03.03.1981
Sameinað þing: 55. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2672 í B-deild Alþingistíðinda. (2812)
383. mál, símamál
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Þessi síðasta ræða var jafnvel fyrir neðan virðingu hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar, og segir það sitt um innihald ræðunnar. Í augnabliks fjarveru hv. þm. Friðriks Sophussonar vil ég aðeins segja að það hefði bersýnilega ekki skipt nokkru máli hvort hv. þm. Friðrik Sophusson hefði rótað við hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni fyrr eða síðar, vegna þess að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hefði ekki látið sig það neinu máli skipta.
Hins vegar vil ég segja það, að það er ákaflega gott að fjvn. taki þetta mál til meðferðar. Ég hef gert það að tillögu minni í trausti til allra nefndarmanna fjvn. og þá ekki síst hv. þm. Friðriks Sophussonar.