09.03.1981
Efri deild: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2757 í B-deild Alþingistíðinda. (2874)
229. mál, greiðslutryggingarsjóður fiskafla
Flm. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Fyrst var það bjórinn, svo er það olían, svo er það viðhaldið, nú er það upplyftingin. Ég er sannfærður um að blómarósir á Langanesi og Raufarhöfn munu taka vel og veita upplyftingu þreyttum sjómönnum að sunnan. Ég held líka að fallegar stúlkur á Reykjanesi muni vera reiðubúnar að sjá til þess að menn annars staðar að eigi sér góðar stundir. En þetta er vitaskuld ekki meginatriði málsins.
Hv. þm. Guðmundur Bjarnason, 5. þm. Norðurl. e., ræddi hér lítils háttar um viðhaldið, að það bæri nauðsyn til þess, þegar skip kæmu í höfn, að sinnt væri ýmsum viðhaldsverkefnum. Vitaskuld. En þeir, sem gera sér vonir um að sinna megi viðhaldi á plássum eins og t. d. Þórshöfn á Langanesi fyrir skip sem sé stöðugt gert út þaðan, eru væntanlega ekki hræddir um að það megi ekki sinna smáviðvikum þegar annað skip landi þar. Hitt vitum við líka, að það er nokkuð um það þegar að skip landi annars staðar en í heimahöfn og fái sinnt þeim viðhaldsverkefnum sem nauðsynleg teljast. Auðvitað er ekkert við því að segja að fram komi ábendingar af þessu tagi, en ég held að þetta séu atriði sem muni leysast og skipti ekki kjarna málsins.
Ég tók líka eftir því í ræðu hv. þm. Stefáns Jónssonar, 4. þm. Norðurl. e., að hann velti sérstaklega fyrir sér dreifingu afla á hafnir sem væru tiltölulega nálægar, dreifingu afla eða jöfnun afla innan landshluta, getum við sagt. Jöfnun afla af því tagi er þó nokkuð útbreidd, a. m. k. á vissum landssvæðum, eins og hér á suðvesturhorninu, í Eyjafirðinum og sjálfsagt víðar. Það er vitaskuld rétt að stuðla bera að slíkri jöfnun, en hún er eiginlega til viðbótar við þá jöfnun sem verið er að fjalla um í þessu frv. Það er fyrst og fremst verið að fjalla um jöfnun milli landshluta. Jöfnunin milli landshlutanna er ekki síður mikilvæg vegna þess að við höfum fyrir okkur mýmörg dæmi um að menn ráði illa við afla í einum landshluta á sama tíma og atvinnuleysi ríkir annars staðar. Það er ein stoðin undir þessu frv. Hin stoðin er sú að gera mönnum kleift, þar sem við vitum að um tímabundna hráefniseklu verði að ræða, að komast yfir afla án þess að þurfa að taka á sig myllusteina, án þess að þurfa að gera því skóna eða fara bónbjargarleiðir um það að láta gefa sér togara t. d. Von okkar flm. er að þetta frv. geti þannig orðið liður í heilbrigðari sjávarútvegsstefnu, heilbrigðari fiskveiðistefnu.
Hæstv. viðskrh. minntist hér líka á sjómennina. Auðvitað vildu þeir helst koma til heimahafnar. Okkur er það fullljóst. Hitt vitum við líka, eins og ég sagði áðan, að dæmi eru um það að landað sé utan heimahafnar. Það er ekki fordæmalaust. Í annan stað töldum við að það væri uppgjörsmál milli útgerðar og sjómanna hvort eitthvað þyrfti til að koma til að sjómenn yndu því að fara á aðra höfn en sína heimahöfn. En þá hefur líka útgerðaraðilinn fengið ávinning staðgreiðslunnar til þess að standa undir hugsanlegri umbun af því tagi. Ég held að það sé ekki skynsamlegt að fara að teygja löggjöf um aðgerðir af þessu tagi inn á hvert einstakt svið, heldur hljóti það að vera mál útgerðaraðilans og sjómannanna hvernig hún skuli ráðin.
Hæstv. viðskrh. ræddi hér nokkuð um svonefnt Þórshafnarmál eða Þórshafnarævintýri, eins og það er nú kallað meðal almennings, og lagði út frá því á tvo vegu, báða ranga vitaskuld.
Hann talaði um það, að Alþfl. hefði verið sérstakur fjandmaður byggðastefnu. Þetta er gömul framsóknarklisja sem menn hengja sig í þegar þeir hafa ekkert til málanna að leggja, ómerkileg og ekki til þess fallin að umræðan sé á því plani sem hún ætti að vera á og hefur að öðru leyti verið á hér í þessari deild núna. Það vita allir, sem vilja vita, að Alþfl. hefur fylgt fram raunhæfri byggðastefnu af jafnmiklum eða meiri þrótti og langtum meiri skynsemi en margir aðrir.
