í öðru lagi, sem eflaust má falla jafnframt undir formlegan þátt þessa máls, vil ég spyrja þeirrar spurningar, hvort ástæða hafi verið til að efna til efnahagsaðgerðanna með brbl.

Skipta má efni brbl. í fjóra meginflokka: í fyrsta lagi verðstöðvun, í öðru lagi vaxtaákvörðun, í þriðja lagi kaupskerðingu og í fjórða lagi frestun opinberra framkvæmda.

Hvað snertir verðstöðvunina hefur það margoft komið fram, að verðstöðvunarákvæði brbl. er nákvæmlega eins orðað og það verðstöðvunarákvæði sem í gildi var, að öðru leyti en því, að nú er sett inn dagsetningin 1. maí án þess að hæstv. ríkisstj. fáist til þess að svara því, hvað gerist eftir 1. maí, hvort gömlu lögin öðlist þá gildi, sem ég held að gerist ekki, eða verði felld úr gildi, og hvort verðlag verði þá gefið frjálst. Um þetta hafa ekki fengist skýr og greinargóð svör, en ég vænti þess, að hæstv. forsrh., nú þegar dregur að 1. mars og þetta tímabil er um það bil hálfnað, og skal ég þá ekki tala í nafni íslensku þjóðarinnar né heldur þingheims, heldur aðeins í mínu nafni, geti sagt okkur nokkurn veginn fyrir hvað gerist eftir tvo mánuði.

Um kaupskerðinguna er það að segja, að hún er það eina sem er krystaltært í brbl. Það er stórkostlegt fyrir starfandi sjálfstæðismenn að lesa Þjóðviljann — eitt helsta málgagn ríkisstj. — hæla forsrh. og taka við hann viðtal eftir viðtal um snilld hans við að koma þessum brbl. fram. Í slíku hóli og í slíkum viðtölum er Þjóðviljinn að gera gífurlegt grín að sjálfum sér, því að snilld forsrh., sem vissulega er mikil, felst fyrst og fremst í því að hafa fengið Alþb. til að framkvæma aðgerðir sem Alþb.- menn sjálfir höfðu úthrópað þremur árum áður. Þá var núv. hæstv. forsrh. í Þjóðviljanum af núv. hæstv. félmrh. kallaður öllum illum nöfnum, sem ég þori ekki að viðhafa hér. Nú þremur árum síðar er hæstv. forsrh. kallaður hinn mesti snillingur fyrir að hafa komið fram slíkum aðgerðum. Ég skal taka undir það með Þjóðviljamönnum, að það þarf talsverða snilld til að fá þá Þjóðviljamenn og núv. ráðh., sem áður voru á Þjóðviljanum, til að éta allt þetta ofan í sig. Ég óska hæstv. forsrh. innilega til hamingju, því að það má segja að hann hafi þarna hefnt harma sinna og þeirrar ríkisstj. sem sat að völdum í febr. 1978.

