09.03.1981
Efri deild: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2754 í B-deild Alþingistíðinda. (2871)

229. mál, greiðslutryggingarsjóður fiskafla

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Hv. 2. þm. Reykn. flutti hjartnæma ræðu um byggðamál og byggðastefnu sem væri ástæða til að ræða nokkru meira um almennt og þá ekki síst með tilliti til þess, hvernig Alþfl. hefur staðið að byggðastefnumálum og Byggðamálum yfirleitt.

Ég álít að það eigi að vera meginstefnan í þessum efnum, að sjávarplássin kringum landið geti yfirleitt staðið að hráefnisöflun sinni sjálf. Þannig hefur verið unnið að þessum málum á undanförnum árum að byggja upp vinnsluaðstöðu í landi og reyna jafnhliða að tryggja hráefnisöflun til þessara stöðva. Það eru svo margir þættir í þessum málum sem ekki eru beint fjárhagslegir, sem koma inn í þetta, eins og t. d. að það hefur verið nokkrum vandkvæðum bundið í framkvæmdinni að fá einstök skip til að leggja upp utan sinnar heimahafnar þegar af þeirri ástæðu að sjómennirnir, sem eðlilegt er, vilja gjarnan koma til heimahafnar sinnar og vera þar á meðan verið er að afferma skipin og búa þau til nýrrar veiðiferðar.

Það hafa verið gripin á lofti nokkur tilvik þar sem gengið hefur illa í þessum efnum. Langvíðast hefur þetta gengið vel. Hins vegar hefur það komið fyrir, að það hefur hvorki heppnast útgerð né fiskvinnsla á einstökum stöðum og þá hefur það verið gripið á lofti af þeim sem eru engir sérstakir talsmenn byggðastefnu, eins og t. d. Alþfl., og þyrlað upp moldviðri um einstök málefni.

Ýmsir þættir þessa máls, sem hér er verið að ræða og hér er lagt fyrir, eru gott mál, ég get tekið undir það með hv. flm. og frsm. En ég er ekki alveg viss um að það sé rétta leiðin í þessu efni að fara að stofna sérstakan sjóð og sérstaka stofnun. Ég hefði haldið að það væri miklu vænlegri leið að bankakerfið rækti þetta verkefni. Hér er um að ræða að leggja upp aflann. Það þarf náttúrlega að greiða hann á meðan verið er að vinna hann og selja — eða um takmarkaðan tíma. Það væri miklu eðlilegra að bankakerfið annaðist um þetta í stað þess að stofna sérstaka stofnun og sérstakan sjóð til viðbótar við allar hinar stofnanirnar og til viðbótar við alla hina sjóðina. Það væri e. t. v. eðlilegra í slíkum tilvikum að Byggðasjóður kæmi að því máli með einhverjum hætti. Þetta er raunar gert þegar, að vísu ekki í stórum stíl. T. d. var núna fyrir helgina togari austan af fjörðum að landa afla sínum á Djúpavogi. Það var banki, — ég hygg að það hafi verið Landsbankinn — sem leysti það mál, tók ábyrgð á greiðslu aflans. Það var því ekki vandamál. Ég mundi álíta að það væri skynsamlegra að leysa þetta þarfa mál að þessu leyti til í gegnum bankakerfið í stað þess að fara að setja upp nýja stofnun og nýtt kerfi með nýjum kostnaði. Hér er í raun og veru aðeins fjallað um einn þátt málsins, þ. e. að greiða aflann þar til hann hefur verið unninn og seldur, afskipaður. Ég vek athygli á þessu, að ég held að lausnin í þessu máli sé ekki sú að setja upp nýja stofnun, heldur að leysa þessi mál á annan hátt.

En ég vil endurtaka það, að ég vil gjarnan taka undir það með hv. flm., að þetta er þarft mál í heild sem þyrfti að koma í framkvæmd, ekki í mjög stórum stíl, en í nokkrum mæli. Þetta hefur stundum verið hugsað þannig að framkvæma leyfisveitingar til útgerða til að selja eða landa erlendis með þeim skilyrðum að þegar sérstaklega stendur á lönduðu þær öðru hvoru hér innanlands. Það er auðvitað ekki hægt að gera nema tekin sé ábyrgð á greiðslu fyrir aflann.

Ég vildi, vegna þess að hv. frsm. var að stjaka svolítið við mönnum í ræðu sinni, taka til máls. Ég vil taka undir að þetta er þarft mál þegar á heildina er lítið. En ég er ekki viss um að leiðin sé sú að stofna nýja stofnun eða nýjan sjóð, heldur að leysa þetta í gegnum bankakerfið. Eins og ég sagði áður væri kannske eðlilegt að stofnun eins og Byggðasjóður kæmi að því máli.