Hitt atriðið, sem hæstv. viðskrh. gerði sérstaklega að umtalsefni, var það, að mennirnir í plássunum ættu að eiga atvinnutækin sjálfir í sem ríkustum mæli. Vitaskuld er það rétt. Það er heldur ekkert í þessu frv. sem gerir ráð fyrir því, að eignaraðildin sé tekin af mönnum í einstökum byggðarlögum. Það er verið að gefa mönnum valkost. Það er verið að gefa mönnum möguleika á því að geta valið hvort þeir fara þessa leið til þess að mæta tímabundinni hráefniseklu eða hvort það eigi að gerast með stórum og miklum fjárfestingum, — fjárfestingum sem allir vita að eins og sakir standa munu einungis bitna á greininni í heild á sama tíma og það getur orðið mönnunum í plássinu hræðilegur myllusteinn. Þess vegna hefur það ekki með málið að gera sem hæstv. viðskrh. sagði í þessum efnum.
Ég tók víst svo til orða hér áðan, að menn hefðu setið hér hnípnir. Ég verð að biðjast afsökunar á því, að ég þekkti ekki nógu vel svipbrigðin á hv. þm. Guðmundi Bjarnasyni til þess að átta mig á því, að hann var auðvitað að hugsa. En ég vil nota þetta tækifæri til að þakka honum og öðrum þeim, sem hér hafa tekið til máls — bæði hv. þm. Stefáni Jónssyni og hæstv. viðskrh., fyrir skilning á því máli sem hér er verið að flytja. Ég verð að segja það, að þrátt fyrir smávægilegar athugasemdir, sem ég tel reyndar léttvægar og annaðhvort falla utan við efnisrammann eða hafa ekki með aðalatriði málsins að gera, voru þeir sammála okkur flm. um að hér kynni að vera leið sem reyna bæri til að ná frekara jafnvægi milli vinnslu og veiða, til þess að ná frekara jafnvægi í löndun aflans milli landshluta.
Það kom fram bæði hjá hæstv. viðskrh. og eins hjá hv. þm. Stefáni Jónssyni, hvort það gæti ekki verið að bankakerfið ætti að sinna þessu. Um þetta vil ég segja eftirfarandi:
Það er búið að tala um það í heilan áratug, að bankakerfið eigi að sinna þessu, og það hefur ekkert gerst. Það hefur ekki náðst árangur í þeim efnum. Og jafnvel þótt bankarnir heyri undir hæstv. viðskrh. er mér stórlega til efs að það muni eitthvað frekar hreyfast í þeim málum. Svo er það, að Alþingi getur illa sett lög á bankana í þessum efnum. En Alþingi getur sett lög af því tagi sem hér er flutt frv. um. Alþingi getur með auðveldum hætti gripið inn í þessi mál með því að setja á stofn sjóð af þessu tagi.
Nú erum við hv. flm. ekki sérstakir talsmenn þess að byggja bákn á bákn ofan eða nefnd á nefnd ofan, en okkur sýndist að þetta væri raunhæfasta leiðin eins og sakir standa. Við leituðumst við að finna það form sem ekki væri af því tagi að það væri sérstakur stofnanabragur. Þessum sjóði er í raun og sannleika ætlað að vera deild innan Aflatryggingasjóðs. Honum er ætlað að vera starfræktur á vegum Aflatryggingasjóðs. Umsjón sjóðsins, bókhald og því um líkt yrði á hans vegum. Það er ekki sett upp neitt stórkostlegt „apparat“ til þess að stjórna þessum sjóði, heldur er Aflatryggingasjóði ætlað að velja þrjá menn til þess að sjá um þau verkefni sem hér um ræðir.
Þess vegna segi ég það og ítreka, að þó menn geti haldið því fram að auðvitað ætti bankakerfið að sinna þessu hefur reynslan sýnt okkur að bankakerfið gerir það ekki. Reynslan hefur sýnt okkar að jafnvel þó að það sé vilji fyrir því, t. d. á Alþingi, að bankakerfið sinni þessu, gerist ekki neitt. Reynslan hefur sýnt okkur að það heldur áfram að vera sama ástandið og áður: Það er kannske hráefnisskortur á einum stað, en menn eru að kafna í fiski á öðrum stað. Þess vegna er þetta frv. flutt.
Herra forseti. Ég vil svo að lokum þakka þær undirtektir sem þetta frv. hefur fengið hér, sem ég tel vera mjög jákvæðar að því er aðalatriði málsins varðar. Ég tek það fram, eins og ég gerði reyndar í framsöguræðu minni, að við flm. erum vitanlega reiðubúnir að taka tillit til mismunandi sjónarmiða, sem upp kunna að koma, og reyna að finna þessu það form sem best er.
Að lokum legg ég til, herra forseti, að þessu frv. verði vísað til sjútvn.