Frestun opinberra framkvæmda hefur verið til umr. Það hefur margoft verið sýnt fram á að í raun og veru var í fjárlögum heimild fyrir fjmrh. til að skera niður um 3 gamla milljarða, en svo kemur hæstv. fjmrh. í Ríkisútvarpið og segir: Ja, 3 milljarðar og skera niður. Þetta er bara heimild. Það er bara heimild í brbl. að skera niður til að við getum, ef við þurfum á að halda einhvern tíma seinni hluta ársins, gripið til þessa ákvæðis. Ég er að gera aths. við þessi ummæli og þessa grein í brbl. vegna þess, og það er kjarni málsins, að þetta eru brbl. og samkv. íslensku stjórnarskránni á ekki að setja brbl. nema brýna nauðsyn beri til. Og tökum nú eftir: Brýna nauðsyn ber til að fjmrh. geti hugsanlega á síðari hluta ársins frestað framkvæmdum um eitt eða tvö ár. Þetta stendur í þessum brbl. Og í brbl. stendur: Brýna nauðsyn ber til að halda áfram að hafa í lögum það sem stendur í lögum um verðstöðvun. Þetta er brýna nauðsynin. Og brýna nauðsyn ber til að segja á gamlársdag að kaupið eigi að skerðast 1. mars, alveg eins og Alþingi komi ekki saman á milli gamlársdags og 1. mars. Þetta eru spurningar sem ég vakti hér upp vegna þess að ég vonast til þess að formaður stjórnarskrárnefndar, sem situr að störfum, íhugi það rækilega, hvort ríkisstj. hafi farið rétt að og hvort ekki sé kominn tími til að stjórnarskrárnefnd íhugi gaumgæfilega breytingar á þessu ákvæði sem komi í veg fyrir slíka misnotkun. Ástæðan fyrir því, að löggjafarvaldið er ekki einungis í höndum löggjafans, sem venjulega er kallaður svo, þ. e. Alþingis, er sú, að þegar þetta ákvæði kom inn í stjórnarskrána var þinghald örfáir mánuðir annað hvort ár. Vegna samgönguskorts í landinu var ekki hægt að kalla þm. saman til fundar. Og nú spyr ég: Skyldu þm. hafa verið kallaðir til fundar milli jóla og nýárs? Var ekki alveg útséð um að samgöngur kæmu í veg fyrir að þm. gætu hist á milli jóla og nýárs, þegar til setningar brbl. var gripið? Ég veit ekki betur en allir þm. stjórnarinnar hafi verið kallaðir til Reykjavíkur og þeir hafi komið hingað nánast undanbragðalaust. Og ég er alveg handviss um að stjórnarandstöðuþm. hefðu á sama hátt getað komið til Reykjavíkur og þess vegna gat þinghald vel haldið áfram, eins og var bent á fyrir jól. Ég beini þess vegna þeirri vinsamlegu ábendingu til formanns stjórnarskrárnefndar, að hann íhugi hvort ekki sé ástæða til að breyta þessu ákvæði og koma á þeim vinnubrögðum í þessum efnum sem upphaflega var ætlast til, en þau voru auðvitað að löggjafarvaldið væri hjá svokölluðum löggjafa. Þetta veit auðvitað fyrrv. prófessor í stjórnskipunarlögum að byggist á þrígreiningu ríkisvaldsins.

Þetta er um hinn formlega þátt þessa máls. Það er vissulega sorglegt að sú hæstv. ríkisstj., sem mest hefur talað um að bjarga virðingu Alþingis og m. a. hefur lýst því yfir, að til hennar hafi verið stofnað til þess að bjarga virðingu Alþingis, skuli ekki virða Alþingi meira en svo að efna til setningar brbl. og senda stjórnarandstöðuþm. heim því að hinir voru kallaðir til Reykjavíkur. Á þetta minni ég nú því að í þessu felst ákveðin hætta fyrir lýðræðið. Hún felst í því, að ef ríkisstjórnir halda slíkum hætti áfram gerist það að þær grípa sífellt til þess ráðs að efna til brbl. á sumrin og í jólafríum til að hafa löggjöfina til þegar þing kemur saman. M. ö. o.: Þeir komast hjá því, ef stjórnin er veik á Alþingi, að þurfa fyrst í eigin flokkum að ná fram þessari löggjöf. Þetta þýðir m. ö. o. það, að stigið er ákveðið skref í þá átt að hafa Alþingi sem allra minnst á fundum. Með sama framhaldi þarf aðeins að kalla þing saman rétt eftir kosningar, mynda ríkisstj. og svo getur þingið farið heim. Ef stjórnin vill svo setja brbl. hringir hún í nokkra þm., sem eru tryggir stjórninni, mynda meiri hl., og lýsir yfir að nú sé þessi löggjöf tilbúin. Síðan er það samþ. í þingflokkum, löggjöfin tekur gildi og enginn hefur áhyggjur af lýðræðinu meir. En lýðræðið er meira en sá formlegi þáttur að ná meiri hl. á Alþingi. Lýðræðið felst nefnilega líka í því, að menn geti á hinu háa Alþingi haft áhrif á skoðanir hver annars. Það er mjög mikilvægur þáttur og gerir lýðræði á Vesturlöndum annað og gefur aðra og meiri merkingu lýðræðishugtakinu á Vesturlöndum en nokkurn tíma annars staðar þar sem mest er talað um lýðræði.

