03.03.1981
Sameinað þing: 55. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2675 í B-deild Alþingistíðinda. (2817)
383. mál, símamál
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Ég þakka fyrir umburðarlyndi forseta og enn fremur þakka ég Friðrik Sophussyni alveg sérstaklega fyrirþá ræðu sem hann flutti hér, vegna þess að nú staðfestir hann það hér sjálfur, að hann hafi í heilt ár — hvorki meira né minna en heilt ár —vitað af þessu máli án þess að taka það upp með einum eða neinum hætti við samþingsmenn sína úr Reykjavík. Þar með hefur það verið staðfest af Friðrik Sophussyni, að það sem ég flutti hér inn í umr. að gefnu tilefni frá Geir Hallgrímssyni, er alveg hárrétt, að sök hvílir fyrst og fremst á hv. þm. Friðrik Sophussyni, sem í heilt ár er búinn aðgeyma þessa vitneskju með sjálfum sér án þess að hafa tekið það upp við okkur hina þm. Reykv. Þess vegna eru þau tilmæli og áskorun og umkvartanir, sem Geir Hallgrímsson flutti hér áðan yfir því að þm. Reykv. hefðu ekki verið látnir fylgjast með þessu máli, — þær ásakanir eiga fyrst og fremst að beinast til hv. þm. Friðriks Sophussonar sem nú hefur staðfest það hér í umr., að hann hefur vanrækt í heilt ár, hvorki meira né minna, að fjalla um málið við samþingmenn sína í Reykjavík. Þetta vandamál er því greinilega innanhúsvandamál hjá þeim Geir Hallgrímssyni og Friðrik Sophussyni og væri æskilegt að þeir töluðust meira við en upplýst hefur verið hér í umr. Sameinað þing, 56. fundur.