03.03.1981
Sameinað þing: 55. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2652 í B-deild Alþingistíðinda. (2788)

219. mál, snjómokstursreglur á þjóðvegum

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Aðeins örfá orð vegna þeirra umr. sem hér hafa spunnist um veginn fyrir Ólafsvíkurenni. — Ég vil leyfa mér að minna á það, að til meðferðar í þinginu er till. til þál. sem flutt var hér í haust. Flm. var Gunnar Már Kristófersson. Till. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta kanna hvernig best verði hagað endurbótum á veginum undir Ólafsvíkurenni, þannig að komið verði í veg fyrir hættu af grjóthruni og snjóflóðum.“

Þarna hefur ástandið aldrei verið eins slæmt og nú á þessum vetri, eins og hér hefur raunar þegar komið fram. Ég vil hér með skora á þá nefnd sem hefur þessa till. til meðferðar, að afgreiða hana frá sér sem fyrst, þannig að hún megi koma hér til atkvæða í sameinuðu þingi.