Hæstv. ríkisstj. setti í brbl. ákvæði um vexti, og eins og fram hefur komið er það eina ákvæðið sem þurfti atbeina löggjafans við, því að þar var um að tefla lagaatriði sem þurfti að breyta til að ná fram stefnumiðum ríkisstj. Breytingin var í því fólgin að breyta svokölluðum Ólafslögum þannig, að í fyrsta lagi yrði frestað um eitt ár að ná fram fullri verðtryggingu og í öðru lagi, að í stað þess að setja verðtryggingu á þriggja mánaða innlánsreikninga yrðu slíkir reikningar til sex mánaða. Þetta sagði hæstv. ríkisstj. að væri gert til að koma í veg fyrir vaxtahækkun, þetta væri gert til vaxtalækkunar. Mánuði síðar, þegar hinir verðtryggðu reikningar fóru að taka gildi, kemur auðvitað í ljóst að þessi ákvörðun ríkisstj. leiðir til vaxtahækkunar, einfaldlega vegna þess — og það vitum við sem erum að byggja og þurfum að kaupa húsnæði og fjöldi annarra sem stendur þannig á um, — að bankakerfið hefur sitt á hreinu. Ég get lýst því yfir eftir að hafa haft samband við bankastjóra hér í bænum og beðið um lán sem var til lengri tíma en til tveggja og hálfs árs, að engin önnur lán fást en svokölluð lánskjaravísitölulán. Það þýðir í raun að vextir hafa stórhækkað. Þetta kemur berlega í ljós í umsögn Seðlabankans, sem segir að verðbólgan verði 50% frá upphafi til loka þessa árs á meðan ríkisstj. sýni ekki einhverjar nýjar tillögur. Þessi útlán eru með 2.5% vöxtum. Það þýðir að vaxtakjörin eru í raun 53.75% á ári eins og þeir geta séð sem kunna fyrir sér í reikningi. Þetta hefur fulltrúi Seðlabankans staðfest og kom fram í svari hæstv. viðskrh. fyrir nokkru. Svokallaðir vaxtaaukareikningar, sem ríkisstj. talar mikið um að sé verið að lækka vexti á, slík lán fást ekki. Þess vegna eru það alger öfugmæli hjá hæstv. ríkisstj. að hún sé að lækka vexti. Hún ætlar sér að vísu að gera það 1. mars, lækka aðeins mun á innláns- og útlánsvöxtum af öðrum reikningum en þessum verðtryggðu, en hún gerir það auðvitað upp á þau býti að þjónustugjöld bankanna hækki á móti. Það er jafnframt staðfest og kemur fram í efnahagsáætlun ríkisstj. Það þýðir einfaldlega að sá, sem tekur lán úr bankakerfinu, þarf að borga nákvæmlega jafnmikið og áður. Það kemur nákvæmlega jafnmikið við pyngju hans og áður. Ég er ekki að segja þetta af því að ég sé á móti stefnunni sem þarna kemur fram. Hún er út af fyrir sig skynsamleg. Þetta er sama stefnan og Sjálfstfl., Alþfl. — og ef maður skildi rétt — Framsfl. þóttust vera að berjast fyrir fyrir síðustu kosningar. Ég er að benda á að það er ekki rétt af hæstv, ríkisstj. að segjast annars vegar vera að lækka vexti, en að gera það aðeins af lánum sem ekki fást, en að öðru leyti hækka stórlega vextirnir. Þetta þarf að koma skýrt og greinilega fram, þótt ég viti að allir þeir, sem þurfa að taka lán, verði varir við þessi vinnubrögð hjá bankakerfinu. Sá, sem í þessum stól stendur, hefur sjálfur prófað það með því að hringja í bankastjóra hér í bænum.

