09.03.1981
Efri deild: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2759 í B-deild Alþingistíðinda. (2875)
229. mál, greiðslutryggingarsjóður fiskafla
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég hafði raunar ekki ætlað það, er ég tók til máls í fyrra sinnið, að ég þyrfti að gera það öðru sinni, en hv. þm. Kjartan Jóhannsson er stundum, að því er virðist, gæddur þeim veikleika — undarlegt með jafngáfaðan og vel upplýstan mann — að skemma ágætismál með því að tala um þau of oft og of lengi.
Hann vó hér, ef svo mætti segja, í lokaræðu sinni öðru sinni í þann knérunn sem honum eru kaup á fiskiskipi til Þórshafnar á Langanesi. Raunar hefur hann í hin fyrri skiptin, við aðrar umræður þegar rætt hefur verið um kaup á þessum togara, staðfest það, sem við höfðum ýmsir rökstuddan grun um, hversu gjörsneyddur maðurinn er öllum skilningi á vandamálum sjávarútvegsins á Íslandi. Og ekki virtist honum aukast skilningur á eðli þessa bjargræðisvegar okkar við það að gegna í meira en ár embætti sjútvrh.
Ég hirði ekki um að leggja enn einu sinni fyrir hann þá spurningu, með hvaða hætti hann ímyndar sér að hægt sé að ávaxta „kapital“ upp á 5 milljarða gkr. í togara við Faxaflóa ef það er ekki hægt með 3 milljarða gkr. í góðum togara norður á Þórshöfn. En hitt ætla ég, að ef við ræðum af alvöru um skipulag sjávarútvegsmála á Íslandi, hráefnisöflunar, væri öllu nær að sjá til þess, að ekki væri mokað á land það miklum afla á tilteknum landssvæðum, svo sem eins og á vetrarvertíðarsvæðinu, að fólk, sem við fiskverkun vinnur þar, hefði alls ekki undan og gerði hluta af aflanum að skít. Þá væri betra að hemja svolítið aflann með skipulagsbundnum aðgerðum á þessum landssvæðum, þannig að fiskiskip í öðrum landshlutum fengju þá að veiða nokkru lengur, það þyrfti ekki að takmarka afla á þeirra kostnað.
Ég ítreka þá skoðun mína, að hugsunin á bak við þetta þingmál, á bak við þetta frv., sé nokkuð góð. En ég bið hv. þm. Kjartan Jóhannsson, fyrrv. sjútvrh., að hugleiða það nokkuð, hvort ástæðan fyrir því, að bankakerfið, sem lánar út á fisk upp úr sjó, hefur ekki verið tilkippilegt að taka að sér þetta hlutverk, þ. e. tryggja staðgreiðslu afla sem landað er annars staðar en í heimahöfn, sé ekki sú, hversu mismunandi fjárhagsafkoma fiskverkunarstöðvanna úti á landi er. Ég spyr hv. þm. með hvaða hætti hann ætlast til þess að fiskiðjuverið þar norður í rassi, svo við fylgjum nú hugsanaþræði hans, setji fullnægjandi tryggingu til hins nýja sjóðs sem ekki væri jafnframt fullnægjandi trygging fyrir banka. Ástæðan fyrir því, að ekki hefur verið lánað til hlítar til aflakaupa í þessu skyni, hefur í langsamlega flestum tilfellum verið bág staða hlutaðeigandi fiskiðjuvera.
Nei, við tryggjum ekki siglingu togara með afla frá einum landshluta til annars með öðrum hætti en þeim, að kostnaðurinn við þessa fiskflutninga verði greiddur. Það kostar orðið óhemju fé að sigla með togarafarm frá Hafnarfirði norður að Langanesi og leiðin á miðin til baka. Hér yrði um það að ræða í mjög mörgum tilfellum, að greiða yrði flutningskostnað á þessum fiski, greiða yrði hærra verð fyrir hann en gangverðið. Nú á hv. þm. Kjartani Jóhannssyni náttúrlega ekki að bregða svo mjög í brún við þá hugsun, þar sem hann er þm. fyrir það svæði landsins þar sem tíðkast hefur á undanförnum árum að fiskkaupendur bjóða í aflann og hann er keyptur á uppsprengdu verði — og hefur tíðkast svo um árabil. En hér er ekki til þess hugsað að stofnaður verði raunverulegur sjóður til að greiða niður flutningskostnað eða til að hækka verð á fiski til að gera það fýsilegt að sigla með aflann í aðra landsfjórðunga. Það er ég alveg viss um, að sú „löðun afla“, sem hv. þm. ræðir um, verður ekki framkvæmd, henni verður ekki til leiðar komið með öðrum hætti en þeim, að útgerðaraðilar þessara skipa sjái sér í því nokkra hagnaðarvon að sigla þetta með aflann.
Ég tek undir það með hv. þm., að hér gegnir allt öðru máli en þegar um það er að ræða að miðla afla innan landsfjórðungs þar sem vegasamband er sæmilegt, en því fer víðs fjarri að á þeirri fiskmiðlun sé skipulag nokkurs staðar á landinu. Ég vil minna á það, að í hittiðfyrra, í heitri sumartíð í hittiðfyrra, var settur í bræðslu þorskur um svipað leyti á gjörvöllu svæðinu frá Austfjörðum norður á Skagaströnd, þegar mokafli var og ekki hafðist undan að vinna í frystihúsunum. Þetta gerðist úti á landi í heitri sumartíð. Þarna kom upp vandamál úti á landi í heitri sumartíð sem vissulega er sambærilegt við það sem gerist í mokaflanum hérna syðra á vetrarvertíðinni. Þá þýddi ekki að miðla fiski á milli staða á þessu svæði. Á þessum tíma hefði vandinn ekki heldur verið leystur með því að senda togarafarma hingað suður á Faxaflóa, því svo vildi til á þeim tíma, enda þótt miklu minna bærist að af fiski á svæðinu frá Vestmannaeyjum og upp á Skaga, að fiskiðjuverin þar höfðu ekki mannskap til að hafa undan.
En þetta breytir ekki því, að minni hyggju, að hugsunin á bak við það frv., sem hér er flutt, sé góð, hún sé skref í þá átt að við tökum þau mál til alvarlegrar athugunar, með hvaða hætti við getum staðið miklu skynsamlegar að vinnslu afla en við höfum gert hér á landi og með hvaða hætti við getum samræmt úrtöku hráefnis úr sjó og vinnslu.