03.03.1981
Sameinað þing: 55. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2663 í B-deild Alþingistíðinda. (2802)
383. mál, símamál
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég held að þetta mál og þær umr., sem hér eiga sér stað, séu öndvegisdæmi um það, þegar menn taka sig saman til þess að reyna að gera úlfalda úr mýflugu. Hér er um mál að ræða sem ég held að sé jöfnunarmál og réttlætismál í senn. Við skulum ekki gleyma því, við sem búum hér á Reykjavíkursvæðinu, að í landinu er stór hópur fólks sem á ekki kost á símaþjónustu nema fáeinar klukkustundir á dag, sem getur ekki talað í síma við sinn lækni, t. d. trúnaðarmál, öðruvísi en að keyra kannske 60–70 km til þess að komast í lokaða línu. Og við skulum líka muna það, að það er gífurlegur munur á símakostnaði þeirra sem búa hér í þéttbýlinu, og þeirra, sem búa úti á landi. Í mörgum tilvikum er símakostnaður venjulegra fjölskyldna, sem búa úti á landi, tvöfaldur á við það sem hann er hér í Reykjavík, og ég skil satt að segja ekki hvað menn sjá óeðlilegt við það, að fólk greiði fyrir símtöl í hlutfalli við lengd þeirra og raunar í hlutfalli við notkun símans. Í einu símtali binda menn ákveðnar línur símans og ákveðin tæki, og ég sé ekkert óeðlilegt við það, að menn borgi í hlutfalli við notkun. Það gera menn þegar þeir kaupa rafmagn, það gera menn þegar þeir kaupa heitt vatn af hitaveitu. Þetta er sú almenna regla sem gildir hjá opinberum þjónustustofnunum.
Ég held að ef álasa á Pósti og síma fyrir eitthvað í þessu máli, þá sé það fyrir að hafa ekki kynnt þetta mál nægilega vel og hafa ekki skýrt það út. Hv. þm. hefðu betur hlustað á þáttinn Morgunpóstinn í morgun. Þá var póst- og símamálastjóri þar og skýrði þetta mál einkar vel. Hann vék þar sérstaklega að öldruðum og öryrkjum, sem nota símann sem öryggistæki, og gat þess, að með því að hækka greiðslurnar til þeirra í gegnum Tryggingastofnunina um kannske 1–2 kr. á dag væri þeirra hlutur kannske betri en áður.
Ég get tekið undir það sem hv. síðasti ræðumaður sagði hér, að mér finnst þetta bera nokkurn keim af kjósendahræðslu. Menn eru að viðra sig upp við kjósendur með þessum hætti og gera úlfalda úr mýflugu alveg tvímælalaust. Hér er aðeins um jöfnunar- og réttlætismál ræða.
Varðandi það, sem hv. þm. Friðrik Sophusson sagði áðan, að þetta hefði í rauninni aldrei verið samþykkt, þá man ég ekki betur — hann leiðréttir það þá ef rangt er — en hann hafi átt sæti í fjvn. þegar þar var fjallað um fjárfestingaráætlun Pósts og síma, þar sem voru innifalin tæki til Karlsonstalningar. Og ég hygg að öllum fjvn.mönnum hafi verið mætavel ljóst hvað þar var átt við.