Eitt af helstu markmiðunum í efnahagsáætlun ríkisstj. í seinni tíð er að koma verðbólgunni niður í 40%. Fjárlögin eru byggð á grundvelli 42%, en nú hefur Þjóðhagsstofnun sagt að verðbólgan verði líklega 50–52% á þessu ári. Hæstv. ráðherrar Framsfl. hafa oftar en einu sinni sagt í blöðum að það þurfi að grípa til frekari aðgerða í því skyni að koma verðbólgunni niður í 40%. Og hæstv. forsrh. sagði í ræðu sinni hér í gær, að ríkisstj. væri að finna leiðir til að lækka verðbólguna og það ætti að gerast strax á tímabilinu 1. mars til 1. júní, sem í raun er nú tímabilið 1. febr. til 1. maí. Hæstv. forsrh. sagði að það væri verið að vinna að þessu máli. Er eitthvað vitað til hvaða ráðstafana á að grípa? Að þessu er spurt vegna þess að ekki eru miklir möguleikar á að grípa til annarra ráðstafana, a. m. k. hjá þessari hæstv. ríkisstj., nema hún gerbreyti um stefnu, en í fyrsta lagi að skerða launin, eins og hún hefur gert, eða í öðru lagi að skera verulega niður ríkisútgjöldin, eins og hún hefur ekki þorað að gera. (Gripið fram í.) Ég veit að hæstv. forsrh. heyrir svo vel að hann getur bæði talað og hlustað í senn.

Með brbl. fylgdi svokölluð efnahagsáætlun, og í þessari efnahagsáætlun er minnst á að ríkisstj. muni stefna að því í áföngum að veita greiðslufrest á tollum. M. ö. o.: ríkisstj. hyggst taka upp svokallaða tollkrít. Mér er það mikið ánægjuefni að ríkisstj. skuli nú ætla að vinna að þessu máli, ekki síst vegna þess að í umr. á hv. Alþingi s.l. vor kom það greinilega fram hjá hæstv. forsrh., að hann ætlaði að leggja fram frv. um þetta mál s. l. haust. Ef ég má — með leyfi forseta — lesa örstutt ummæli hæstv. forsrh., þá eru þau á þessa leið:

„Allt frá því ríkisstj. var mynduð hafa tillögur og hugmyndir um greiðslufest á tollum og einföldun á tollmeðferð vöru verið til athugunar. Ráðuneyti, sem þetta mál snertir, hafa unnið að þessu og viðræður farið fram um málið milli ráðherra. Í stjórnarsáttmálanum eru ákvæði þess efnis að greiða fyrir hagkvæmum innkaupum til lækkunar á vöruverði.

Greiðslufrestur á tollum eða tollkrít, eins og það er kallað, gæti haft marga kosti, svo sem minnkun geymslukostnaðar og vaxtakostnaðar. Það ætti að hafa áhrif til lækkunar á vöruverði. Einnig gæti tollkrít örvað hagkvæm innkaup á vöru. Um verulegan sparnað fyrir þjóðarbúið gæti því verið að ræða af slíku fyrirkomulagi. Atriði, sem þarf að kanna rækilega, eru m. a. áhrif tollkrítar á fjárstreymi úr ríkissjóði. Sumir telja, að ríkissjóður yrði fyrir skammtímatapi þegar slíkt kerfi væri innleitt, og einnig, að hugsanleg séu þensluáhrif af völdum greiðslufrests á tolli. Að lokinni nákvæmri athugun á því, hvernig best verði að þessu máli staðið til þess að forðast neikvæðar hliðarverkanir, ætti málið að liggja ljóst fyrir þegar þing kemur saman að nýju í haust.

Ég er því fylgjandi að þessu frv. verði vísað til 2. umr.“ o. s. frv.

Þetta er ræða hæstv. forsrh. vegna till. frá mér og nokkrum öðrum þm. Sjálfstfl. og Alþfl. um tollkrít. Sú till. hefur verið endurflutt á þessu þingi og málið liggur hjá nefnd. Ríkisstj. gefur út ný loforð, en ekkert heyrist meira af málinu. Ég hirði ekki um, vegna fjarveru hæstv. fjmrh., að lesa hans jákvæðu umsagnir um þetta mál. Það er kominn tími til, að mínu viti, að hæstv. forsrh., sem ég veit að fylgir þessu máli, segi frá því hvenær — ég ætlaði að segja í haust, en við skulum segja á þessu þingi — við megum eiga von á þessu frv. Að þessu er spurt vegna þess að ekki sýnist vera gert ráð fyrir því í fjárlögum íslenska ríkisins að um skammtímatap af tolltekjum verði að ræða.

