04.03.1981
Efri deild: 61. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2684 í B-deild Alþingistíðinda. (2828)
225. mál, hagkvæmni í endurnýjun skipastólsins
Guðmundur Karlson:
Herra forseti. Ég vil líta á þetta frv. sem jákvætt framlag til þeirrar umr. sem þarf og verður að fara fram um endurnýjun og viðhald fiskiskipaflotans. Hvort hér er sett fram nákvæmlega sú rétta formúla sem fyrir endurnýjun á að vera, það er ég ekki viss um. Maður rekur fyrst augun í brúttórúmlest. Áður fyrr voru þessi fiskiskip aðeins skrokkurinn með litlu vélarrúmi og kassa ofan á þar sem stýrishúsið var. Nú er orðin gífurleg breyting. Nú er hugsað um að mannskapurinn hafi góðar aðstæður og því er náttúrlega fiskiskipið allt annað en þá var.
Ég vil halda fram að þessu markmiði, sem stefnt er að með þessu frv., hefðu alveg eins mátt ná með beitingu fjárfestingarsjóðanna, bæði Fiskveiðasjóðs, Byggðasjóðs og með Aldurslagasjóði og Úreldingarsjóði. En auðvitað hljótum við Íslendingar sem fiskveiðiþjóð að stefna að því að byggja sem mest af okkar fiskiskipum sjálfir. Þarna virðist vera stefnt að því náttúrlega, en ég vil minna á það, að ef við ætlum að stefna að því, þá þurfum við að búa miklu betur að okkar innlendu skipasmíðum en er í dag. Við þurfum að gera skipasmíðarnar samkeppnishæfar við erlendar skipasmíðastöðvar og þá fyrst og fremst með því að létta af þeim kvöðum þeim og tollum sem þær verða að greiða umfram það sem annars staðar er gert.
Við hljótum, þegar við skoðum svona frv., að spyrja okkur að því, hvernig eigi að stefna að því að nýta okkar landhelgi, hvort það eigi að gera með stórum togveiðiskipum, hvort á að gera það með öðruvísi samsettum fiskiskipaflota. Ég held að fyrst og fremst hljótum við að stefna að því að ná okkar fiski á sem ódýrastan hátt og huga að því, að sem mest framleiðni verði í fiskveiðunum. Þess vegna hljótum við að skoða þetta margslungna og erfiða vandamál frá öllum hliðum og gera okkur grein fyrir því, með hvaða stærðum og hvernig skipum við eigum að endurnýja okkar flota.
Þá vildi ég líka koma að þeirri spurningu, hvort þetta eigi að verða áfram eins og er í dag, að menn eigi að fá skip, en ekki að greiða þau. Ég get ekki séð annað, eins og ástandið er hér í dag, en að hver sá maður, sem fer út í það að kaupa sér nýtt skip, hvort sem þau eru keypt hér innanlands eða erlendis frá, getir upp við sig að hann getur ekki greitt skipið og því sé um það að ræða að fá skip, en ætla sér alls ekki að greiða það eða standa í skilum af þeim lánum sem fengin eru. Ég held að við getum flestir verið sammála því, að t. d. hefur allt of mikil endurnýjun átt sér stað á síðustu árum í togaraflotanum. Áður fyrr gátu allir glaðst yfir því að sjá nýtt togskip á sjónum, þessi glæsilegu skip, en satt að segja eru það blandnar tilfinningar sem fara um mann þegar maður sér þessi skip núna koma hvert af öðru.
Síðan hlýtur sú spurning að vakna þegar svona regla er sett fram eins og virðist vera í þessu frv., hverjir það séu sem eigi að fá að endurnýja flotann og hverjir eigi að njóta þess að fá þau skip sem smíðuð eða keypt verða. Eru það einstaklingarnir, sem eru að berjast í þessu, eða eru það stór og sterk fyrirtæki, sem hljóta við þær aðstæður, sem nú eru, að vaxa upp og geta yfirboðið einstaklingana. Satt að segja væri það mikill skaði, held ég, fyrir íslenskan sjávarútveg ef einstaklingurinn hyrfi sem slíkur út úr honum. Sjávarútvegurinn hefur til þessa mest byggt á framtaki einstaklingsins. Það eru dugnaðarsjómenn og skipstjórar sem hafa orðið í flestum tilvikum eignaraðilar að fiskiskipunum, og væri mikill skaði skeður ef það þyrfti að falla út.
Ég held að það hljóti að vera, að við Íslendingar stefnum að því að reka okkar fiskiskip.með hagnaði, og ég held að hagnaðarsjónarmiðið hljóti að verða ráðandi. Með því að beita þeim sjóðum, sem nefndir voru í byrjun, held ég að hægt væri að ná hverju því markmiði sem við setjum okkur í endurnýjun flotans. En ég vil fyrst og fremst líta á þetta frv. sem jákvætt framlag til þeirrar umr. sem verður að fara fram um þetta mál. Það þarf að fjalla um þetta vel í þeirri n., sem málið tekur fyrir, og gera sér grein fyrir því, á hvern hátt framhaldið verður.