03.03.1981
Sameinað þing: 56. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2676 í B-deild Alþingistíðinda. (2822)

145. mál, flugvellir í Austurlandskjördæmi

Helgi Seljan:

Herra forseti. Ég þarf fáum orðum við að bæta það sem hv. fyrri flm. sagði um þetta mál. Ég tel að vísu rétt og um það erum við ábyggilega báðir sammála, að það sé skylda hverrar ríkisstj. að hún marki áætlun á svipaðan mála varðandi flugmálin og hafna- og vegamálin. Ég held að þó að þar skakki alltaf nokkru og menn séu óánægðir með það, hvernig bæði hafnaáætlanir og vegaáætlanir raskast af völdum verðbólgu og af ýmsum öðrum ástæðum, þá sé það engu að síður svo, að það sé býsna nauðsynlegt fyrir okkur að fá ákveðna heildarflugmálaáætlun fyrir landið til þriggja eða fjögurra ára.

Á sínum tíma vann nefnd mjög mikið í flugvallamálum hér og skilaði viðamikilli skýrslu um þau mál og gerði þar margar merkar till., sem ég get svo sannarlega gert að mínum á ýmsan veg, en ætla ekki að fara nánar út í hér.

Ekki þarf að taka það frekar fram en hv. fyrri flm. gerði áðan, hve flugið er sérlega mikilvægt fyrir mörg byggðarlög eystra sem byggju við algera einangrun að öðrum kosti.

Ég vil líka taka það fram, að þegar ég tala um heildaráætlun fyrir allt landið varðandi flugmálin, þá er það engu að síður svo, eins og reyndar hv. 1. flm. kom inn á, að svo ólíkar eru þarfir einstakra landshluta að ég held að vissar landshlutaáætlanir séu nauðsyn, a. m. k. innan marka heildaráætlunar, því að auðvitað verðum við að líta á alla heildina um leið og þá sérstaklega með tilliti til fjárveitinga.

Mála sannast er það vitanlega, að ekki skiptir máli hvort við höfum verið í stjórn eða stjórnarandstöðu, við höfum staðið illa að fjárveitingum til flugmála í heild. Þessi þáttur, þessi gífurlega mikilvægi samgönguþáttur okkar hefur einhvern veginn orðið út undan. Við þm. höfum einhvern veginn vanrækt hann. Og það gildir sama um alla flokka og þm. allra flokka, að þeir hafa ekki sinnt þessum málaflokki á þann hátt sem vera ber. Það verður að segjast alveg eins og er, að fjárveitingar eru í algeru lágmarki, að vísu núna með skásta móti, með langskásta móti, og við flm. segjum gjarnan: með réttlátasta móti einnig, og vísa ég því til hv. flugráðsmanns um leið. En fjárveitingar til þessara mála hafa verið smánarlegar á undanförnum árum, alveg sérstaklega þegar litið er til öryggisþáttarins, því það verður aldrei of mikið gert í því að öryggi sitji í fyrirrúmi og við búum þannig að flugmálum okkar og flugbrautum okkar að við séum ekki stöðugt með mannslíf í hættu. En staðreyndin er sú, að jafnvel á mörgum stærri flugvöllum okkar er öryggi svo ábótavant að til hreins vansa má telja. Þar eigum við allir mikla sök.

Ég get svo ekki stillt mig um að benda á það, að í flugmálum okkar eystra eigum við eitt risavaxið verkefni fram undan sem við verðum að snúa okkur að fyrr en seinna, og það er uppbygging flugvallarins á Egilsstöðum. Flugvöllurinn á Egilsstöðum er gífurlegur umferðarflugvöllur, eins og menn vita. Hann er einnig millilendingarflugvöllur fyrir flug til Færeyja, og ég geri mér ljóst að hann á eftir að þjóna í framtíðinni enn mikilvægara hlutverki. Hins vegar hafa stangast á áætlanir manna um það, á hvern hátt væri best að endurbyggja þann flugvöll. Ég held að menn séu nú komnir almennt á þá skoðun, að sú gamla hugmynd um hinn svokallaða Snjóholtsvöll sé úr sögunni og að fara eigi aðra nærtækari leið, leið sem er dýr og kostnaðarsöm, en leið sem engu að síður er óhjákvæmilegt að fara. Við verðum að fara að taka hér um ákvörðun og byggja þennan flugvöll upp þannig að hann sæmi þeirri miklu umferð sem um hann fer. Og þá get ég vitanlega ekki stillt mig um í leiðinni að minna á það sem ég minntist á hér í fyrirspurnatíma á sínum tíma, að vitanlega kemur varaflugvöllur fyrir millilandaflugið inn í þá mynd, ekkert síður en hann gerði á sínum tíma þegar ákveðin nefnd, sem starfaði að þeim málum, skilaði áliti og taldi að af veðurfarsástæðum ýmsum og vegna margs annars væri Egilsstaðaflugvöllur, þegar hann væri orðinn vel búinn, ákjósanlegastur varaflugvöllur fyrir millilandaflugið. Ég kem því hér með enn á framfæri, að það sé sjálfsagt að skoða það um leið rækilega hvort ekki sé rétt að haga uppbyggingu flugvallarins á Egilsstöðum með tilliti til þess.