09.03.1981
Neðri deild: 61. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2780 í B-deild Alþingistíðinda. (2892)
237. mál, þýðingarsjóður
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að lýsa stuðningi mínum við þetta mál. Ég hef ekki kynnt mér það vandlega, en við skjóta yfirsýn sýnist mér hér á ferðinni ágætt mál og mál sem við ættum að taka mjög föstum tökum. Það getur verið ágreiningsatriði, eins og hv. síðasti ræðumaður benti á, hverjar tekjur þessa sjóðs ættu að vera. Og oft hefur það leitt huga minn að reglu sem franskir þingmenn hafa þegar þeir leggja fram svokölluð eyðslumál, að þeir leggja á móti einhverja hugmynd um tekjustofna, ekki eingöngu það að greitt sé úr ríkiskassanum.
Ég vil geta þess, að hingað til lands eru flutt á hverju ári ógrynni af erlendum tímaritum og léttbókmenntum svokölluðum, og mér dettur í hug svona í skjótri svipan, hvort ekki mætti leggja eitthvert tiltekið gjald á þessar bókmenntir, sem við erum að flytja hingað inn fyrir tugi ef ekki hundruð milljóna á hverju ári, og er þá kannske einfaldast að minnast á dönsk kvennablöð sem hingað koma í stórum bunkum, og að tekjur af því, hvort sem við kölluðum það skatt eða eitthvað annað, rynnu í sjóð af þessu tagi. Nú veit ég ekki hvort þessi leið er fær, ég viðurkenni það strax.
En ég vil minna á það í sambandi við þetta frv., að til er norrænn þýðingarsjóður sem gegnt hefur mjög mikilvægu hlutverki á milli Norðurlandanna í þá veru að færa bókmenntir einnar þjóðar til annarrar. Af þeim sjóði höfum við Íslendingar notið góðs á undanförnum árum og hann mun verða mjög þýðingarmikill áfram.
Ég geri ráð fyrir því, að þetta mál verði tekið til gaumgæfilegrar athugunar, en ég tek undir með síðasta ræðumanni: Við Alþfl.-menn höfum ekki verið mjög hlynntir því að binda tekjustofn eða binda útgjöld af þessu tagi í langan tíma. Ég tel að það væri fullkomin ástæða til þess að athuga hvort ekki væri hægt að leita einhverra annarra leiða til þess að fjármagna þennan sjóð. En málið styð ég eins og það liggur fyrir að því leyti, að tilgangurinn er góður og hann er réttmætur. En hvort ekki er nauðsynlegt að gera ýmsar breytingar á þessu frv., það skal ég ósagt láta, en tel þó í fljótu bragði að það verði að gera.