Hæstv. ríkisstj. setti sér ákveðin og skelegg og skýr markmið í upphafi stjórnarferilsins. Í svokölluðum stjórnarsáttmála ríkisstj. segir m. a., að ríkisstj. muni vinna að hjöðnun verðbólgu þannig að á árinu 1982 verði verðbólgan orðin svipuð og í helstu viðskiptalöndum Íslendinga. 1982, það ár, hefst við lok ársins 1981, sem er yfirstandandi ár. Þetta þýðir það, að því er einn af hv. þm. Framsfl. hefur sagt, að verðbólgan þurfi að vera komin niður í 19% um næstu áramót. Í stjórnarsáttmálanum er talað um samstarf og samráð. Þá er enn fremur sagt í stjórnarsáttmálanum að sett verði ákveðin tímamörk í samræmi við niðurtalninguna á árinu 1981. Þessi tímasettu mörk hafa hvergi komið fram, enda hefur hæstv. ríkisstj. hopað af hólmi. Hún þorir ekki lengur að láta hafa eftir sér neinar tölur, enda hefur hún brennt sig stórlega á slíkum talnaflækjum. Eins og menn muna urðu um það umr. í hv. Ed. á síðasta þingi hver verðbólgan yrði á því ári. Hv. þm. Lárus Jónsson hélt því fram, að verðbólgan færi upp í 55%, en hæstv. forsrh. staðhæfði, að verðbólgan yrði 31%. Ég hygg að flestir viti nú hvor hafði rétt fyrir sér.

Ég minni á þennan stjórnarsáttmála hér til þess að það komi ekki fyrir að einhver haldi að ríkisstj. hafi í raun ætlað að efna til aðgerða án samráðs við launþega til að ná því einasta markmiði að halda verðbólgunni í 50%, sem hún hefur verið undanfarin tvö ár, en slíkt mætti ætla af ummælum hæstv. ráðh. í sambandi við brbl.

Í þessum umr. öllum hefur talsverður tími farið í skattamál. Við 3. umr. í Ed. lýsti hæstv. fjmrh. því yfir, að skattar yrðu lækkaðir um 10 milljarða. Miðað við hvað? Miðað við s. l. ár? Nei, miðað við skattana eins og hæstv. ríkisstj. ætlaði að hafa þá á yfirstandandi ári. Skattahækkun í gömlum krónum á fjárlagagrundvellinum er 24 milljarðar gkr. Nú á að slaka út 10 milljörðum, en 14 milljarða skattahækkun stendur eftir. Hvað kallar hæstv. ríkisstj. þetta? Gífurlega skattalækkun, alveg með sama hætti og hún kallar það mikla verðbólguhjöðnun að hafa komið í veg fyrir að verðbólgan færi upp í 70–80% í lok þessa árs. Þannig er rökstuðningurinn í þessu máli. Á þetta þarf auðvitað að leggja mikla áherslu, einkum og sér í lagi vegna þjónkunar verkalýðsforingjanna við hæstv. ríkisstj.

Hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson var einn af þeim fjórum vitringum og spekingum sem kallaðir voru til hæstv. fjmrh. til að leggja blessun sína yfir tillögur ríkisstj. Ég hlakka til að sjá hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson koma hér í pontu og lýsa yfir að 14 milljarða skattahækkun á milli ára á föstu verðlagi sé til hagsbóta fyrir almenning og launþega í landinu. Ég hlakka til að heyra það. (GJG: Vill þm. endurtaka það?) Vegna sérstakrar beiðni hv. þm., sem af einhverjum ástæðum virðist þurfa að fá kennslu í þessu, skal ég endurtaka þetta og gera það eins hægt og rólega og mér er unnt: Hæstv. ríkisstj. hækkar skatta á föstu verðlagi á milli ára um 24 milljarða gkr. a. m. k. Hún lofar síðan að hætta við að hækka skattana nema um 14 milljarða og segist hafa lækkað þá um 10 milljarða. Síðan er kallað á fjóra spekinga og þ. á m. hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson, varaformann Dagsbrúnar í Reykjavík, sem er þm. sem spurði, ef hann skyldi ekki átta sig á því. Hann leggur blessun sína á þessa svokölluðu skattalækkun. Ég hlakka þess vegna til þegar hann kemur hér í ræðustól á eftir og skýrir það út fyrir mér og öðrum hvernig þetta getur verið lækkun á sköttum fyrir almenning og launþega. (Forseti: Ég má til að biðja hv. ræðumann um að gera hlé fljótlega á ræðu sinni.) Ég er alveg, herra forseti, að ljúka máli mínu og tel mig geta gert það um það bil er klukkan slær fjögur.

