03.03.1981
Sameinað þing: 55. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2664 í B-deild Alþingistíðinda. (2803)

383. mál, símamál

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Fyrst út af því sem hv. síðasti ræðumaður sagði um störf okkar í fjvn., þá er það rétt, að sú ákvörðun kom fram í fjvn. að kaupa Karlsonstæki. Það var ekkert greint frá því af hálfu Pósts og síma, hvers konar tæki þetta væru, og kom ekki í ljós fyrr en Póstur og sími gerðu grein fyrir því með bréfi 18. maí vorið 1979, að frestað hefði verið að kaupa þessi tæki. Þá fyrst var okkur kynnt hvað þessi eina lína þýddi í þessari fjárhagsáætlun þeirra. En þetta skiptir ekki máli vegna þess að ákvörðunin var tekin án samráðs við Alþingi 8. febr. 1979 í skrifstofu þáv. hæstv. samgrh., Ragnars Arnalds, að viðstöddum póst- og símamálastjóra, eins og skjöl bera vitni um. Ákvörðun Alþingis er ekki til í þessu máli, burt séð frá því hvort málið er sanngjarnt eða ósanngjarnt.

Hér tala menn mikið um réttlæti. Það getur vel verið að það sé réttlátt að km sé styttri úti á landi en í Reykjavík, það má vel vera að það sé eitthvert réttlætismál. Menn verða að hafa í huga að hér er spurning um það að greiða eftir því hvað hlutirnir kosta mikið. Ég hef sagt hér og það hefur ekki verið hrakið í þessum umr., að það að hafa upptekna eina linu innan sama kerfis, innan sömu stöðvar, er það ódýrasta sem til er í símakerfinu í landinu. Hitt er svo annað mál, að það er eðlilegt að jafna kostnaðinn, og það getur gerst með fleiri og öðrum aðferðum en þeirri að telja skrefin með þessum hætti.

Svo koma menn hér upp og segja að við berjum okkur á brjóst og hér sé talað um kjósendahræðslu af því að tímamælingin hafi alla tíð átt að koma úti um allt land. Þetta er rangt. Það er ekki fyrr en í fyrrasumar sem hægt var að draga það út úr bæði póst- og símamálastjóra og Þorvarði Jónssyni verkfræðingi að það væri ákveðið að taka þetta upp samtímis á öllu landinu. — Þegar ég spurði hvað væri „samtímis“, þá var sagt að það væri 1–3 mánuðir sem mundu vera á milli.

Það er alveg rétt, sem hv. þm. Magnús H. Magnússon sagði, að nýju stöðvarnar eru auðvitað þannig gerðar, þær eru svo miklu nýrri, að það er auðvelt að koma þessu á í þeim. En það var ekki meiningin a. m. k. í upphafi ekki eins og mér hefur verið sagt frá því.

Að lokum, herra forseti, skal það sagt, að hér koma menn og segja að það sé dýrt fyrir þá, sem eiga ættingja og vini í Reykjavík, að hringja til þeirra í gegnum Landssímann. Þetta er alveg rétt. En hvað eru menn að segja?

Eru þá ekki ættingjar og vinir líka á hinum endanum, og hvað kostar fyrir þá að hringja út á land? Það er nákvæmlega það sama. Það kostar jafnmikið fyrir þá sem eiga ættingja og vini úti á landi að hringja úr Reykjavík og þangað, þannig að þetta eru auðvitað ekki nokkur rök.