Ég ætla ekki herra forseti, að fjalla efnislega frekar um þetta mál. Ég vil aðeins taka það fram, að við stjórnarandstöðuþm. höfum ekki í hyggju að tefja afgreiðslu þessa máls fyrir mánaðamót. Það kemur ekki til greina af okkar hálfu. Við viljum þvert á móti fá að koma skoðunum okkar á framfæri. Við teljum að nefndarstörf geti farið fram í kvöld og í fyrramálið og hægt sé að taka þetta mál til afgreiðslu á morgun.

Það þarf að svara ýmsum spurningum í hv. fjh.- og viðskn. Ég leyfi mér að vísa eftirfarandi spurningum til þeirrar nefndar, því að ég veit að formaður n., hv. þm. Halldór Ásgrímsson, hefur ávallt verið allra manna fúsastur til að viðhafa vönduð vinnubrögð. Það þarf að fá vegna breyttra forsendna og nýrra atriða, sem fram hafa komið, eftirfarandi upplýsingar: Upplýsingar um breytingu á skattbyrði vegna hugmynda fjmrh. sem hann setti fram í fréttatilkynningunni 24. febr. Í öðru lagi vantar upplýsingar um breytingu skattbyrði milli ára og raungrunn fyrir og eftir hugmynd um þessar breytingar og þá á að miða annars vegar við skattvísitöluna 145 og að tekjubreytingar á milli ára séu 51–52%. Í þriðja lagi vantar upplýsingar um kaupmátt tekjutryggingar og heimilisbóta 1. mars frá því að ríkisstj. tók við, frá 1. febr. 1980. Það þarf í fjórða lagi að fá upplýsingar um skerðingu almenns elli- og örorkulífeyris 1. mars í krónum talið, annars vegar samkv. Ólafslögum og hins vegar samkv. brbl. Í fimmta lagi vantar upplýsingar um kaupmátt almenns elli- og örorkulífeyris frá því að ríkisstj. tók við. Í sjötta lagi vantar upplýsingar um skerðingu almennra verkamannalauna 1. mars, miðað við framfærsluvísitölu annars vegar og ákvæði brbl. hins vegar. Í sjöunda lagi þarf að fá útreikning Alþýðusambands Íslands um „slétt skipti“ launþega í kaupmætti fyrir og eftir brbl. Í áttunda lagi þarf nefndin að fá viðtal við Ásmund Stefánsson, Björn Þórhallsson, Jón Helgason og hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson um samkomulag við fjmrh. Það þarf að spyrja þeirrar spurningar, hvort þetta samkomulag sé endanlegt. Hefur miðstjórn Alþýðusambandsins samþykkt þetta samkomulag? Eiga samráðin í framtíðinni að vera með þessum hætti? Loks væri gott í níunda lagi að fá viðtal við bankastjóra, t. d. Jóhannes Nordal og Helga Bergs, út af því sem hefur verið kallað „lækkun vaxta“, til þess að spyrja þá hvort lán á borð við þau, sem lækkun vaxta tók til, séu yfirleitt á boðstólum. Ég veit að það er mikil eftirspurn eftir þeim.

Ég hef minnst hér á örfá atriði sem þarf að fá leyst úr. Þessi atriði eru öll til. Það þarf ekki að vinna þau. Þau eru örugglega til því að annars væri ekki búið að taka ákvörðun.

Herra forseti. Ég vonast til þess, að hæstv. forsrh. hafi tækifæri til að svara þeim spurningum sem ég hef beint til hans. Ég vænti þess enn fremur, að hv. fjh.- og viðskn. taki til athugunar þau atriði, sem ég hef drepið á, í þeirri umfjöllun sem fer fram væntanlega á eftir, í kvöld og í fyrramálið í hv. nefnd.